Fréttatíminn - 03.06.2011, Blaðsíða 35
Eignastýring • Markaðsviðskipti • Fyrirtækjaráðgjöf
Arctica Finance er framsækið, óháð og sjálfstætt
fjármálafyrirtæki sem hefur starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu.
Fyrirtækið er í eigu starfsmanna sem búa að áralangri og
víðtækri reynslu af innlendum og erlendum fjármálamörkuðum.
www.arctica.is | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi | Sími 513 3300
Má ekki blása á vandann?
„Greiðslubyrði hárskera þyngist“
Nýsamþykktir kjarasamningar
koma mjög illa við lítil fyrirtæki
í þjónustuiðnaði, að sögn
Jóns Aðalsteins Sveinssonar
hárgreiðslumeistara.
Skjaldborgin komin í leitirnar
„Bankar felli niður
skuldir“
Bankarnir eiga að
sjá um að fella
niður skuldir
heimilanna.
Þetta sagði Árni
Páll Árnason,
efnahags- og
viðskiptaráðherra,
í viðtali á
Morgunvaktinni á Rás 2.
Bíða spenntir eftir því næsta
„Finna leið til að hagnast á eldgosi“
Hugvitssamir Íslendingar voru fljótir
að nýta færið þegar gjósa tók í
Grímsvötnum. Í ferðamannaverslunum
má nú þegar finna boli með áletrunum
sem vísa í gosið. Þar má einnig kaupa
eldfjallaösku úr tveimur síðustu gosum.
Víagra á línuna
„Getulausir til að taka á styrkjunum“
Þingmaður Samfylkingarinnar segir
stjórnmálaflokka hafa verið getulausa
við að taka á styrkjamálum.
Áhættuhegðun?
„Íhuga að kaupa krónur útlendinga“
Lífeyrissjóðir skoða krónueign
útlendinga sem mögulegan
fjárfestingarkost.
Hefst útrásin þá á ný?
„Kaflaskil í íslensku efnahagslífi“
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður
Samfylkingarinnar og forsætisráðherra,
segir að ekki hafi verið bjartara yfir
íslensku efnahagslífi um langa hríð,
raunveruleg lífskjarasókn sé hafin.
Evrópustjórnin í verki
„Vill tollavernd gengi Ísland í ESB“
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, segir að
samningamenn Íslands hljóti að
krefjast tollverndar fyrir íslenskar
landbúnaðarafurðir í viðræðum um
aðild Íslands að ESB, þótt engir tollar
séu lagðir á vörur milli landa innan
sambandsins.
Átti hún ekki að vera með
hæstu launin?
„Ofurlaunaliðið fær ekki að soga til sín
hagvöxtinn“
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður
Samfylkingarinnar, segir að
ofurlaunaliðið, fjárglæframennirnir og
stóreignaelítan fái ekki að soga til sín
hagvöxtinn sem fram undan sé.
Vikan sem Var