Fréttatíminn - 13.05.2011, Blaðsíða 16
Við erum með réttu leiðina fyrir þig
Eitt mínútuverð,
frábær kjör!
Magnaðir miðvikudagar
fyrir viðskiptavini Símans
Stærsta og hraðasta
3G dreifikerfi landsins
Vinir óháð kerfi,
bæði í Frelsi og áskrift
Risa mínútupakki
fyrir stórnotendur
0 kr. innan fjölskyldu
og í heimasímann
Vertu með vinina
á 0 kr.
Yfirsýn yfir alla þjónustu
á þjónustuvefnum
Þú færð meira
hjá Símanum!
Það ersiminn.is
Greidd eru mánaðargjöld og upphafsgjöld skv. verðskrá. Ekki eru greidd upphafsgjöld af símtölum í vinanúmer. Nánar á siminn.is
Komdu til okkar eða hafðu samband og við aðstoðum þig við að finna hagstæðustu leiðina.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
6
3
5
3
3 vinir og 300 SMS
Hringdu á 0 kr. í 3 vini óháð kerfi*
og sendu 300 SMS á alla hina
Eitt mínútuverð
í alla innanlands
1.390 kr. mánaðargjald
*600 mín./ 300 SMS á mán.
300 MB á mán. fylgir til áramóta.
Ódýrari mínútur
Hringdu á 0 kr. í 1 GSM vin hjá
Símanum*
Aðeins 11,9 kr. mín.
í alla innanlands
590 kr. mánaðargjald
*1.000 mín./ 500 SMS á mán.
6 vinir óháð kerfi
Hringdu á 0 kr. í 6 vini
óháð kerfi*
Eitt mínútuverð
í alla innanlands
2.190 kr. mánaðargjald
– Veldu áskrift eða Frelsi
*Áskrift 1.000 mín./ 500 SMS á mán.
Frelsi 60 mín./60 SMS á dag.
1000 mínútur
Hringdu á 0 kr. í alla GSM og
heimasíma á Íslandi*
Frábær leið fyrir þá sem nota
GSM símann mikið
7.990 kr. mánaðargjald
*1.000 mín./ 500 SMS á mán.
Ring
Fyrirframgreidd þjónusta
– fyrir þá sem vilja afgreiða
sig sjálfir
0 kr. innan Ring
990 kr. mánaðargjald
eða
0 kr. innan kerfis Símans
1.990 kr. mánaðargjald*
*1.500 mín./ SMS á mán.
Rótarýklúbburinn Reykjavík – Miðborg
Almar Guðmunds-
son, framkvæmda-
stjóri Félags
atvinnurekenda
Brynjólfur
Helgason, fyrrverandi
framkvæmdastjóri
Landsbankans
Dögg Pálsdóttir
hæstaréttarlögmaður
Einar Sigurðsson,
forstjóri MS
Eiríkur Guðnason,
fyrrverandi seðla-
bankastjóri
Finnur Sveinbjörns-
son, fyrrverandi
bankastjóri Arion
banka
Guðjón Friðriksson
sagnfræðingur
Inga Jóna Þórðar-
dóttir, eiginkona
Geirs H. Haarde
Júlíus Vífill Ingvars-
son, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins
Katrín Fjeldsted
læknir
Kristján B. Jónas-
son, formaður Félags
íslenskra bókaútgef-
enda
Lára V. Júlíusdóttir
hæstaréttarlögmaður
Margeir Pétursson
athafnamaður
Sólveig Pétursdóttir,
fyrrverandi dóms- og
kirkjumálaráðherra
Steinunn Sigurðar-
dóttir fatahönnuður
Steinþór Skúlason,
forstjóri Sláturfélags
Suðurlands
Svava Johansen,
framkvæmdastjóri
NTC
Sævar Freyr Þráins-
son, forstjóri Símans
Thomas Möller, fyrr-
verandi framkvæmda-
stjóri Skeljungs
Tinna Gunnlaugs-
dóttir þjóðleikhús-
stjóri
Vigdís Finnboga-
dóttir, fyrrverandi
forseti Íslands
Þorkell Sigurlaugs-
son, lektor við Há-
skólann í Reykjavík
Þórunn Guðmunds-
dóttir hæstaréttarlög-
maður
Þórunn Sigurðar-
dóttir, listrænn stjórn-
andi Hörpu
Rótarýklúbburinn
Reykjavík – Árbær
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna
Hreinn Haraldsson vegamálastjóri
Jón H.B. Snorrason aðstoðarlög-
reglustjóri
Magnús Pétursson ríkissáttasemjari
ritstjórar, seðlabankastjórar. Menn
sem voru á hátindi sínum fyrir áratug-
um en eru nú á lokaspretti ævi sinnar.
