Fréttatíminn - 27.07.2012, Page 42
suzuki sportlegur kizashi
38 bílar Helgin 27.-29. júlí 2012
s uzuki Kizashi er nýr bíll í millistærð frá japanska fram-
leiðandanum, bíll með sportlegt
og yfirvegað útlit og vandaða
og vel útfærða innréttingu, að
því er segir á síðu umboðsins,
Suzuki bílar. „Í Kizashi samein-
ast frábærir aksturseiginleikar
og ánægja í akstri, sem má þakka
þrotlausum og ítarlegum prófun-
um og fínstillingu á aksturshæfni
á vegum bæði í Evrópu og Norður
Ameríku,“ segir enn fremur.
Kizashi SDLX er með tveggja
lítra 178 hestafla vél. CTV sjálf-
skiptingin er með 6 gíra hand-
skiptimöguleika. Hægt er að
velja á milli framhjóladrifs eða
sítengds fjórhjóladrifs.
Staðalbúnaður er meðal annars
fjarlægðarskynjari, regnskynjari
á þurrkum, rafstýrðar stillingar á
bílstjórasæti með þrem minnis-
stillingum, vönduð hljómtæki
með átta hátölurum, USB-tengi,
lykillaus ræsing, sjálfvirk dimm-
ing á baksýnisspegli, tvívirk
miðstöð/loftkæling, hraðastillir,
sóllúga og 18 tommu álfelgur.
Hvað öryggisbúnað varðar eru
öryggisloftpúðarnir 6, þriggja
punkta bílbelti við öll sæti,
styrktarbitar í hurðum, ISO-
FIX festingar fyrir barnabílstóla
og þokuljós bæði að framan og
aftan. Kizashi er með ABS- og
EBD-hemlajöfnun os ESP-stöðug-
leikakerfi.
Verðið er 5.880.000 krónur.
Nýr bíll í millistærðarflokki
Útlit Kizash, nýja
millistærðabílsins
frá Suzuki, þykir í
senn sportlegt og
yfirvegað.
-þegar gæði verða lífsstíll
Vantar glæsivagna
í salinn. Frítt í júlí
og ágúst.
Við seljum bílinn þinn
meðan þú slappar af
Mikil sala!
Vilt þú selja bílinn þinn?
Settu hann á skrá
hjá okkur frítt!
Funahöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | hofdahollin@hofdahollin.is
Funahöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 580 8900 | bilalind.is
Fylgstu með
okkur á Facebook
Nýjasti bíllinn frá Subaru,
sportjeppinn XV, sem umboðið,
BL, kynnti fyrr á þessu ári,
hentar vel við íslenskar aðstæð-
ur enda er hæð undir bílinn
22 sentímetrar. Bíllinn var
fyrst sýndur á bílasýningunni í
Frankfurt í fyrra. Hann er með
2.0 lítra bensínvél, sjálfskiptur
og fjórhjóladrifinn.
Subaru XV er boðinn hér-
lendis með ríkulegum búnaði,
meðal annars VDC-skriðvörn, 17 tommu álfelgum, og nýrri stiglausri
skiptingu sem lágmarkar eldsneytis eyðslu, auk Bluetooth-símabúnaðar.
Bíllinn er umhverfismildur en CO2 útblástur er 153 gr/km.
Subaru XV er bakkmyndavél sem staðalbúnað. Hún gerir ökumanni
kleift að sjá nákvæmlega hvað er fyrir aftan bílinn þegar bakkað er.
Þegar kemur að plássi er lítið mál að haga sætunum eftir höfði þeirra
sem nota bílinn því 60/40 skipting á aftursætum gefur möguleika á að
leggja niður hluta af aftursætum þegar koma þarf stærri hlutum fyrir.
subaru sportjeppinn XV
Subaru
XV, nýr
sport-
jeppi.
M azda CX-5 sportjeppinn var kynntur í vor en bíllinn er áhugaverður kostur fyrir þá
sem vilja lipran sportjeppa sem hentar
vel við íslenskar aðstæður. Bíllinn er
sparneytinn en hann er boðinn með
svokallaðri SKYACTIV spartækni.
„Með SKYACTIV spartækninni,“
segir á síðu Brimborgar, umboðsaðila
Mazda, „er brugðist við síauknum
kröfum neytenda um gæði, endingu
og öryggi. SKYACTIV spartæknin
samanstendur af nýjum undirvagni
sem er bæði léttari og stífari en áður
hefur þekkst. Í undirvagninn og yfir-
byggingu er notað hástyrktarstál sem
eykur bæði öryggi bílstjóra og farþega
auk þess sem eldsneytisnotkun verður
minni.“
2.0 lítra SKYACTIV bensínvélin er
10 prósentum léttari en forverinn auk
þess sem innra viðnám hennar er 30
prósentum minna. Þetta er vél sem
skilar 160 hestöflum og 15 prósenta
meira togi jafnvel þótt eldsneytisnotk-
un sé 15 prósentum minni. Eldsneytis-
notkunin er 6.6 l/100 km og CO2
gildið 155 g/km. Einnig er hægt að fá
Mazda CX-5 með tveimur gerðum af
dísilvélum. Þær eru báðar 2.2 lítrar,
150 eða 175 hestafla. Þær eru 10 pró-
sent léttari en vélar fyrri kynslóða og
með tveggja þrepa túrbínu og dregið
hefur verið úr eldsneytisnotkun um
tæp 20 prósent.
Meðal staðalbúnaðar má nefna
nálægðarskynjara að framan og aftan
sem gerir ökumönnum viðvart með
hljóðmerki hve löng fjarlægð er að
næstu fyrirstöðu, hraðastilli, Blueto-
oth-símabúnað, raddstýrt boðkerfi,
tölvustýrða miðstöð og regnskynjara
fyrir rúðuþurrkur.
Borgaröryggi er öryggiskerfi sem
fylgist með því að ökumaður sé í hæfi-
legri fjarlægð frá bílnum á undan og
hemlar sjálfkrafa bregðist bílstjórinn
ekki við hættu á aftanákeyrslu. Auk
þess er Mazda CX-5 búinn viðvörunar-
kerfi fyrir „blinda blettinn“ sem varar
ökumann við hvort það sé bíll í blinda
blettinum þegar skipt er um akrein.
Mazda CX-5 kostar frá 5.190.000
krónum.
Góður kostur fyrir á sem
vilja lipran sportjeppa
Mazda sparneytinn CX-5
Mazda CX-5 sportjeppi, búinn sérstakri spartækni.
... öryggiskerfi
sem fylgist
með því að
ökumaður sé í
hæfilegri fjar-
lægð frá bíln-
um á undan og
hemlar sjálf-
krafa bregðist
bílstjórinn ekki
við hættu á
aftanákeyrslu.
Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík Sími: 534 7268
1.250 kr
1.350 kr
HOLLT
OG GOTT
PHO víetnamskur veitingastaður Ármúla 21 - 108 Reykjavík - Sími: 588 6868
1.250 kr
ALLT FYRIR
AUSTURLENSKA MATARGERÐ
699 kr. 550 kr.
387 kr.
320 kr.
Opið:
mán - föst Kl. 11 - 21
lau - sun Kl. 12 - 21
Hæð undir lægsta punkt 22 sentímetrar