Fréttatíminn - 03.06.2011, Blaðsíða 62
K vikmyndagerðarmaðurinn Kári Schram hefur undanfarin ár safnað
gömlum filmuupptökum, ljósmyndum
og öðru myndefni sem til er frá gamla
Melavellinum sem eitt sinn var í Vesturbæ
Reykjavíkur. „Völlurinn var náttúrlega
miðpunktur alheimsins á Íslandi í 40-
50 ár. Það var ekkert að gerast í bænum
þannig að þetta var helsti samkomustaður
Íslendinga,“ segir Kári en hann hefur
leitað í smiðju margra þeirra sem vöndu
komur sínar á völlinn og fundið myndefni
frá árunum 1910-1987, þegar völlurinn var
rifinn.
Kári er að leggja lokahönd á 90 mínútna
mynd sem skiptist í fyrri og seinni hluta
en stefnt er að frumsýningu í sumar-
lok. Sýnishorn verður birt á heimildar-
myndahátíðinni Skjaldborg í júní. Myndin
hefur hlotið nafnið Blikk og segir sögu
allra þeirra góðu karla og kvenna sem
svitnuðu, blæddi og felldu tár í rykmett-
aðan völlinn á þessum árum.
„Hápunktur íslenskrar íþróttasögu
er tvímælalaust landsleikur Íslands og
Svíþjóðar á Melavellinum árið 1951. Þá
vann Ísland Svía í fótbolta en á sama tíma
kepptu frjálsíþróttamennirnir okkar á
stórmóti í Ósló. Í miðjum landsleiknum
var tilkynnt að Íslendingarnir
hefðu unnið bæði Dani og Norðmenn í
frjálsum íþróttum. Það varð allt gjörsam-
lega brjálað. Við vorum svo heppnir að
finna 16 mm filmuupptökur frá leiknum
sem sýna þessi augnablik,“ segir Kári.
Hann segir Melavöllinn ekki einungis
hafa verið merkilegan stað fyrir gullár
íþróttasögunnar heldur líka vettvang fyrir
mikilvæga umræðu, svo sem lýðveldispæl-
ingar. „Íslendingar áttu Norðurlanda- og
Evrópumeistara í öllum frjálsíþróttagrein-
um á þessum tíma og slíkur tími hefur
ekki komið aftur. Eins og Bjarni Fel
segir í myndinni þá efldist þjóðerniskennd
Íslendinga til muna á Melavellinum.“ -þt
KviKmyndir Heimildarmynd um melavöllinn
nína dögg öl og böl teKur sinn toll
Nístandi sársauki
í stuttmynd
Hún sá til
þess að ég
væri rauð-
sprengd og
veðruð.
Þ etta er stuttmynd sem Björn Hlynur er að gera og Rakel Garðarsdóttir framleiðir þannig
að það er nú svolítill Vesturports-keimur
af þessu,“ segir Nína Dögg. „Handritið er
ógeðslega flott. Átakanleg lítil saga sem
er vísun í ævintýrið um hana Gullbrá og
ég hlakka bara til að sjá útkomuna þegar
það verður búið að ganga frá öllu. Björn
Hlynur Haraldsson er mjög efnilegur
kvikmyndaleikstjóri, verð ég að segja.
En þetta er fyrsta stuttmyndin sem hann
leikstýrir.“
Þrátt fyrir að afleiðingar langvarandi
ólifnaðar hafi verið settar framan í Nínu
Dögg segist hún þó ekki vera sérstak-
lega illþekkjanleg í myndinni. „Neinei,“
segir hún og hlær. „Hún er bara vel
lifuð enda tekur öl og böl sinn toll. Það
sleppur enginn við það. Við vorum með
ótrúlega færan förðunarlistamann með
okkur, hana Áslaugu, og hún sá til þess
að ég væri rauðsprengd og veðruð. Þrút-
in af drykkju og ólifnaði. Það er nístandi
sársauki í þessu og maður finnur alveg
fyrir því að þetta er kona sem hefur tekið
fíkn sína fram yfir allt og valið að lífa í
skrýtnu samfélagi sem maður kannski
skilur ekki alveg.“
Nína Dögg segir Gullbrá í raun vera
undanfara stærri myndar sem Björn
Hlynur hefur verið með í sigtinu í dá-
góðan tíma. Það handrit hans byggist
á bókinni Bæjarins verstu en þar lýsti
utangarðsmaðurinn Hreinn Vilhjálms-
son hremmingum sínum í áfengis- og
lyfjaneyslu. „Björn Hlynur er búinn að
vera að vinna að þessu verkefni og þessi
mynd er svona smá upptaktur fyrir það.“
„Þetta bara rúllar,“ segir Nína Dögg
aðspurð um hvernig hún komist yfir öll
þessi verkefni á sama tíma. „Þetta kemur
alltaf í törnum. Það er bara svoleiðis.
