Fréttatíminn - 03.06.2011, Qupperneq 36
Langar helgar og
Jónsmessa í kaupbæti
M
Maí er liðinn og vorið búið, að minnsta
kosti ef miðað er við almanakið, en það
lét lítt eða ekki sjá sig. Trén hafa að
vísu laufgast en þau gerðu það frekar af
gömlum vana en að veður hafi leyft þeim
slíkan munað. Það hefur verið kalt sunnan
heiða en hreinn og klár vetur á hinum end
anum á landinu. Myndir birtust af fuglum
á hreiðri síðla í maí þar sem aðeins sást
goggurinn upp úr snjónum. Jarðýtur þurfti
til að opna Fjarðarheiði svo að hundruð
ferðamanna úr ferjunni Norrænu kæmust
frá Seyðisfirði í liðinni viku.
Íslenskir sumarmánuðir eru aðeins þrír,
júní, júlí og ágúst. Í raun eru þeir varla
meira en tveir því fyrri hluti júní tilheyrir
eiginlega síðasta hluta vorsins og síðari
hluti ágústmánaðar aðdraganda hausts
þegar kvöldmyrkur fer að verða merkjan
legt á ný.
Það er því mikilvægt að nýta þennan
stutta tíma vel. Engu skal spáð um veður
þessa þrjá opinberu sumarmánuði sem í
hönd fara. Því verðum við að taka af æðru
leysi og nýta þá daga sem gefast. Nýbyrj
aður júní býður okkur ólíkt fleiri og betri
kosti en hinn liðni vetrarmánuður, maí.
Það var enginn frídagur í maí að þessu
sinni. Meira að segja bar verkalýðsdaginn
upp á sunnudag. Það var því ekki aðeins
skítviðri og öskufall sem angraði okkur í
maí heldur samfellt púl. Það á ekki við um
þann bjarta júní sem byrjaði á miðvikudag
inn. Hann bauð strax upp á frídag í gær,
fimmtudag. Páskarnir voru óvenjuseint
á ferðinni þetta árið. Það þýðir að upp
stigningardagur var 2. dag júnímánaðar.
Það er með því lengsta sem sá ágæti dagur
nær inn í sumarið því hann getur verið á
tímabilinu frá 30. apríl til 4. júní. Eins og
biblíufróðir menn vita er uppstigningar
dagur, þegar minnst er himnafarar Krists,
fjörutíu dögum eftir páska.
Uppstigningardagur er einn af helgi
dögum þjóðkirkjunnar og hið sama gildir
um hvítasunnuna sem er ein af sameigin
legum höfuðhátíðum kristinnar kirkju.
Hún markar lok páskatímans, sem stóð í
fimmtíu daga. Nútímamenn líta þó helst til
hvítasunnunnar sem fyrstu þriggja daga
sumarhelgarinnar, að minnsta kosti ef
páskar eru ekki svo snemma að verulega
snjói þá helgi. Hvítasunnan færir okkur
sem sagt annan aukafrídag í þessum mán
uði, mánudaginn 13. júní.
Vikan sem þá byrjar er óvenjuvæn
fyrir hinn vinnandi lýð, aðeins þriggja
daga, því þjóðhátíðardagurinn, 17. júní,
er á föstudeginum. Það eru því í vændum
tvær þriggja daga helgar í röð. Húllumhæ
vegna þjóðhátíðardagsins verður óvenju
mikið núna því rétt tvö hundruð ár eru frá
fæðingu Jóns Sigurðssonar, þjóðhetju Ís
lendinga. Það má því búast við að grillarar
þessa lands verði orðnir ansi maríneraðir
þegar kemur fram yfir miðjan mánuðinn,
svo fremi að bærilega viðri.
Við aðra hátíðisdaga í júní bætist sjó
mannadagurinn sem verður haldinn hátíð
legur næstkomandi sunnudag, 5. júní. Þá
verður flotinn í landi og væntanlega hressi
lega tekið á því eftir að lýkur koddaslag og
öðrum skemmtiatriðum í tilefni dagsins.
Fleira skemmtilegt er framundan í júní;
sumarsólstöður hinn 21. og sjálf Jónsmess
an 24. júní. Jónsmessu ber upp á föstudag
að þessu sinni, sem býður upp á enn eina
stuðhelgina í þeim júní sem bíður okkar.
Margt má segja um veðurfar á landinu bláa
en það er þó fátt sem tekur björtum sumar
nóttum fram.
