Fréttatíminn - 27.07.2012, Blaðsíða 26
Opnunartími: Mán-Fös. kl: 10-18 Laug. kl: 12-16
Fossháls 5-7 l 110 Reykjavík
Sími 551 5600 l utilegumadurinn.is
Ex
im
o
46
0
Dethleffs Nomad
Verð nú: 3.998.000kr
Verð áður: 4.798.000kr
Gott verð á 500DB hjólhýsi
Verð nú: 3.998.000kr
Verð áður: 4.760.000kr
Gott verð á 510V hjólhýsi
Verð nú: 2.498.000kr
Verð áður: 2.798.000kr
Gott verð á Eximo hjólhýsi
Gerðu betri kaup á hjólhýsum
...síðustu eintökin
afslattur.indd 1 7/23/2012 10:48:22 PM
Kattafólkið
Sennilega er þetta stærsti dýravinahópurinn á Facebook. Þeir
sem honum tilheyra fara einhvern veginn betur með dálæti sitt
á dýrum en aðrir dýravinir – lymskulegar. Þetta rímar vel við eðli
kattardýrsins. Þetta úrtak ber einnig með sér að bókelskir andans
menn eru frekir til fjörsins í hópi
karlkyns kattavina.
Guðmundur Andri
„Var beðinn um ljósmynd í einhverju
appelsínugulu til að minna á og for-
dæma kynbundið ofbeldi. Fann ekk-
ert appelsínugult nema viskastykkið
og köttinn...“ skrifar Guðmundur
Andri Thorsson. Hann dregur kött-
inn með sér á mynd í mótmælaskyni
við kynbundið ofbeldi. Skáldrænn
undirtónn í því.
Illugi Jökulsson
Annar andans maður og bókmennta er Illugi Jökulsson. Hann
setur ekki á langar ræður um ketti sína en birtir stöku sinnum
myndir af kettlingum þá er þeir koma í heiminn að heimili hans.
Jóhann Páll
Valdimarsson
„Ég á ekki bara
kisubörn. Líka
mannabörn.“
Bókaútgefandinn
vaski er annálaður
fyrir kattelsku sína
og slakar aldrei
betur á en með
kött í fanginu.
Kettir skipa jafnan
ábyrgðarstöður
hjá fyrirtæki hans.
Hestafólkið
Þeir sem teljast mest töff á Facebook meðal dýravina er
hestafólkið. Það getur oft sýnt myndir af sér og dýri sínu þar sem
það er við ævintýralegar aðstæður.
Brynja Þorgeirsdóttir
Sjónvarpskonan Brynja er vitaskuld með þekktari hestakonum
landsins og vinir hennar á Facebook sjá henni stundum bregða
fyrir með þessu stolti landsmanna; íslenska hestinum. En,
Brynja elskar öll dýr, stór og smá, en talar um þau af þeirri festu
sem einkennir hestafólk: „Það er ekki mikil villidýrsreisn yfir
kattarræksninu hér á bæ, sem hefur lesið sér til óbóta af Don
Kíkóta – veiðir skítuga
plastpoka og spikfeita
ánamaðka af miklum
móð. Þetta dregur hún
hér inn heimilisfólki
til armæðu og heyr
blóðugan bardaga á
stofugólfinu. Verður
svo afar móðguð þegar
þetta er tekið af henni.“
Árni Páll Árnason
Stjórnmálamaðurinn Árni Páll notar vitaskuld Facebook til að
koma á framfæri skoðunum sínum og tilkynningum er lúta að
hans pólitíska vafstri, en ýmsir veðja á að hann undirbúi nú for-
mannsslag í Samfylkingunni. Og ekki myndu fleiri myndir sem
tengjast hestamennsku hans á Facebook spilla fyrir í því ati.
