Fréttatíminn - 13.05.2011, Blaðsíða 42
S tefán Baldursson óperustjóri við-urkennir að það grípi um sig smá tregi og söknuður að sjá á eftir Ís-
lensku óperunni úr Gamla bíói, þar sem
hún hafði starfað í hartnær þrjátíu ár.
„Gamla bíó er einstaklega sjarmerandi
hús og vegna þrengslanna, sem listmenn
þurftu að búa við þar, skapaðist þar af-
skaplega heimilislegur og skemmtilegur
andi. En yfirgnæfandi tilfinningar við
flutningana eru þó tilhlökkun, bjartsýni
og ánægja yfir að komast í rýmra hús-
næði sem býður upp á meiri fjölbreytni
og bætta aðstöðu fyrir áhorfendur sem
og listamenn.
Mér líst gríðarlega vel á Hörpuna,
hún er einstaklega vel heppnað hús,
glæsilegt að utan sem innan. Ég er sann-
færður um að Harpan er og verður í
framtíðinni minnisvarði um stórhug og
menningarlegan metnað okkar á erf-
iðum tímum. Glæsilegt merki þess að við
létum kreppuna ekki buga okkur.“
Stefán var eðlilega viðstaddur opnun-
artónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands
í Hörpunni fyrir rúmri viku og segir
hljómburðinn í salnum stórkostlegan.
„Enda er hægt að stjórna honum með
stillingu ómrýma og tækni, allt eftir því
hvernig tónlist er verið að flytja. Það var
ótrúleg tilfinning að sitja í þessum til-
komumikla, dimmrauða og fallega sal
á opnunartónleikunum og heyra bæði í
hverju einstöku hljóðfæri og samhljóm-
inn í allri hljómsveitinni. Allt hljómaði
jafn vel, hvort heldur Víkingur Heiðar
sló mjúklega og ofurlágt eina staka nótu
eða hljómsveitin í heild sinni með 170
manna kórnum gaf í botn í Óðnum til
gleðinnar. Þetta var eiginlega kraftbirt-
ingarhljómur guðdómsins.“
Komið til móts við þarfir okkar
Nú hefur komið fram að Harpan sé ekki
hönnuð fyrir óperuflutning eða sviðslistir.
Fannst ykkur aldrei sérkennilegt að ráðist
yrði í byggingu svona stórs tónlistarhúss
án þess að gera ráð fyrir óperuflutningi?
„Ég tel það hafa verið mikil mis-
tök að hafa ekki gert ráð fyrir óperu-
flutningi í Tónlistarhúsinu frá upphafi.
En við ákváðum engu að síður að flytja
starfsemina þangað, þegar núverandi
eigendur, ríki og borg, buðu okkur að
leigja afnot af húsinu. Smæð Gamla bíós
setti okkur miklar rekstrarlegar hömlur:
Þótt uppselt væri á sýningar, þurftum við
að borga miklar upphæðir með hverju
sýningarkvöldi vegna þess að markmiðið
er að miðaverð sé ekki hærra en svo að
allur almenningur hafi efni á að sækja
óperusýningar. Hér er ekki um slíkan
vanda að ræða og þótt Harpan væri full-
byggð, þegar ákvörðun var tekin um
flutning Óperunnar, var reynt að koma
til móts við ýmsar þarfir okkar; fundin
rými fyrir lítinn æfingasal, hárgreiðslu-
og förðunaraðstöðu, saumastofu, nokkur
búningsherbergi og svo má ekki gleyma
því að hljómsveitargryfja er í aðalsalnum
auk glæsilegs ljósabúnaðar. Allt þetta
nýtist jafnframt öðrum sem koma með
leiksýningar og alls slags tónlistarvið-
burði í húsið.“
Unnt að sviðsetja mannmargar
sýningar
Mun aðstaða Íslensku óperunnar batna
með flutningi hennar í Hörpuna og þá að
hvaða leyti?
„Jú, hljómburðarlega er húsið
greinilega vel heppnað, sem að sjálf-
sögðu nýtist óperuflutningi. Þótt sviðið
í Eldborg sé ekki eiginlegt leiksvið og
sviðstæknibúnaður í lágmarki, þá er það
opið og stórt og nú er unnt að sviðsetja
mannmargar sýningar, jafnvel Wagner.
Svo eru í húsinu þrír aðrir salir, þar sem
hægt er að vinna annars konar og til-
raunakenndari verkefni. Svo vonumst við
auðvitað eftir auknu samstarfi við Sin-
fóníuhljómsveitina, nú þegar við eigum
sameiginlegt heimili.“
Verða einhverjar breytingar á starfs-
mannafjölda Óperunnar?
