Fréttatíminn - 03.06.2011, Blaðsíða 56
52 tíska Helgin 3.-5. júní 2011
Fylgjum óskráðum
reglum í klæðavali
Það er auðséð og vitað að kynslóðir klæða
sig ólíkt. Ákveðin tíska fylgir hverju aldurs-
skeiði sem hentar vel líkamsburði, virðingu
og lífsháttum. Oft líta eldri kynslóðir niður
á hinar yngri, hneykslast og skammast og
á sama tíma gagnrýnum við fatastíl þeirra
eldri. Tískuverslanir keppast því við að
höfða til sem flestra og reyna að hafa fjöl-
breytilegt úrval af fötum.
Tíska karlmanna einkennist af meira frelsi
en kvenmanna. Líkamsburður okkar
kvennanna breytist mikið gegnum árin
og við þurfum á einhverjum tíma-
punkti að sleppa takinu á flegnu
bolunum, stuttu pilsunum og 15
cm hælunum. Virðulegri klæðn-
aður tekur við og við leggjum meiri
áherslu á aðra líkamsparta en brjóstin og
lærin. Karlmenn komast upp með meira
í klæðaburð og er ekki óvenjulegt að sjá
tvítugan strák og fimmtugan karlmann
klæðast sams konar fötum.
Það er mér minnisstætt þegar ég, ung að
árum, tók ömmu mína í meikóver og gerði
hana að átján ára unglingi. Það heppnaðist
vel en myndi aldrei virka í okkar samfélagi.
Fólk snýr sér við, horfir á eftir einstak-
lingnum og hneykslast á óviðeigandi klæða-
burði. Það er eitthvert ákveðið lögmál
sem við Íslendingar höfum sett okkur
og við þurfum að fylgja þessum óskráðu
reglum.
Dóra Júlía Agnarsdóttir er 18 ára
nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð
og Danslistaskóla Báru. Einnig dansar hún
með danshópnum Rebel sem kemur fram á
alls konar viðburðum.
„Ég myndi segja að stíllinn minn væri
mjög fjölbreyttur. Sixties-stíllinn er mér
alltaf mikil fyrirmynd og ég kaupi fötin
mín mest í Topshop og þegar ég kemst út
er Urban Outfitters, H&M og American
Apparel í miklu uppáhaldi. Mér finnst líka
mjög gaman að fara á götumarkaði og í
Kolaportið.
Edie Sedgwick frá sjöunda áratugnum
er í miklu uppáhaldi hjá mér og var mikil
tískufyrirmynd. Smekkinn fyrir stuttu hári
og stórum eyrnalokkum fæ ég frá henni.
Einnig fæ ég mikinn innblástur frá tísku-
tímaritunum W, Vogue, ID og fleiri.“
Sjöundi áratugurinn í miklu uppáhaldi
5
dagar
dress
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Þriðjudagur
Skór: GS skór
Leggings: Gina Tricot
Skyrta: American Apparel
Hálsmen: Spúútnik
Eyrnalokkar: Topshop
Mánudagur
Kjóll: Topshop
Skór: H&M
Eyrnalokkar: Gyllti kötturinn
Miðvikudagur
Skór: Barcelona
Buxur: Gamlar af mömmu
Bolur: Topshop
Eyrnalokkar: Topshop
Föstudagur
Skór: Sautján
Sokkabuxur: H&M
Kjóll: Baby Phat
Eyrnalokkar: Gyllti kötturinn
Fimmtudagur
Skór: Carolina Boix
Buxur: Kolaportið
Bolur: Gina Tricot
Eyrnalokkar: Gyllti kötturinn
Heimilislausa tískan sló í gegn
Olsen-systurnar hafa
alltaf verið þekktar fyrir
fatastílinn sem minnir helst
á tísku heimilislausra. Þær
komu þeirri tísku af stað
og hafa verið útnefndar
sem helstu frumkvöðlar
hennar. En á dögunum
komu þær með skýringu á
þessu klæðavali og sögðu
þetta vera ákveðna vernd
fyrir fjölmiðlum. Þegar
þær voru yngri og gengu í
skóla, reyndu þær að draga
sem mest úr athyglinni
og skelltu sér í stór, víð
og þægileg föt. Flókið
hár, skítugir skór og víðar
mussur eru einkennandi
fyrir tvíburana, stíllinn
festist við þær og varð svo
að helsta tískutrendi síðari
ára.
Nýjar naglalakkslínur frá
fyrirtækinu OPI hafa verið
margar á árinu og allar hafa
þær slegið rækilega í gegn.
Nú hefur fyrirtækið lekið
út upplýsingum um nýjustu
línuna sem á að setja á
markað í september næst-
komandi, OPI-Miss America.
Keppnin Ungfrú Ameríka
verður haldin núna í júní í Las
Vegas og munu núverandi
Ungfrú Ameríka, Rima Fakih,
og Ungfrú Alheimur, Ximena
Navarrete, kynna línuna á
keppninni. Mikill glamúr og
glæsileiki einkennir línuna
og mun hvert lakk heita eftir
keppanda í Ungfrú Ameríka.
Lakk sem heitir
eftir keppendum
Tara stelur hug-
mynd Louboutain
Í síðustu viku lögsótti
skóhönnuðurinn Christian
Louboutain fyrirtækið YSL
fyrir að hafa stolið rauða sól-
anum hans. Rauði sólinn, sem
er að finna undir himinháa
hælnum, hefur verið ein-
kennismerki Louboutain en
skódeild YSL tók upp á því að
hanna skó með rauðum sóla.
Í öllum látunum hefur hin
sextán ára Tara Haughton
frá Írlandi hafið framleiðslu á
sólum í öllum litum og hefur
rauði sólinn að sjálfsögðu
selst betur en nokkur annar.
Hún selur sólana á tæpar
3.000 krónur og eru þeir
límdir með sérstöku lími
undir skóna. Fyrirtækið
hennar vex ört og hún er
komin með tvo starfsmenn
í fullri vinnu sem búa til og
selja sólana. Nú er spurning
hvort Louboutain mun einnig
lögsækja Töru.
HELGARBLAÐ
Þú getur nálgast
Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum
N1 um land allt