Fréttatíminn


Fréttatíminn - 03.08.2012, Side 32

Fréttatíminn - 03.08.2012, Side 32
32 bílar Helgin 3.-5. ágúst 2012  Ford Nýr Focus sT væNTaNlegur í árslok  HoNda Nýr cr-v Tæknivædd fjórða kynslóð væntanleg Ný kynslóð, sú fjórða af Honda CR-V er væntanleg á Evr- ópumarkað í haust en hún hefur verið á Bandaríkjamark- aði frá því í desember síðastliðnum. Bíllinn er framleiddur í verksmiðjum Honda í Swindon á Englandi. Bíllinn er í senn léttari og eyðslugrennri en fyrirrennarinn, að því er fram kemur í samantekt Félags íslenskra bifreiðaeigenda, en innanrými eykst. Bíllinn verður í byrjun boðinn með tveimur vélartegund- um: Bensínvél 2,0 i-VTEC, 155 hestöfl/195 Nm, sem losar 174 g/km af CO2 (eldri útgáfa 150 hestöfl/190 Nm, 195 g/ km) og endurbættri 2,2 lítra i-DTEC dísilvél, sem losar 153 g/km af koltvísýringi samanborið við 171 g/km frá eldri út- gáfunni. Afköstin eru óbreytt eða 150 hestöfl og 350 Nm. „CR-V með framhjóladrifi verður nýr valkostur en bíll- inn hefur fram að þessu eingöngu verið fjórhjóladrifinn,“ segir enn fremur á síðu FÍB. „Framhjóladrifinn CR-V er eyðslugrennri og umhverfisvænni og koltvísýrings los- unin með i-VTEC vélinni fer niður í 170 g/km. 2,2 lítra i-DTEC dísilvélin verður aðeins í boði í fjórhjóladrifnu út- gáfunni en frá og með sumri 2013 á að bjóða upp á 1,6 lítra i-DTEC dísilvél sem losar aðeins 99 g/km af CO2 í fram- hjóladrifs CR-V. Nýi bíllinn er tæknivæddari en eldri útgáfur. CR-V 2013 er m.a. með nýjan búnað – Eco Assist System – sem hjálpar ökumanni að spara eldsneyti. Start/stopp verður staðalbúnaður í öllum beinskiptum gerðum bílsins. Innri hönnun bílsins hefur verið breytt til að auka inn- rými. Bíllinn er minni um sig en núverandi útgáfa eða 30 mm styttri og 5 mm lægri. Farangursrýmið hefur vaxið og er 589 lítrar.“ Ný kynslóð af Honda CR-V er væntanleg á Evrópumarkað í haust. -þegar gæði verða lífsstíll Vantar glæsivagna í salinn. Frítt í júlí og ágúst. Við seljum bílinn þinn meðan þú slappar af Mikil sala! Vilt þú selja bílinn þinn? Settu hann á skrá hjá okkur frítt! Funahöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | hofdahollin@hofdahollin.is Funahöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 580 8900 | bilalind.is Fylgstu með okkur á Facebook Kia Optima er væntanlegur til Íslands í ágúst en um er að ræða nýjan bíl í d-stærðarflokki. Yfirhönnuður Kia, Þjóðverjinn Peter Schreyer, er maðurinn á bak við hina nýju og gerbreyttu Kia bíla sem hafa sópað til sín verðlaunum um allan heim fyrir fallega hönnun. Schreyer var áður yfirhönnuður hjá BMW og Audi en hefur nú söðlað um og hefur heldur betur tekið til höndunum hjá suður-kóreska bílaframleiðandanum sem hefur að undanförnu sent frá sér hvern endurhannaða bílinn á fætur öðrum. Kia er sá bílaframleiðandi sem vex hraðast um þessar mundir, að því er fram kemur hjá bílaumboðinu Öskju, og hérlendis er Kia í þriðja sætinu yfir mest selda bílamerkið á árinu. Askja mun meðal annars bjóða Optima með 1,7 lítra dísilvél sem skilar 136 hestöflum og auk þess verða fleiri útfærslur af bílnum í boði. Þess má geta að Kia Optima í Hybrid útfærslu komst í heimsmetabók Guinnes nýverið sem sparneytnasti hybrid bíll í heimi. Eftirspurn er eftir bílnum í Bandaríkjunum og Asíu og því hefur Kia, að sögn umboðsins, vart náð að anna eftirspurn hvað varðar framleiðslu hans. Mæla- borð Kia Optima er nútímalegt. Kia Optima er hannaður af Þjóðverjanum Peter Scheyer sem áður hannaði hjá þýsku bílaframleiðendunum BMW og Audi. Optima er nýr bíll frá Kia  opel Bíll sem Ber NaFN sToFNaNdaNs, adam Nýr smábíll frá Opel hefur fengið nafnið Adam. Hann heitir eftir stofnanda