Fréttatíminn - 03.06.2011, Side 50
46 bíó Helgin 3.-5. júní 2011
Þ eir Patrick Stewart og Ian McKellen léku Charles Xavier
og Eric Lensherr, höfuðand-
stæðingana í þríleiknum, en
nú hafa James McAvoy og
Michael Fassbender tekið
við hlutverkum þeirra í fjórðu
myndinni, X-Men: First Class,
sem segir forsöguna að því
sem þegar er komið.
Xavier og Lensherr, sem
eru þekktari sem Prófessor
X og Magneto, hafa ólíkar
áherslur í réttindabaráttu
hinna stökkbreyttu. Prófess-
or X rekur skóla fyrir ungar
stökkbreytur sem hann leitar
uppi og reynir síðan að leið-
beina þeim og kenna þeim
að nota hæfileika sína öllum
til góðs, venjulegu fólki og
stökkbreytum. Magneto er
aftur á móti brenndur af
biturri lífsreynslu en hann
missti foreldra sína í útrým-
ingarbúðum nasista þar sem
hann þurfti sjálfur að þola
ýmsar pínslir.
Xavier trúir því að stökk-
breytur og manneskjur geti
lifað í sátt og samlyndi á með-
an Magneto hefur því miður
lært ansi margt af kvölurum
sínum. Hann lítur á stökk-
breyturnar sem æðri kyn-
stofn sem eigi að erfa jörðina
og vill því taka á mannskepn-
unni af fullri hörku.
Singer tefldi fram mikl-
um stjörnufans í X-Men árið
2000. Auk þeirra Stewarts og
McKellens stigu fram í ýms-
um gervum Hugh Jackman
(Wolverine), Famke Janssen
( Jean Grey), Halle Berry
(Storm), Anna Paquin
(Rogue) og Rebecca Romijn
(Mystique). Áherslan hjá Sin-
ger var mest á Wolverine og
uppruna hans enda gaurinn
vinsæll í myndasöguheimin-
um og árið 2009 lék Jackman
hetjuna í hliðarverkefninu X-
Men Origins: Wolverine.
Singer leyfði persónunum
að þróast milli mynda og með
því að teygja dæmið upp í þrí-
leik fékk hann svigrúm til
að grafa dýpra í fortíð lykil-
persónanna og gefa vísbend-
ingar um það sem beið þeirra
í framtíðinni.
Singer sá sér samt ekki fært
að klára þrennuna þannig að
Brett Ratner stýrði X-Men:
The Last Stand. Sú mynd gaf
þeim tveimur fyrri nokkuð
eftir en lokaði samt sem áður
þrennunni sómasamlega.
X-Men eiga enn helling
inni og því ekki að undra þótt
ráðist hafi verið í gerð fjórðu
myndarinnar. En í stað þess
að halda áfram að spinna sög-
una frá The Last Stand er nú
farið aftur í tíma og sagt frá
því þegar Charles Xavier og
Erik Lensherr kynnast árið
1963. Þeim verður vel til vina
og sameinast gegn öflugum
óvini en áherslumunur þeirra
í samskiptum við umheiminn
rekur síðar slíkan fleyg á milli
þeirra að þeir verða erkifjend-
urnir Prófessor X og Magneto.
x-Men Aftur fyrir byrjunArreit
bíódóMur x-Men: first ClAss
fruMsýnd
Stökkbreyttur forleikur
Ofurhetjurnar sem kenndar eru við X eiga sér nokkuð langa sögu. Myndasöguhöfundurinn Stan
Lee og teiknarinn Jack Kirby kynntu X-Men til sögunnar í hasarblöðum árið 1963 og leikstjórinn
Bryan Singer leiddi sókn X-fólksins í bíó árið 2000 með fyrstu myndinni í þríleik um stökkbreytt
ofurmennin sem berjast jafn innbyrðis sem og fyrir tilverurétti sínum í samfélagi mannanna.
s á dásamlegi og alltof sjaldséði leikari Kevin Bacon skýtur
hér upp kollinum í útrýmingarbúð-
um nasista. Hann leikur Sebastian
Shaw, einhvers konar yfirnáttúru-
lega útgáfu af Jósef Mengele, sem
kemst heldur betur í feitt þegar á
fjörur hans rekur gyðinginn unga,
Erik Lensherr. Sá hefur þann magn-
aða hæfileika að geta sveigt og beygt
málma eins og honum sýnist. Á með-
an Erik litli missir foreldra sína og
þjáist í klónum á Shaw elst hinn ungi
Charles Xavier upp í vellystingum en
vanrækslu á óðali ættar sinnar.
Síðan víkur sögunni til ársins
1963. Erik er orðinn fullorðinn og
rekur slóð Shaws um víða veröld,
harðákveðinn í að drepa hann. Xav-
ier er hins vegar að ljúka námi í
erfðafræðum enda heltekinn af við-
fangsefninu. Eðlilega kannski þar
sem sjálfur er hann stökkbreyttur
og getur lesið hugsanir.
Shaw er sturluð stökkbreyta sem
ætlar sér að etja Bandaríkjamönnum
og Sovétmönnum út í heimsstyrjöld
með því að véla Rússa til að koma
fyrir kjarnorkuflaugum á Kúbu.
Á meðan Shaw bruggar sín laun-
ráð kynnast þeir Xavier og Erik og
með hjálp CIA smala þeir saman
slatta af stökkbreytum og áður en
yfir lýkur þarf þessi ósamstæði hóp-
ur að taka á honum stóra sínum til
þess að stoppa Shaw og bjarga heim-
inum.
