Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.05.2011, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 13.05.2011, Blaðsíða 2
Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@ frettatiminn.is Öflugur greiðendavefur með hagnýtum upplýsingum s.s. • Yfirlit mála • Samkomulög • Greiðslur með korti • Góð ráð og margt fleira Þjónustuver 440 7700 www.ekkigeraekkineitt.is Veikari króna frá áramótum 4% Veiking krónunnar Frá áramótum Greining Íslandsbanka V ilhjálmur Hans Vilhjálmsson, lögmað-ur manns sem lögreglan gerði húsleit hjá í desember á síðasta ári í fylgd með myndatökumanni Morgunblaðsins, hef- ur lagt fram kæru til Ríkissaksóknara á hend- ur lögreglumönnunum sem framkvæmdu húsleitina og yfirmönnum þeirra sem sam- þykktu hana. Vilhjálmur telur að lögreglan hafi, með því að heimila fjölmiðli að mynda húsleitina án samþykkis húsráðanda, brotið gegn fjölmörgum réttarreglum sem ætlað er að vernda réttindi borgaranna. „Um er að ræða brot á lögmætisreglunni, ákvæðum stjórnarskrár og alþjóðlegra mannréttinda- sáttmála um friðhelgi einkalífs, fjölskyldu og heimilis, meðalhófsreglum sakamálalaga og meðalhófsreglum og þagnarskylduákvæðum lögreglulaga,“ segir Vilhjálmur í samtali við Fréttatímann. Hann segir ummæli Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, í frétt- um Bylgjunnar fyrir skömmu, þar sem Stefán taldi lögregluna ekki þurfa heimild dómara eða annarra til að taka fjölmiðla með sér inn á heimili fólks, sérkennileg í ljósi þess að skýrt sé tekið fram í leiðbeiningum ríkislögreglu- stjóra um samskipti lögreglu og fjölmiðla að myndatökur og viðtöl fjölmiðla inni í húsum, einkaheimilum eða fyrirtækjum séu háð sam- þykki viðkomandi húsráðanda og lögreglu á meðan lögregla fer með stjórn á vettvangi. „Það stendur skýrt að leyfi húsráðanda þurfi fyrir myndatöku og það var hvorki veitt né var leitað eftir því. Þetta er enn eitt dæmið um réttarbrot sem lögreglan framdi við umrædda húsleit,“ segir Vil- hjálmur. Fréttatíminn hafði sam- band við embætti Ríkislög- reglustjóra til að fá frekari skýringar á túlkun ofan- nefndrar greinar. Áður en Fréttatíminn fékk staðfesta túlkun Ríkis- lögreglustjóra á þeim sagði Stefán Eiríks- son, lög- reglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, að lög- reglan hefði ekki þurft leyfi húsráðanda til að heimila fjölmiðlum að mynda. „Það lá fyrir dómsúrskurður um húsleit og ég lít svo á að við höfum ekki brotið gegn leiðbeiningum Ríkislögreglustjóra. Það eru mörg fordæmi fyrir þessu og hingað til hefur ekkert þótt at- hugavert við þetta. Ég sé ekki að slíkt sé uppi á teningnum núna. Þess er gætt að ekki sé hægt að greina hver á í hlut og þannig vernd- um við einkalíf fólks,“ segir Stefán og bætir við að hann hafi ekki heyrt frá embætti Ríkis- lögreglustjóra út af þessu máli. Túlkun Ríkislögreglustjóra gengur hins vegar í berhögg við túlkun Stefáns miðað við svarbréf frá embættinu við fyrirspurn Frétta- tímans um túlkun á greininni. „Leiðbeining- ar Ríkislögreglustjóra fyrir lögreglustjóra um samskipti lögreglu og fjölmiðla eru alveg skýrar um þetta efni og þarfnast ekki túlk- unar við. Hvort fyrir liggur dómsúrskurður eða ekki skiptir ekki máli. Eftir sem áður þarf leyfi húsráðanda fyrir aðgangi fjölmiðla. Lögregla verður að gæta grundvallarreglna um friðhelgi heimilis og einkalífs,“ segir í svari embættisins. Haft var samband við Stefán eftir að túlk- un Ríkislögreglustjóra barst. Hann kannað- ist ekki við þessa túlkun og sagðist vera að heyra hana í fyrsta skipti. Aðspurður hvers túlkun réði sagði Stefán ljóst að það væri túlk- un Ríkislögreglustjóra. „Við munum endur- skoða vinnuaðferðir okkar í ljósi þessara upplýsinga,“ segir Stefán. Hann vill þó ekki gangast við því að lögreglan hafi brotið á friðhelgi einkalífsins í tilfelli hús- ráðanda hér að ofan jafnvel þótt fyrir liggi að sú aðgerð að leyfa fjölmiðli að mynda heimili án leyfis húsráðanda samræm- ist ekki túlkun Ríkislög- reglustjóra. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Það stendur skýrt að leyfi hús- ráðanda þarf fyrir mynda- töku og það var hvorki veitt né var leitað eftir því.  