Fréttatíminn - 13.05.2011, Blaðsíða 45
Bröns
alla laugardaga og sunnudaga
Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300 | www.geysirbistrobar.is
Verð
aðeins
1.795
með kaffi
eða te
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
5
7
7
3
Dagurinn er bara allt annar
Hafragrautur úr Ota Solgryn er einfaldur
og hollur morgunverður með háu hlutfalli
af fjölsykrum, trefjaríkur og mettandi og
dugar þér langt inn í daginn.
Ota haframjölið er framleitt úr 100%
sérvöldum höfrum sem eru flokkaðir,
valsaðir og síðan ristaðir til að auka
enn á bragðgæðin.
barry Viniker Veðjar bara á Ísland
Aftur heim gæti endað meðal sex efstu
É g get alls ekki sagt að það hafi komið
mér á óvart að íslenska
lagið kæmist áfram á
þriðjudagskvöldinu,“
segir Barry Viniker,
Eurovision-sérfræðingur
og ritstjóri fréttasíð-
unnar www.esctoday.
com þar sem hann fjallar
um Eurovision frá öllum
sjónarhornum, allan
ársins hring. Barry hefur
haft tröllatrú á laginu
Aftur heim allt frá því það
sigraði í undankeppn-
inni hér heima og hann
var því alveg rólegur
á þriðjudagskvöldið á
meðan margir höfðu
gefið upp alla von fyrir
Íslands hönd.
„Ég veðjaði bara á eitt
lag í ár og setti tíu pund á
að Ísland kæmist áfram.
Ég held að strákarnir
eigi raunhæfan mögu-
leika á að enda í einu af
sex efstu sætunum og
þá trú hef ég haft frá
byrjun.“
Barry telur Íslendinga
alltaf eiga inni ákveðinn
velvilja víða í álfunni og
efast ekki um að skyndi-
legt og sorglegt fráfall
Sigurjóns Brink hafi
hreyft við fólki.
„Hver einasti kynnir í
hverju einasta landi hlýt-
ur að hafa sagt sorgar-
söguna á bak við lagið og
svo hugsa alltaf margir
hlýlega til litla Íslands
sem hefur að mínu mati
aldrei verið jafn öflugt
á sviði í Eurovision og á
þriðjudagskvöldið.“ -þþ
Barry tekur hlutverk sitt mjög
alvarlega og fylgist grannt
með forkeppnum úti um alla
álfuna. Hann lét til dæmis
ekkert fram hjá sér fara þegar
Söngvakeppni Sjónvarpsins
fór fram í vetur.
Hver einasti
kynnir
í hverju
einasta
landi hlýtur
að hafa sagt
sorgarsög-
una á bak
við lagið.
G unnhildur Arna Gunn-arsdóttir blaðakona hefur fylgst með Eurovision
árum saman og flokkast ótví-
rætt sem sérfræðingur í þessari
alþýðlegu fræðigrein. Hún var á
staðnum þegar keppnin fór fram
í Aþenu árið 2006 og í Ósló 2009
og veit því hvað hún syngur þegar
Eurovision er annars vegar. Hún
segir að staðan sé galopin eftir
að Vinir Sjonna komust, nokkuð
óvænt, áfram á þriðjudagskvöld.
„Það er erfitt að segja en ég
held að strákarnir geti komist
langt á laugardaginn og ég held að
við verðum alveg á topp tíu,“ segir
Gunnhildur. „En ég er alltaf rosa-
lega jákvæð fyrir Íslands hönd.
Margir halda því fram að sagan
í kringum lagið skipti svo miklu
máli en ef það er rétt að fólkið
í Evrópu fékk ekkert að heyra
söguna vegna þess að kynnarnir
duttu út, þá er sú kenning fallin
og þess vegna held ég að lagið nái
lengra en maður myndi annars
ætla,“ segir Gunnhildur og vísar
til tæknilegra örðugleika Þjóð-
verja á þriðjudag sem urðu til þess
að kynnar keppninnar duttu út.
Gunnhildur segist hafa verið
búin að gefa upp alla von á þriðju-
daginn og hún hafi orðið mjög
hissa þegar Ísland kom upp úr
síðasta umslaginu.
„Þegar búið var að telja upp
helming laganna varð ég svart-
sýnni með hverri mínútunni og
þegar tvö sæti voru laus var ég
búin að útiloka þetta. Ég hélt að
þau sæti væru bara frátekin fyrir
Norðmenn og Tyrki.“
Gunnhildur segir röð flytjenda
á laugardagskvöld vera Íslend-
ingum í hag. Vinir Sjonna eru
númer 21 í röðinni og stíga því á
svið þegar keppnin verður langt
komin. „Það er mjög gott vegna
þess að þeir sem eru alveg búnir
að fá upp í kok af öllum þessum
dansatriðum finna bara ró með
Íslendingunum og þægilega, kósí
stemningu.“
Aðspurð hverja hún telji sigur-
stranglegasta segir Gunnhildur
að vandi sé um slíkt að spá þar
sem í raun standi ekkert lag upp
úr, þannig lagað. „Það skiptir
því rosalega miklu máli hvernig
stemningin verður þarna um
kvöldið. Og hvernig flytjendur ná
til áhorfenda. Ég held ennþá að
Frakkar geti unnið,“ segir Gunn-
hildur sem gerði þó helst ráð fyrir
að Norðmenn færu alla leið og
sigruðu, áður en þeir féllu óvænt
út á þriðjudagskvöld.
Gunnhildur arna spáir spennandi kVöldi
Nú getur allt gerst
Vinir Sjonna Sigruðu hér heima.
Komust áfram á elleftu stundu í for-
keppninni í Düsseldorf og nú getur
allt gerst hjá þeim í aðalkeppninni.
Gunnhildur er bjartsýn fyrir hönd
íslenska lagsins og spáir því að það
verði meðal tíu efstu laganna á
laugardagskvöld.
HELGARBLAÐ
Ókeypis alla föstudaga
HELGARBLAÐ
Ókeypis alla föstudaga
HELGARBLAÐ
Ókeypis alla föstudaga
eurovision 37 Helgin 13.-15. maí 2011