Það er rosamikið að gera aðra vikuna og
aðeins minna þá næstu. Maður kvartar
ekki á meðan það er gangur í þessu.“
Nína Dögg verður á fleygiferð í allt
sumar og sér ekki fram á að geta blásið
úr nös fyrr en í ágúst. Hún er að byrja
í tökum á Heimsendi, nýrri sjónvarps-
þáttaröð sem Ragnar Bragason ætlar
að taka upp frá júníbyrjun og fram að
verslunarmannahelgi. „Það verður allt
á fullu fram í ágúst en þá ætla ég líka að
leyfa kúlunni að blómstra út. Af því að
ég er sem sagt með barn í maganum,“
segir Nína Dögg sem stefnir á allsherjar
slökun í sumarlok. toti@frettatiminn.is
Melavöllurinn var miðpunktur alheimsins
Nína Dögg Filipusdóttir er leikkona eigi einhöm en um þessar mundir túlkar hún húsmóðurina á
ýmsum tímaskeiðum í samnefndu verki Vesturports í Borgarleikhúsinu auk þess sem hún fer með
hlutverk í aukasýningum á Faust í sama leikkhúsi. Hún brá sér einnig nýlega í hlutverk útigangs-
konu í stuttmynd sem Björn Hlynur Haraldsson er að gera og sækir í söguna um Gullbrá.
Sletta af
sprengiefni
hjá GusGus
Arabian Horse, ellefta og
nýjasta plata GusGus, hefur
fengið glimrandi viðtökur gagn-
rýnenda og Dr. Gunni gekk svo
langt í Fréttatímanum í síðustu
viku að lýsa plötuna þá bestu
sem frá hljómsveitinni hefði
komið. Lögin á plötunni þykja
virkilega grípandi og líma sig
mörg hver vandlega á heilabörk
hlustenda. Athygli vekur að Atli
Bollason, einn aðalspaðinn í
Sprengjuhöllinni, er nefndur til
sögunnar sem meðhöfundur
tveggja laga. Atli býr í Kanada
þar sem hann unir hag sínum
vel og vill sem minnst gera úr
framlagi sínu á plötunni. Hann
hafi bara verið heima um jólin
og aðstoðað við textagerð í
tveimur lögum.
Fylgst var með íþróttaviðburðum á Melavellinum
frá öllum sjónarhornum.
Kalli Werners
yfirgaf sína menn
Athafnamaðurinn Karl Wernersson, einatt
kenndur við Milestone, var mættur á Vodafone-
völlinn á Hlíðarenda á sunnudagskvöldið til að
hvetja sína menn í Breiðabliki gegn heimamönnum
í Val í sjöttu umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta.
Enda stutt að fara fyrir lyfjakónginn sem býr
rétt handan götunnar í lúxusvillu við
Engihlíð. Eitthvað virtist Karl þó
ósáttur við sína menn því um leið
og Valsmenn skoruðu annað
mark sitt í leiknum yfirgaf hann
völlinn í snarhasti – nokkru áður
en leikurinn var flautaður af.
Spánverjar hressir með Sólkross
Rithöfundurinn Óttar M. Norð-
fjörð gerði lukku á Fería del Libro,
bókakaupstefnunni í Madríd, um
síðustu helgi. Röð myndaðist við
bás hans á hátíðinni þar sem hann
áritaði skáldsögu sína Sólkross
sem er nýkomin út á Spáni undir
nafninu La Cruz Solar en bókin
kom út á Íslandi árið 2008. Spænski
útgefandinn hefur sýnt áhuga sinn
á bókinni í verki með því að útbúa
alls kyns aukahluti sem stillt er
upp með bókinni í búðargluggum.
Óttar var í viðtölum hjá öllum
helstu fréttaveitum landsins, þar á
meðal El Mundo, næststærsta dag-
blaði landsins, og Radio Nacional,
stærstu útvarpsstöð landsins.
Nína Dögg bregður sér í gervi útigangskonu í stuttmynd Björns Hlyns Haraldssonar
og verður á fleygiferð fram eftir sumri í ýmsum verkefnum.
Tónlistarskólinn í Reykjavík
Enn eru nokkur pláss laus
fyrir næsta vetur!
Nánari upplýsingar
á www.tono.is
og í síma 553 0625
milli kl. 13-16
58 dægurmál Helgin 3.-5. júní 2011