Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.05.2011, Blaðsíða 20

Fréttatíminn - 13.05.2011, Blaðsíða 20
V ið höfum góða reynslu hingað til af þessu og finnum fyrir vax- andi áhuga. Það er heilmikil umræða á netinu hjá okkur,“ segir Salvör Nor- dal, formaður stjórnlagaráðs. Almenningi gefst kostur á að senda stjórnlagaráði erindi og athugasemdir á vef þess. Þar er hægt að fylgjast með undir- búningi ráðsins að frumvarpi til nýrrar stjórnarskrár. Textinn í skjalinu endurspeglar vikulega ráðsfundi, þar á meðal tillögur til afgreiðslu og kynningar, en áttundi fundur stjórnlagaráðs var haldinn í gær, fimmtudag. Stjórnlagaráð hefur tíma út júní til að ganga frá stjórnar- skrárfrumvarpi sínu til Alþingis en má bæta mánuði við, ef á þarf að halda. Salvör segist reikna með að vinna ráðsins muni ná eitthvað fram í júlí. Umræða á vefnum er þegar hafin um þær tillögur sem hafa verið lagðar fram. Þá hefur mikil umræða átt sér stað milli almennings og fulltrúa í stjórn- lagaráði um þau erindi sem hafa verið send ráðinu. Erindunum fjölgar jafnt og þétt, en í gær voru þau orðin tæplega sjötíu. Formleg erindi og áfanga- skjal Á vef stjórnlagaráðs kemur fram að vinnu við áfangaskjalið lýkur ekki fyrr en drög að frumvarpi liggja fyrir. „Allar greinar þess geta því tekið breytingum, einn- ig samþykktar tillögur,“ segir á vef ráðsins en þar er almenningi boðið að tjá sig, að virtum sam- skiptasáttmála þar sem fagnað er uppbyggilegri rökræðu, en persónulegar árásir ekki liðnar. „Það er annars vegar hægt að senda okkur erindi og hins vegar erum við með það sem kallast áfangaskjal,“ segir Sal- vör. „Formlegi vettvangurinn er þannig að erindi koma inn, eru skráð og fara síðan í nefnd sem hefur viðkomandi málaflokk til umræðu. Ráðsmenn svara síðan einstökum erindum á netinu, á sínum persónulegu forsendum.“ Formaður stjórnlagaráðs segir að ráðinu hafi þegar borist fjölmargar góðar og athyglis- verðar tillögur sem mikil vinna hafi verið lögð í og sýni að fólk hafi hugleitt málið vel. „Ég á von á því að eitthvað muni nýtast stjórnlagaráði. Við svörum erindunum kannski ekki öllum formlega en þau fara í nefndar- vinnuna þar sem afstaða er tekin til þeirra. Það er líka lifandi um- ræða á netinu um þessar tillögur frá einstökum ráðsmönnum.“ Í áfangaskjalinu er um að ræða tillögur sem hafa fengið ákveðna umfjöllun í stjórn- lagaráðinu. Salvör segir að líta megi á það sem ákveðna vörðu á leiðinni að settu marki en ekki endanlegar tillögur. Inn í það áfangaskjal getur fólk líka komið með athugasemdir en það verður í stöðugri vinnslu fram til loka. Reynum að sjá vinnuna alveg til enda „Gangurinn er góður,“ segir Salvör, „en þetta er gríðarlega stórt verkefni. Við erum með flókin mál til umræðu og þurfum að halda vel á spöðunum og höfum gert það. Það er unnið að heildarskipulagi og við reynum að sjá vinnuna alveg til enda; að skipuleggja hverja viku allt til loka. Við vorum beðin að taka sérstaklega fyrir ákveðna hluti og gefinn til þess ákveðinn tímarammi. Við verðum að vinna sem best úr því,“ segir Salvör spurð um það hvort nægur tími væri gefinn til svo viðamikils verkefnis sem endurskoðunar stjórnarskrár lýðveldisins. „Það má segja að við hér á Íslandi gef- um okkur oft ekki nægan tíma í hlutina en þetta er sá tími sem við fáum og við reynum að nýta hann eins vel og við getum.“ Sal- vör nefnir að stjórnlagaráðið hafi skýrslu og tillögur stjórnlaga- nefndar til hliðsjónar við starfið og afrakstur þjóðfundanna, auk annars. Breið sátt skiptir miklu „Ég hef litið svo á að það sé styrkur ef stjórnlagaráðið nær breiðri sátt. Það skiptir miklu máli. Ég er bjartsýn á að við getum náð skynsamlegri sátt um ýmis mál, meira get ég ekki fullyrt á þessu stigi,“ segir for- maðurinn. „Það er einhugur í ráðinu um að vinna vel og ná breiðri sátt. Það sem liggur til grundvallar því að ná slíkri sátt  stjórnarskrárgerð allar greinar, einnig samþykktar tillögur, geta tekið breytingum allt til loka Vinnu stjórnlagaráðs Almenningur tekur virkan þátt í starfi stjórnlagaráðs Á netinu er hægt að fylgjast með undirbúningi ráðsins að frumvarpi til nýrrar stjórnarskrár. Umræðan er fjörug og vandaðar tillögur almennings munu nýtast, segir Salvör Nordal, formaður stjórnlagaráðs. Salvör Nordal, formaður stjórnlagaráðs. Gangurinn er góður en þetta er gríðarlega stórt verkefni. Almenningur tekur virkan þátt í verki stjórnlagaráðs með erindum og athugasemdum við áfangaskjal ráðsins. Ljósmynd/Hari www.veidikortid.is 35 vatnasvæði aðeins kr. 6000 Ertu búinn að fá þér Veiðikortið? 00000 124.900 Þvottavél - WM 12Q460DN Tilboðsverð: kr. stgr. (Verð áður: 139.900 kr.) tilboðsverði Þvottavélar og þurrkarar nú á A T A R N A Ariel þvottaefni og Lenor mýkingarefni fylgja með öllum Siemens þvottavélum. Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is 20 viðtal Helgin 13.-15. maí 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.