Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.07.2012, Page 56

Fréttatíminn - 27.07.2012, Page 56
„Stíllinn minn er mjög fjölbreyttur, svo það er erfitt að afmarka hann á ein- hvern einn hátt,“ segir hin 21 árs Lena Björk Pétursdóttir Dam. „Mér finnst gaman að blanda alls konar andstæðum saman, eins og krúttlegum bolum við rokkaða fylgihluti, og strákalegum skyrtum og jökkum við stelpulegan klæðnað. Fötin kaupi ég einhvern veginn allstaðar að, bæði hér heima og erlendis, en það eru engar sérstakar verslanir sem ég sæki helst í. Fötin kaupi ég bara þar sem ég finn þau. Innblástur tískunnar fæ ég allstaðar í kringum mig. Ég er ekkert sérstaklega að leita eftir innblæstri. Hann kemur bara þegar ég er að ráfa gegnum inter- netið. Nicole Richie finnst mér líka alltaf mjög nett, er frjálsleg í klæðavali og með mjög flottan stíl.” Blandar and- stæðum saman Helgin 27.-29. júlí 201252 tíska 5 dagar dress tíska Kolbrún Pálsdóttir skrifar Tískan er alltaf jafn hlutlaus Það hefur lítið breyst hér á Íslandi síðustu tvo mánuði, meðan ég dvaldi í Afríku. Tískan virðist enn sú sama og sömu trendin eru enn á sínum stað. Allir virðast sækjast í þessi sömu trend og eru fáir sem þora að taka hliðarspor og klæða sig á öðruvísi hátt. Sem er einhvernvegin einkennandi fyrir hvernig okkar þjóð klæðir sig. Allir eru eins. Á leið minni til Íslands frá Suður Afríku stoppaði ég í London í tvo daga. Aðeins til að koma mér inn í vest- ræna lífið, áður en ég kæmi heim. Mannlífið var iðandi, enda nokkrir dagar í ólympíuleikana, og naut ég þess að vera komin í eina helstu tískuborg Evrópu. Íbúarnir nutu sín í sumarblíðunni, klæddir sínum eigin persónu- lega stíl, og var ég einhvern veginn búin að undirbúa mig fyrir þessa sömu fjölbreytni heima á Íslandi. Vonir mínar brugðust og á móti mér tók þessi sama hlutlausa tíska sem ég kvaddi fyrir tveimur mánuðum. Það hefði þó ekkert átt að koma mér á óvart, þar sem ég er full meðvituð um hvernig við höfum alltaf verið að eltast við sömu tísku og næsti maður. Það er kannski einangrunin sem gerir okkur svona og hefur tísku- ramminn hér á landi alltaf verið svona lítill og þröngur. Lítið úrval er á tískuvörum hér á Íslandi, samanborið við nágrannalöndin sem hafa ógrynni af stórum og ódýrum tískuvöruverslunum. Hér leitumst við bara eftir örygginu í þægindarammanum og klæðum okkur eins og restin, til að skera okkur ekki úr fjöldanum. Of mikið Photoshop Tískutímaritið Vogue, sem er eitt virtasta í sínum flokki, hefur fengið á sig mikla gagnrýni upp á síðkastið vegna ofnotkunar á myndvinnsluforritinu Photo­ shop. Júní­tölublað kínversku útgáfunnar vakti upp mikla umræðu þar sem fótur hollensku fyrirsætunnar Doutzen Kroes var fjarlægður. Nú hefur sagan endurtekið sig, aðeins tveimur mánuðum síðar, en á forsíðu nýjasta tölublaðs rússneska Vogue vantar hönd á fyrirsætuna Natasha Poly. Ritstjórar tímaritanna hafa fundið fyrir mikilli reiði lesenda vegna þessara síðustu tölu­ blaða, enda óraunverulegar ímyndir sem prýða síður tíma­ ritsins: Fyrirsætur undir kjör­ þyngd eru gerðar grennri, húðin gerð óaðfinnanleg og nú líkams­ partar teknir af. Hvað næst? Sjálfsöryggið heillar mest „Sjálfsöryggi er nauðsynlegasti „aukahlutur- inn“ sem kona getur borið eða klæðst,“ skrif- aði hátísku- hönnuðurinn Michael Kors á samskipta- vefinn Twitter á dögunum. Hann hefur verið duglegur við að láta skoðanir sínar í ljós undanfarið og fátt eitt virðist honum óviðkomandi: „Það er ekkert eins heillandi og kona sem er sjálfstæð í klæðavali. Hún sker sig úr fjöldanum.“ Styrktarsjóður MAC stækkar Styrktarsjóður snyrtivörufyrirtækisins MAC, sem berst gegn útbreiðslu HIV­veirunnar í heiminum, hefur stækkað ört á þessu ári. Allur ágóði af sölu Viva Glam, varalitur sem kom út í byrjun ársins, rennur til sjóðsins og hefur hann selst fyrir rúmar 31 milljarða ís­ lenska króna. Söngkon­ an Nicki Minaj og Ricky Martin eru sérstaklega í því að kynna varalitinn og liggur fyrir að þau hafa gert eitthvað rétt í auglýsingaherferðinni. Fyrst var liturinn fram­ leiddur í takmörkuðu magni en vegna eftir­ spurnar var horfið frá því og mun hann vera fáanlegur út árið og vonandi lengur. Föstudagur Skór: Jeffrey Campbell Sokkar: Kron Kjóll: Birna Mánudagur Skór: Converse Buxur: Vero Moda Bolur: Topshop Jakki: Levi’s Fimmtudagur Skór: Kron Sokkabuxur: Copra Kjóll: Gamall frá ömmu Miðvikudagur Skór: Converse Stuttbuxur: H&M Belti: H&M Bolur: Zara Stykki: Topshop Þriðjudagur Skór: Timberland Buxur: Zara Bolur: H&M Jakki: Keyptur í Liverpool

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.