LögregLan UmdeiLd húsLeit með fjöLmiðLi Kærir lögreglumenn og stjórnendur fyrir brot í opinberu starfi Lögmaður manns, sem lögreglan framkvæmdi húsleit hjá í fylgd með myndatökumanni frá vef- miðli, telur að þeir sem samþykktu húsleitina og þeir sem framkvæmdu hana hafi brotið af sér í opinberu starfi. Málið hefur verið kært til Ríkissaksóknara. Embætti Ríkissak- sóknara hefur móttekið kæru frá Vilhjálmi Hans á hendur lögreglu- mönnum og yfirmönnum þeirra. Ljós- mynd/Hari  fjármáL hjúkrUnarheimiLið eir Lofar að lækka laun sín um nokkur hundruð þúsund Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgar- stjóri, sem ráðinn var án auglýsingar í starf framkvæmdastjóra hjúkrunarheimilanna Eirar og Skjóls fyrir skömmu, lofar að lækka laun fram- kvæmdastjóra nú þegar hann er tekinn við. Frétta- tíminn greindi frá því í síðustu viku að fráfarandi framkvæmdastjóri hefði verið með 1.440 þúsund í mánaðarlaun og þar af hefðu bílahlunnindi verið 200 þúsund krónur á mánuði. Vilhjálmur segir aðspurður að ekki hafi verið gengið frá launamálum endanlega en á von á að það gerist strax eftir næstu helgi. „Laun mín munu lækka um nokkur hundruð þúsund, það er alveg ljóst. Auk þess mun ég aka á mínum bíl, níu ára gömlum Nissan, og fá bara greitt kílómetragjald fyrir það sem ég ek í þágu vinnunnar,“ segir Vil- hjálmur Þ. Hann segist ekki hafa orðið var við óánægju starfsfólks vegna frétta af háum launum stjórnenda hjúkrunarheimilanna. „Þetta voru gamlir samning- ar sem við erum að vinda ofan af,“ segir Vilhjálmur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, framkvæmda- stjóri hjúkrunarheimilanna Eirar og Skjóls. Auk þess mun ég aka á mínum bíl, níu ára gömlum Nissan. Metmánuður í ferðamennsku rúmlega 32.300 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu um Leifsstöð í apríl og bendir allt til þess að þetta sé fjölmennasti aprílmánuður hvað erlenda ferðamenn varðar frá upphafi, samkvæmt tölum Ferðamálastofu. Í apríl í fyrra fóru tæplega 23.100 erlendir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð og nemur aukningin á milli ára þar með 40%. Er apríl þar með fjórði metmánuðurinn í röð í þessum efnum. Augljóslega hefði aukningin verið minni á milli ára ef ekki hefði komið til eldgossins í eyjafjallajökli, segir greining Íslands- banka, en engu að síður er ljóst að hún er mjög mikil. erlendir ferðamenn í apríl nýliðnum voru rúmlega 16% fleiri en þeir voru í apríl árið 2009 þegar þeir voru tæplega 28.000, en það var þá fjölmenn- asti aprílmánuðurinn frá upphafi. Tæplega 29.000 Íslendingar héldu utan í apríl sem er 52% aukning frá sama tíma í fyrra.-jh ráðherrar víki af þingi og vægi þingforseta verði aukið Á áttunda fundi stjórnlagaráðs lagði B- nefnd m.a. fram tillögu um að ráðherrar víki af þingi, vægi þingforseta verði aukið og að Alþingi verði styrkt sem löggjafi og eftirlitsaðili gagnvart framkvæmda- valdinu. Þá lagði A-nefnd stjórnlagaráðs fram fyrstu tillögur í mannréttindakafla stjórnarskrárinnar en tillögurnar voru kynntar í síðustu viku. Ýmsar athuga- semdir bárust frá fulltrúum í ráðinu og almenningi og hefur nefndin tekið tillit til þeirra, að því er fram kemur í tilkynningu frá stjórnlagaráði. Almenningur er áhuga- samur og hefur sent fjölda tillagna, eins og fram kemur í viðtali við Salvöru Nordal, formann stjórnlagaráðs, í Fréttatímanum í dag. -jh Vormarkaður á elliðavatni Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir vormarkaði á elliðavatni í annað sinn í dag, föstudag, og fram á sunnudag, 13.-15. maí. Í dag er opið frá klukkan 15-18, en laugardag og sunnudag klukkan 10-18. Félag trérennismiða er með stóra sölusýn- ingu og sýnikennslu. Hestaleiga fyrir börn verður á laugardaginn. Þá verður kynning á stafgöngu og síðdegis verður Vorblót að Vatni á vegum Ásatrúarmanna. Fuglavernd og Ferðafélag Íslands bjóða í fræðslu- göngur en sá sjaldgæfi fugl himbrimi er kominn. Fluguhnýtingar verða kynntar í dag og um helgina verða kennd undir- stöðuatriðin í að kasta flugu og kastkeppni verður á sunnudag. Gámaþjónustan býður ókeypis moltu og Skógræktarfélagið selur hnaustré, eldivið, bolvið og kurl.- jh Krónan hefur ekki verið veikari gagnvart helstu viðskiptamyntum í tæpt ár. Hefur hún að jafnaði veikst um ríflega 4% frá upphafi árs, en kúfurinn af þeirri veikingu kom fram á fyrstu vikum ársins, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka. Það sem af er maí hefur krónan veikst lítillega gagnvart körfu helstu gjaldmiðla, en nokkur munur er hins vegar á þróuninni eftir því til hvaða við- skiptamyntar er horft. Krónan hefur heldur styrkst gagnvart evru á tímabilinu en gagnvart Bandaríkjadollar og japönsku jeni hefur hún veikst um nærri 4%, og gagnvart bresku pundi nemur veikingin í maí rúmu prósentustigi. -jh 2 fréttir Helgin 13.-15. maí 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.