Pistilskrifarinn hefur víða farið um land
ið, skoðað nánast hvern krók og kima, en
einn staður hefur þó orðið út undan enda
tæpast í alfaraleið. Það er Grímsey, nyrsti
hluti landsins og sá eini sem teygir sig
norður fyrir heimskautsbauginn. Úr þessu
á hins vegar að bæta á Jónsmessu, þegar
nótt er björtust norður þar og sólin sest
ekki. Það er tilhlökkunarefni að fara þang
að í góðra vina hópi ötulla göngumeyja og
barstyðjenda í piltahópi.
Það er auðvitað ekki sjálfgefið að
skýjafar verði með þeim hætti í Grímsey á
Jónsmessu að til sólar sjáist en þá áhættu
verður að taka. Ef þungskýjað verður – eða
jafnvel rigning – verða menn að snúa sér
að öðru en sólarglápi. Hlera má hljóðið í
heimamönnum, ganga um og skoða fugla.
Síðast en ekki síst má tjútta í félagsheim
ilinu og fá sér Kalda af Árskógssandi – og
kannski annan til þegar líður á nóttina.
Lítil hætta er á því að menn freistist til
að aka heim af ballinu, ef skilningur á að
stæðum er réttur. Stutt mun vera á milli
húsa, sýslumaðurinn uppi á fastalandinu
og bíllinn heima á stæði í Kópavoginum.
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Fylgist með störfum Stjórnlagaráðs og hafið áhrif á endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins.
Bein útsending frá sameiginlegum fundi ráðsins er á hverjum fimmtudegi kl. 13 á vefsíðu ráðsins:
www.stjornlagarad.is. Fundirnir eru opnir almenningi. Öll gögn ráðsins má finna á vefsíðunni.
Stjórnarskrá lýðveldisins varðar okkur öll
Stjórnlagaráð, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík - sími: 422-4400 - netfang: skrifstofa@stjornlagarad.is - vefslóð: www.stjornlagarad.is
Vefslóð Stjórnlagaráðs: www.stjornlagarad.is
Nýtt!
Hvað ætlar þú
að hafa í matinn?
Fært til bókar
Mótun foringjans
Jóhanna Sigurðardóttir tók við for-
mennsku í Samfylkingunni við óvenju-
legar aðstæður. Efnahagslegt hrun varð
á sama tíma og Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, formaður flokksins, veiktist. Jó-
hanna naut trausts umfram aðra á þeim
tíma og tók við keflinu en áður var gengið
út frá því að hún væri á sínu síðasta
kjörtímabili eftir langa þingsetu enda
er hún aldursforseti Alþingis. Að vonum
horfa Samfylkingarmenn því til arftaka
Jóhönnu, hvort sem það verður árinu fyrr
eða síðar. Þar hafa tveir menn helst verið
nefndir til sögunnar, Dagur B. Eggerts-
son, varaformaður flokksins og leiðtogi
Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykja-
víkur, og Árni Páll Árnason, efnahags-
og viðskiptaráðherra. Þeir kepptu um
varaformannssætið þar sem Dagur hafði
betur. Hvorugur hefur þó náð að festa
sig í sessi sem augljós arftaki Jóhönnu.
Samfylkingin náði aðeins þremur borgar-
fulltrúum í borgarstjórnarkosningunum í
fyrra, undir forystu Dags. Árni Páll hefur
ekki þótt afgerandi í sínum ráðherra-
embættum. Þriðji maðurinn hefur verið
á kantinum en þess hefur verið beðið að
hann sýndi forystutakta. Það gerði Guð-
bjartur Hannesson velferðarráðherra
í Kastljósviðtali á mánudagskvöldið.
Kastljós hefur, svo sem kunnugt er,
verið með þáttaröð um læknadóp. Vel-
ferðarráðherrann þótti taka með festu á
vandanum. Hann mætti vel undirbúinn,
yfirvegaður og boðaði aðgerðir. Guð-
bjartur var með landsföðurlegt yfirbragð
sem beðið hefur verið eftir, talaði af
festu en æsingslaust. Margir eru orðnir
langþreyttir á ferköntuðum foringjum
og fúkyrðaflaumi þar sem meira er í orði
en á borði. Þeir sjá framtíðarforingjann í
manni eins og Guðbjarti, yfirveguðum og
málefnalegum. Foringinn er í mótun.
32 viðhorf Helgin 3.-5. júní 2011