Eirarmenn í Rótarý
Og þótt Rótarý snúist um mannúð
og góðgerð haldast vinabönd sem
mynduðust í pólitík fyrir áratugum
innan klúbbanna. Þannig eru til að
mynda Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
og Magnús L. Sveinsson saman í
Rótarýklúbbi Reykjavíkur – Breiðholt.
Þeir félagar hafa marga fjöruna sopið
saman og komust í fréttirnar í síðustu
viku þegar Fréttatíminn greindi frá
því að Vilhjálmur Þ. hefði verið ráðinn
tímabundið forstjóri hjúkrunarheimil-
anna Eirar og Skjóls án auglýsingar.
Magnús, vinur hans og Rótarýfélagi,
sat í stjórn með Vilhjálmi, tók þátt í
að samþykkja þennan ráðahag og tók
síðan við af Vilhjálmi sem formaður
stjórnar hjúkrunarheimilisins Eirar.
Rótarýklúbbar ekki valdaklíkur
Sálfræðingurinn Kolbrún Baldurs-
dóttir er foseti Rótarýklúbbs Reykja-
víkur – Austurbær; þess klúbbs sem
hefur innanborðs flest áhrifafólkið,
að mati álitsgjafa Fréttatímans. Hún
segir það af og frá að Rótarýklúbbar
séu valdaklíkur þar sem mikilvægar
ákvarðanir í samfélaginu séu teknar í
reykfylltum bakherbergjum klúbb-
anna. „Ég hef ekki orðið vör við það.
Ég upplifi það ekki þannig heldur er
eingöngu stolt af því að vera Rótarý-
félagi. Ég er dugleg að bera merki
félagsins, sem aðgreinir félaga frá
öðrum, en ég kem ekki öðruvísi
fram við Rótarýfélaga en aðra. Ég
reyni að koma fram við alla af sömu
virðingunni. Í þessum klúbbum er
þverskurður samfélagsins; flottir full-
trúar þeirra hópa og stétta sem þeir
tilheyra. Öll eigum við það sameigin-
legt að vilja láta gott af okkur leiða.
Það er límið í þessu,“ segir Kolbrún
sem hefur verið meðlimur í klúbbnum
frá árinu 1998.
Hún segir að starf félagsins snúist
að miklu leyti um góðgerðarstarf-
semi. „Rótarýhreyfingin á heimsvísu
hefur verið í fararbroddi í baráttunni
við sjúkdóminn Pólíó (mænusótt) og
varið fúlgum fjár í þá baráttu. Síðan
styrkjum við hin ýmsu málefni –
erum til dæmis sífellt að hjálpa ungu
fólki,“ segir Kolbrún.
Og þótt hugsjónin um að láta gott af
sér leiða sé í forgrunni segir Kolbrún
að þátttaka í klúbbnum snúist líka um
mannrækt. „Við hittumst vikulega á
fimmtudögum í hádegisverði; borð-
um, spjöllum og hlýðum á fyrirlestra.
Það þykir mikill heiður að fá að koma
og halda fyrirlestur hjá okkur og við
höfum aldrei greitt fyrir slíkt,“ segir
Kolbrún og bætir við að þótt ekki sé
gerð krafa um kjól og hvítt á fundum,
mæti hún ekki á gallabuxunum.
Spurð hvernig fólk verði félagar í
Rótarý segir Kolbrún að það sé ein-
falt. Það þurfi enga meðmælendur líkt
og tíðkast í reglum eins og Frímúr-
arareglum. „Við erum alltaf að leita
að fólki sem getur bætt klúbbinn og
er góðir fulltrúar fyrir sína fagstétt.
Síðan geta áhugasamir sótt um inn-
göngu. Félagavalsnefnd og stjórn
klúbbsins tekur umsóknina fyrir. Sé
sátt um að viðkomandi sé áhugaverð-
ur sem meðlimur er tillaga um inn-
göngu hans send félögum klúbbsins
sem síðan samþykkja inngönguna. Ef
einhver félaganna mótmælir er það
skoðað sérstaklega en það er afar
sjaldan sem það gerist,“ segir Kol-
brún og bætir við að markmið klúbbs-
ins sé að fjölga konum.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Við hittumst
vikulega á
fimmtudög-
um í há-
degisverði;
borðum,
spjöllum og
hlýðum á
fyrirlestra.
Það þykir
mikill heiður
að fá að
koma og
halda fyrir-
lestur hjá
okkur og við
höfum aldrei
greitt fyrir
slíkt.
Svava Johansen
Dögg Pálsdóttir
Margeir Pétursson
16 úttekt Helgin 13.-15. maí 2011