X-Men: First Class er ofurhetju-
mynd í hæsta gæðaflokki og hér er
teflt fram úrvalsliði stökkbreytna.
Bacon er frábær skúrkur, James
McAvoy er fágunin og gæskan upp-
máluð í hlutverki Xaviers en mest
gustar af Michael Fassbender.
Töffið sem lekur af honum er svo
ískalt og flott að hann hefur ekkert
fyrir því að vera aðalgæinn í þessu
stökkbreytudrama og maður getur
ekki annað en haldið með Magn-
eto og öfgahugmyndum hans. Allt
smellur þetta saman, skemmtileg
saga, spenna og áhugaverðar pers-
ónur, í grjótharða heild sem er
krydduð fínum nördahúmor.
Þórarinn Þórarinsson
Kung Fu
Panda 2
Pandabjörninn og
fyrrum núðlukokkurinn
Pó er í góðum málum
eftir þrautagöngu og mann-
dómsvígsluna sem hann
gekk í gegnum í Kung Fu
Panda árið 2008. Nú er Pó
orðinn Drekabardagakappi
og verndari Friðardalsins,
þrátt fyrir að hann sé enn
í yfirvigt. Pandan káta er
þó ekki lengi í Paradís og
þegar fregnir berast af
skúrki sem ætlar sér að ná
yfirráðum í gervöllu Kína
með leynivopni sem mun
gera út af við Kung Fu-
bardagalistina. Þá eru góð
ráð dýr og Pó leggur upp
í ferðalag ásamt félögum
sínum, Tigress, Crane,
Mantis, Viper og Monkey,
til að mæta óvinunum. Pó
þarf á allri sinni einbeitingu
að halda til að geta staðist
hinu illa snúning og þarf að
leita aftur til uppruna síns
og finna þar leyndardóma
sem veita honum þann
styrk sem hann þarf. Sem
fyrr mætir stórskotalið úr
Hollywood og talar fyrir
persónur teiknimyndar-
innar. Gamanleikarinn Jack
Black ljær Pó rödd sína,
Angelina Jolie talar fyrir
Tigress, Lucy Lu fyrir Viper,
David Cross fyrir Crane og
Jackie Chan fyrir Monkey.
Aðrir miðlar: Imdb: 7,8.
Rotten Tomatoes: 77%.
Metacritic: 68/100.
Fincher lofar góðu
Deildar meiningar hafa verið uppi um þá
ákvörðun að endurgera sænsku spennu-
myndina Karlar sem hata konur fyrir Banda-
ríkjamarkað en ef eitthvað er að marka fyrstu
stikluna sem birt hefur verið úr væntanlegri
jólamynd Davids Fincher, The Girl With
the Dragon Tattoo, er Fincher vandanum
vel vaxinn. Sýnishornið er drungalegt enda
dynur gamli Zeppelin-slagarinn Immigrant
Song með Karen O yfir kaldhömruðum
norrænum veruleikanum sem birtist í bókum
Stiegs Larsson. Daniel Craig er ábúðarmikill
sem Mikael Blomkvist og úr fjarlægð virðist
Rooney Mara vera ágæt Lisbeth Salander
þótt samanburður við Noomi Rapace í frum-
myndinni verði henni líklega alltaf í óhag.
X-Men eiga
enn hell-
ing inni og
því ekki
að undra
þótt ráðist
hafi verið í
gerð fjórðu
myndar-
innar.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Xavier og Lensherr taka skák í mesta bróðerni í X-Men: First Class enda perluvinir.
Úrvalsdeild ofurhetja
Angist unga fólksins
Græna ljósið frumsýnir Myth of the
American Sleepover í Bíó Paradís í dag,
föstudag. Þetta er fyrsta mynd leik-
stjórans Davids
Roberts Mitchell
sem þykir hafa búið
til meistaraverk úr
litlum fjármunum
og hópi óreyndra
leikara. Hér fléttast
saman sögur af ungu
fólki í leit að sínum
fyrsta kossi, partíum og ævintýrum áður
en raunveruleiki skólalífsins tekur aftur
völdin. Eins og gefur að skilja rætist ekki
alltaf úr barnslegu dagdraumunum en
það eru hins vegar hin óvæntu augnablik
sem móta unglingana fyrir lífstíð.
Af sem áður var. Prófessor X sækir sinn gamla félaga
Magneto heim í fangelsi í The X-Men og þeir taka eina
bröndótta þótt litlir kærleikar séu nú með þeim.
Töffið lekur af
Michael Fassbender.
Pandan Pó leggur
land undir fót ásamt
félögum sínum.
DiCaprio gæti
orðið skúrkur
Orðrómur er kominn á kreik um
að Leonardo DiCaprio muni
leika aðalskúrkinn Calvin Candie
í spaghettí-vestr-
anum Django
Unchained
sem Quentin
Tarantino er
að undirbúa.
Tarantino er
sagður hafa haft
hug á samstarfi
við DiCaprio um
nokkurt skeið og
jafnvel séð hann
fyrir sér sem
ófétið Hans Landa í Inglorious
Basterds en Christoph Walz
gerði þeirri persónu síðan eftir-
minnileg skil. Talið er að Tarantino
hafi fyrst skrifað hlutverkið með
DiCaprio í huga en þegar leikarinn
gaf ekki kost á sér hafi hann
breytt því og lagað persónuna
að Waltz.
ódýrt alla daga
33%afsláttur
grill ð
Verð áður 1498 kr. kg
grísakótilettur, magnpakkning
998kr.kg