Ellý Ármanns
„Fallegasti hundur Íslands
– Freyja mín.“ Fjölmiðla-
drottningin og ritstjóri
Lífsins á hina undurfögru tík
Freyju sem er tíður gestur á
Fésbókarsíðu hennar. Hún
á það sameiginlegt með
Brynju Þorgeirsdóttur að
njóta samvista við dýr, stór
og smá, og er komin á kaf í
hestana líka.
Hundafólkið
Hundafólkið er nokkuð fyrirferðarmikið á Facebook, opnið og
einlægt – líkt og hundarnir þeirra.
Dorrit
Dorrit forsetafrú er vitaskuld ein-
hver þekktasti dýravinur landsins
og það fer ekki fram hjá vinum
hennar á Facebook en hún er með
mynd af sér og forsetahundinum
í öndvegi: „Elska Ólaf Ragnar,
Ísland og Sám“ sagði hún í viðtali
við Fréttatímann á sínum tíma og
á Facebook skrifar hún: Við Ólafur
fórum í langan göngutúr í morgun.
Um Bessastaðanesið og fjöruna. Fuglarnir sungu. „Sámur lék við
hvern sinn fót. Förum bráðum að kjósa.“
Ragnheiður Elín
Einn mesti dýravinurinn á Facebook er Ragnheiður Elín Clausen
sem er vakin og sofin yfir velferð dýranna almennt og hunda
sinna einkum sem hún birtir gjarnan myndir af en þeir eru gull-
fallegir af tegundinni Siberian Husky. Ragnheiður skrifar mikið um
dýrin á Facebook og skiptir þá engu hverrar tegundar þau dýr eru:
„Rétt rúmlega sólarhringsgamalt folald vantar fósturmóður strax.
Vinsamlegast deilið og hjálpið ef þið mögulega getið. Upplýsingar
í síma 892 7178.“
Linda Pé.
Einhver frægasti dýravinur landsins er vitaskuld alheimsfegurðar-
drottningin Linda Pétursdóttir. Svo mikill dýravinur að hún
er orðin grænmetisæta og notar Fb óspart til að berjast fyrir
réttindum dýra. Linda er hundakona en elskar öll dýr og fór hún
til dæmis til að skoða hvali út af Húsavík. Og birti mynd af því
ævintýri: „Hnúfubakur – í boði náttúrunnar.“
Margrét Gauja
Magnúsdóttir
„spyr: býrðu í
Hafnarfirði og
áttu hund?“
Bæjarfulltrúinn í
Hafnarfirði hefur
hagsmuni hunda
í hávegum enda
víst enginn alvöru
Hafnfirðingur án
þess að eiga hund.
Hænukonan
Nokkrir skera sig
úr, hundar og kettir
eru algengustu
tegundirnar sem
ber á góma dýravina á Facebook. En Fb-verjar kynntust nýverið
nýstárlegu og gagnlegu gæludýri í gegnum Steinunni Ólínu Þor-
steinsdóttur sem skrifar: „Besta vinkona mín,“ við mynd af hænu.
Áður höfðu vinir Steinunnar Ólínu fengið að lesa eftirfarandi
yfirlýsingu: „Nýorpin egg í hádegismat. Rauðan sólarlagsrauð.
Landnámshænan klikkar ekki! Þetta eru egg eins og egg eiga að
vera.“
Dýrin mín stór og smá á Facebook
Allt er undir á Facebook; frá tilkynningum um hvað sé í kvöldmatinn hjá viðkom andi yfir í háspekilegar
rökræður um tilganginn með þessu öllu saman. Einn hópur sker sig að nokkru úr og er á sínu róli;
umturnast sjái það fréttir af vanrækslu og illri meðferð á dýrum. Undir þetta geta flestir tekið en þegar
um hægist fá vinir þeirra að fylgjast grannt með gangi mála þegar blessuð dýrin eru annars vegar. Þetta
er gæludýrafólkið á Facebook.
26 dýravinir Helgin 27.-29. júlí 2012