„Já, fastafólki fækkar því við erum
ekki lengur að reka húseign eða miða-
sölu. Og allir listamenn verða fyrst um
sinn verkefnaráðnir eins og verið hefur.“
Getum boðið upp á það besta
Margir þeirra óperusöngvara sem hafa
náð langt úti í hinum stóra heimi hafa
stigið sín fyrstu söngskref hjá Íslensku
óperunni. Vekur það alltaf sama stoltið
hjá þér að heyra af velgengni Íslendinga á
erlendri grund?
„Svo sannarlega. Við eigum ótrú-
lega marga góða óperusöngvara sem
starfa erlendis að staðaldri, þeir telja
hátt á annan tug. Við njótum svo góðs
af reynslu þeirra því þeir koma af og til
heim í eitt og eitt verkefni og þannig
getum við boðið upp á það besta.“
Fyrsta frumsýning Íslensku óperunnar
verður 22. október þegar Töfraflautan
verður flutt. En hvað bjóðið þið upp á í
kvöld?
„Í kvöld flytja nokkrir óperusöngv-
arar tvö atriði úr Verdi-óperum. Diddú,
Bjarni Thor, Ágúst Ólafs og Sigríður
Aðalsteins syngja kvartett úr Don Carlo
og Kristján Jóhannsson flytur ein-
söngsatriði úr Óþelló. Svo erum við með
Kaldalóns-tónleika og kórtónleika á opna
húsinu á laugardaginn.“
Keypti óperuplötur á
unglingsárunum
Hefur þú sjálfur alltaf verið óperuunn-
andi?
„Já, að minnsta kosti frá unglingsár-
unum, þegar ég fór að kaupa óperu-
plötur. Síðan þá hef ég séð svo til allar
óperusýningar bæði Þjóðleikhússins
og Íslensku óperunnar fyrir utan fjölda
erlendis. Mig minnir að fyrsta óperan
sem ég sá á sviði hafi verið Il Trovatore í
Þjóðleikhúsinu. Mögnuð upplifun.“
En áttu þér eftirlætis óperu?
„Þær eru svo ótal margar. Uppáhalds-
óperutónskáld eru Verdi og Mozart,
jafnólíkir og þeir nú eru, og svo auðvitað
Wagner.“
En áttu þér eftirlætis óperuhús úti í
heimi?
„Það fer allt eftir því hvað verið er að
flytja og hvaða listmenn starfa þar. En
fallegasta óperuhús sem byggt hefur
verið undanfarin hundrað ár er án efa
nýja Norska óperan. Sú bygging er snilld
af hálfu arkitekta. En það er nú Harpan
okkar líka!“ -akm
6 harpa Helgin 13.-15. maí 2011
www.efla. is • Í S L A N D • D U B A I • F R A K K L A N D • N O R E G U R • P Ó L L A N D • R Ú S S L A N D • T Y R K L A N D
Hönnunar- og framkvæmdaeftirlit við byggingu Hörpunnar var í umsjá EFLU.
EFLA verkfræðistofa
stillir saman strengi
Þjóðar-
gersemi
„Mér er
ljúft að
segja
eitthvað
um Hörpu sem ég tel
uppkomna einstaka
þjóðargersemi í
kreppunni. Ég er alin
upp með Þjóðleik-
húsið sem hálfkar-
aðan kassa uppi á
Hverfisgötu, svo ég
tel Hörpuna meðal
afreka hjá afar ósam-
stæðri þjóð á tímum
þegar á ríður að
menn standi saman.“
Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti
„Íslenska
þjóðin
hefur svo
lengi þráð
gott tónlistarhús og
nú hefur draumurinn
ræst. Í Hörpu eigum
við eftir að eiga
margar yndisstundir
saman.“
Gerður Kristný skáld
„Án
menningar
er þjóð
ekkert.”
Grímur Atlason, tónleika-
haldari
„Húsið
er fallegt
og vekur
vænt-
ingar um fjölbreytt og
öflugt tónlistarlíf.“
Vilhjálmur Bjarnason,
lektor HÍ
íslensKa óperan
Kraftbirtingarhljómur guðdómsins
Stefán Baldursson Vonast eftir auknu samstarfi við Sinfóníuhljómsveitina, nú þegar Íslenska óperan er komin undir sama þak og sveitin.