Fréttatíminn - 13.05.2011, Blaðsíða 68
Naglalakk frá Serenu Williams
Vinsældir nagla-
lakksins frá fyrir-
tækinu OPI hafa svo
sannarlega farið vax-
andi síðustu mánuði
og með svokallaða
black shatter-nagla-
lakkinu varð allt vit-
laust. Nú hefur fyrir-
tækið gefið frá sér
enn aðra línuna sem
hönnuð var í sam-
starfi við tenniskon-
una Serenu Willi-
ams. Línan nefnist
Glam Slam! og inni-
heldur alls fjögur
gerðir af naglalakki.
Tvær þeirra er svo-
kallað shatter-nagla-
lakk, hvítt og rautt,
sem brotnar, og tvær
ferðir af glimmer-
naglalakki, fjólublátt
og gulllitað. Línan
hefur fengið góðar
viðtökur og mun
koma til landsins á
næstu vikum.
60 tíska Helgin 13.-15. maí 2011
Fordómarnir
gleymast fljótt
Okkur þykir líklega flestum gaman að dubba
aðeins upp á útlitið af og til. Sérstaklega fyrir ein-
hverjar skemmtilegar uppákomur. Fara í fín föt,
mála okkur og punta og njóta þess að fegra útlitið.
Það er ekkert betra en að líða vel í eigin skinni,
njóta og gera þetta helst fyrir sjálfan sig. Ekki aðra.
Það vill svo til að ég er að fara að útskrifast núna í
vor. Loksins. Eftir fjögurra ára nám er ég loksins
að klára. Laus úr viðjum menntakerfisins. Í bili
allavega. Útskriftardagurinn er mér og mínum
samnemendum mikilvægur. Undirbúningurinn
fyrir daginn hefur lengi legið í loftinu og
fyrir mörgum, mörgum mánuðum
byrjuðum við stelpurnar að ákveða
og plana. Ég hef líklega fjárfest í
fleiri en fimm útskriftarkjólum yfir
veturinn og ekki enn búin að ákveða
hver verður fyrir valinu. Hef enga skýringu á því
hvers vegna þetta er mér svona erfitt. Tískan er
bara svo gríðarlega fjölbreytileg þetta árið. Allt
er leyfilegt og allt er flott.
Þegar ég var stödd í New York fyrir viku
leituðu augun ósjálfrátt í átt að kjólunum. Ég
reyndi að binda hendur mínar fastar svo að ég
færi nú ekki að bæta enn einum í safnið. Ég tók
þó eftir því að sparikjólatískan er að taka aðra
stefnu en verið hefur síðustu árin. Maður hafði
mikla fordóma gagnvart síðkjólum og opnu baki
en svo virðist sem einmitt það tröllríði nú
allri tísku. Nýja línan frá H&M einkennist
til dæmis aðallega af flottum síðkjólum,
sumarlegum og sætum, sem ég
gæti vel hugsað mér að nota í
sumar. Þeir fordómar sem
ég hafði gagnvart þess-
ari tísku hafa fokið burt
á augabragði. Svona breytist
tískan fljótt.
Hildur Edda Gunnarsdóttir er 21 árs
lögfræðinemi við Háskólann í Reykjavík
og með skólanum kennir hún ballett í
Klassíska listdansskólanum.
„Ég myndi lýsa stílnum mínum sem
mjög venjulegum. Ég sæki mikið í það
sem er í tísku og það sem mér finnst flott.
Hann breytist því eftir árstíðum og þegar
sumarið er komið elska ég að klæða mig
sumarlega. Fötin mín kaupi ég mest í
Ameríku, þá helst í Forever21 og H&M en
hérna heima versla ég aðallega í Zöru og
Topshop.
Tískublogg veitir mér mikinn innblástur
og þá sérstaklega sænski tískubloggarinn
Kenza. Hún er mjög venjuleg en alltaf
flott; mikill frumkvöðull og er með tískuna
á hreinu. Bloggarinn Elin Kling er líka
rosalega flott og gaman að fylgjast með
hennar stíl.“
Stíllinn breytist eftir árstíðum
5
dagar
dress
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Þriðjudagur
Skór: Jerneys
Stuttbuxur: Vila
Skyrta: Zara
Veski: Louis Vuitton
Mánudagur
Skór: Kaupfélagið
Buxur: Zara
Skyrta: Zara
Peysa: H&M
Miðvikudagur
Skór: Converse
Buxur: Zara
Peysa: Zara
Armband: Forever21
Föstudagur
Skór: Jerneys
Buxur: Zara
Jakki: Zara
Bolur: Gap
Fimmtudagur
Skór: Converse
Buxur: Zara
Jakki: Zara
Peysa: Forever21
Richie stefnir hærra
Það er ekki alveg vitað hvort Nicole Richie öðlaðist frægð fyrir
annað en að vera dóttir söngvarans Lionels Richie en það
virðst vera nóg. Hún hefur haft mikið fyrir stafni á síðustu árum
og einblínir nú á fatalínuna sína, House of Harlow, sem hún
hefur haldið úti í nokkur ár. Línan hefur
aðallega samanstaðið af ódýrum hippa-
klæðnaði, ódýrum skartgripum og
fylgihlutum. En nú virðist hún vera að
taka aðra stefnu og er farin að hanna
skartgripi sem hún hefur ekki látið
frá sér áður. Áður fyrr voru skart-
gripirnir hennar gerðir úr ódýrum
efnum en nýja línan mun koma á
næstu dögum þar sem hver einasti skartgripur mun
skarta demöntum. Þetta verður mjög lítil lína, með
fáum eintökum, og mun hver gripur ekki kosta minna
en tæpar sex milljónir íslenskra króna. Það lítur út fyrir
að Richie ætli að koma sér út í djúpu laug tískubransans.
Landsliðsbúningar
frá McCartney
Bítladóttirin Stella McCartney tilkynnti á
dögunum að henni hefði boðist gríðarlega
mikilvægt verkefni sem hún
myndi vinna að á næstu
vikum. Íþróttamerkið Adidas
fékk Stellu það hlutverk að
hanna ólympíukeppnisbún-
ingana fyrir landslið Breta
fyrir leikana sem haldnir
verða næsta sumar.
Það er vissulega enginn
skortur á verkefnum fyrir fatahönnuðinn.
Ásamt því að leggja sig alla fram við
hönnun landsliðsbúninganna mun hún
halda áfram að annast börnin sín fjögur og
reka stórt heimili fjölskyldunnar.
KVEIKT’Á KANANUM
SIGGI GUNN