Opel- verksmiðjanna, Adam Opel. Bíll- inn verður kynntur á bílasýningunni í París í haust og er til dæmis væntan- legur á markað í Danmörku vorið 2013. Í danska Jótlandspóstinum kemur fram að GM, framleiðandi Opel og Vauxhall, fylgi í kjölfar margra bílaframleiðenda með framleiðslu smábíla þar sem kaupendum býðst að setja sitt persónulega mark á bílinn, meðal annars með fjörugu litavali. Af fyrstu myndum að dæma er Adam snotur í útliti og verður meðal annars keppinautur Fiat 500 sem notið hefur vin- sælda ytra þótt hann hafi ekki sést á götum hérlendis, auk þess sem hann mun keppa beint við hinn nýja Volkswagen Up, Audi A1 og Mini. Bíllinn er 3,70 metra langur, 30 sentímetrum styttri en Opel Corsa. Breiddin er 1,72 metrar. Hann er þriggja dyra og fjögurra manna. Í fyrstu verður Opel Adam boðinn með þremur gerðum bensínvéla, 1,2 líta 70 hestafla, 1,4 lítra 87 hestafla og 1,4 lítra 100 hestafla vél. Þessir bílar eru með 5 gíra kassa. Síðar verður bíllinn í boði með bensínvél með túrbó og beinni innspýtingu. Sú gerð verður með 6 gíra kassa. Opel Adam er, eins og margir nýir bílar nú, með „stop/start“ tækni, stöðugleikastýringu, brekkuaðstoð og rafdrifnu stýri. Í dýrari gerðunum verður upplýsingakerfi sem hægt verður að tengja iPhone eða Android- símum sem nýtast meðal annars sem leiðsögukerfi. Upplýsingarnar koma fram á 7 tommu skjá. Velja má mismunandi felgustærð undir bílinn, 15 til 18 tommur. Opel Adam, nýi smábíllinn verður kynntur á bílasýningunni í París í haust. N ýr Ford Focus ST er væntan-legur í lok árs 2012. Hann er afkastamikill og með 2.0 lítra EcoBoost bensínmótor með beinni innspýtingu og hverfilfor- þjöppu. Bíllinn er 250 hestöfl og tog- ar 340 Nm með 248 kílómetra há- markshraða á klukkustund, að því er fram kemur á síðu umboðsins, Brimborgar. Hann er 6,5 sekúndur að ná100 kílómetra hraða. Uppgefin eyðsla er 7,19 lítrar á hundrað ekna kílómetra. Þessi létti 4 strokka bensínmótor skilar betri frammistöðu en fyrir- rennarinn sem var með 2.5 lítra og 5 strokka vél, vegna bættrar túrbó- innspýtingar. Þrátt fyrir aukna af- kastagetu er bensínnotkun Ford Focus ST í blönduðum akstri 20 prósent minni. Losun koltvísýrings er 169 g/km. „Með innleiðingu hins háþróaða kerfis Ford Sport Steering System hefur verkfræðingum Ford tekist að gera ánægjulega akstursupplif- un enn betri,“ segir meðal annars á síðu Brimborgar. „Með innleiðingu kerfisins minnkar titringur í stýrinu sem getur gerst á framhjóladrifn- um bílum þegar hröðun er mikil. Auk þess hefur stöðugleikavörnin (ESP) verið uppfærð með áherslu á sportlega akstursupplifun. Stöð- ugleikavörnina er hægt að stilla á þrjá mismunandi vegu eftir vega- og veðurskilyrðum auk þess sem ökumenn geta valið hvenær þeir virkja hana. Vilji ökumenn hins vegar hrárri og óheflaðri aksturs- upplifun geta þeir slökkt á stöðug- leikavörninni. Ford Focus ST er með trapisu- laga grilli að framan sem gefur bíln- um sterkan svip, vindskeið á þakinu og tvöfalt púströr sem gefur bílnum sportlegt útlit. Bíllinn er með Rec- aro-sportsætum sem eru að hluta til úr leðri. Hinn nýi Ford Focus ST mun fást í sex mismunandi litum og í tvenns konar gerðum, ST1 og ST2. ST1- gerðin er meðal annars með sér- hönnuðum Recaro-sætum og 18 tommu álfelgum. Fyrir þá sem vilja meira íburð er ST2-gerðin meðal annars búin Windsor-leðursætum sem hægt er að stilla á átta mismun- andi vegu, Bi-xenon framljósum og LED-stöðuljósum. Öflugur en sparneytinn Nýr Ford Focus ST er sportlegur og kraftmikill en eyðslan er minni en hjá fyrirrennaranum. Nýr smábíll verður kynntur í haust

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.