Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.05.2011, Page 46

Fréttatíminn - 13.05.2011, Page 46
E f tir að geir-fuglinn komst í útrýmingar- hættu jókst áhugi safnara á að stoppa fuglinn upp. Verð- mæti hans jókst að sama skapi. Þetta varð til þess að end- anlega var gert út af við stofninn. Í júní árið 1844 drápu Ís- lendingar síðustu tvo fuglana í Eldey. Það hefur ef laust verið skammvinn hag- kvæmni. Árið 2009 beind- ist kastljósið að villi- kindastofni í Tálkna milli Patreksfjarðar og Tálkna- fjarðar. Í áratugi hafði háfætt villi- féð staðið af sér áhlaup stórviðra og manna. Af mannúðarástæðum var villifénu smalað með þeim af- leiðingum að stór hluti stofnsins féll fyrir björg og restinni var slátrað í sláturhúsi KS. Kjötið flokkaðist ágætlega og voru lömbin vel hæf til manneldis. Þannig var verstfirska villikindastofninum útrýmt – af mannúðarástæðum. Svo var það í síðustu viku að ís- bjarnargrey á þyngd við Íslending í stærri kantinum var skotið til bana af 30 metra færi á afskekktasta og fámennasta útnára Evrópu. Það þótti nauðsynlegt að drepa dýrið vegna mikillar hættu sem af því stafaði. Ekki var hægt að réttlæta verknaðinn á þeim forsendum að dýrið væri sýkt svo að hinum og þessum rökum hefur verið kastað fram til frekari réttlætingar. Nýj- ustu rökin eru þau að Grænlending- ar vilji ekki fá þessa birni því þeim hefur verið úthýst af ísbjarnaflokkn- um. Væri þó ekki nær að láta reyna á það og leyfa náttúrunni að hafa sinn gang í stað þess að taka völdin í okkar hendur og drepa – af hag- kvæmni- og mannúðarástæðum? Hvernig getur það verið mannúð að útrýma dýra- stofni? Rökin með og á móti þessum aðgerðum f ljúga um net- og f jöl- miðla en útkoman er alltaf sú sama: Það er drepið. Ef það væri mannúð að drepa dýr sem li fa v ið er f iðar aðstæður í nátt- úrunni þá væri mannúð að útrýma fjölmörgum dýra- tegundum, svo sem mörgæsum á Suðurskauts - landinu sem heyja mjög harða lífs- baráttu. Það er hreinlega rökvilla að halda því fram að það sé rétt að drepa dýr, sem lifa frjáls í nátt- úrunni, af mannúðarástæðum. Ákafi margra í að drepa af hag- kvæmni- og mannúðarástæðum er það ofsafenginn að það má spyrja sig hvort atvinnulausum sé óhætt í þessu landi. Nú er hafið uppbyggilegt verkefni til að bjarga ísbjörnum sem villast hingað til lands; The Reykjavík Pol- ar Bear Project. Stefnan er að hægt verði að fanga dýrin lifandi og flytja þau á sérstakt svæði þar sem þau safna kröftum undir eftirliti fag- manna. Þegar ísbjörninn hefur náð heilsu er honum sleppt aftur í heim- kynni sín. Hvert dýr verður metið sérstaklega og ef eitthvert dýranna er of gamalt eða slasað má hugleiða að veita því áhyggjulaust ævikvöld í Húsdýragarðinum í Reykjavík. Verkefnið virðist unnið í sjálfboða- vinnu og tekið er við styrkjum. Er annað hægt en að gleðjast yfir þessu? En ætli hagkvæmniraddirnar fari ekki brátt aftur að syngja við blóð- ugan undirleik. 38 viðhorf Helgin 13.-15. maí 2011 Austurströnd 3, 170 Seltjarnarnesi. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmda- stjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Í Fréttatímanum í dag er upplýst að ákvörðun lögreglustjóra höfuðborgar- svæðisins um að taka fjölmiðla með sér í húsleitir hjá meintum sakamönnum, brýtur í bága við leiðbeiningar Ríkislög- reglustjóra um samskipti lögreglu og fjöl- miðla. Leiðbeiningarnar eru afgerandi: „Myndatökur og viðtöl fjölmiðla inni í húsum, einkaheimilum eða fyrirtækjum eru háð samþykki viðkomandi húsráðanda og lögreglu meðan lögregla fer með stjórn á vettvangi.“ Lögreglustjóri höfuðborgar- svæðisins hefur hins vegar hingað til ekki talið sig þurfa að fara eftir þessum leiðbein- ingum. Í samtali við Frétta- tímann vísaði hann til þess að þar sem dómsúrskurður um húsleit hefði legið fyrir hefði hann verið í fullum rétti til að heimila sjálfur veru fjölmiðla inni á heimilum fólks. Þessu er Ríkislögreglustjóri ósam- mála. Dómsúrskurðurinn skiptir ekki máli. „Lögregla verður að gæta grundvallarreglna um frið- helgi heimilis og einkalífs.“ Ekki verður annað séð en að Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæð- isins, sé kominn í verulega vond mál. Nú þegar er til meðferðar hjá dómstólum ein húsleit manna Stefáns í fylgd fjölmiðla og er hárra skaðabóta krafist. Sá málarekstur stöðvaði Stefán hins vegar ekki við að blása til annarrar fjölmiðlahúsleitar. Hún hefur líka verið kærð. Undarlegt verður að teljast að Stefán og hans lið hafi ekki kannað á hversu traustum ís þeir stóðu áður en þeir héldu uppteknum hætti. Jafnvel leikmanni með lágmarksþekkingu á stjórnarskránni má vera ljóst að lögreglan er á heldur hæpnum slóðum þegar hún býður fjölmiðlum að taka myndir inni á heimilum fólks. Vissu- lega er það fínt efni fyrir okkur fjölmiðlana, en miður geðfelld meðferð á opinberu valdi. Einstaklingum er leyfilegt að gera hvaðeina sem ekki er bannað samkvæmt lögum, en aðgerðir þeirra sem fara með hið opinbera vald verða aftur á móti að hvíla á skýrum lagagrunni. Fjölmiðlahúsleitir Stefáns gera það ekki. Svo allrar sanngirni sé gætt er rétt að taka fram að Stefán hefur ekki verið for- hertur í brotavilja sínum á leiðbeiningum Ríkislögreglustjóra. Mismunandi viðhorf hans og Ríkislögreglustjóra komu ekki fram fyrr en í kjölfar fyrirspurna Fréttatím- ans. Það var rannsókn blaðsins sem leiddi í ljós afgerandi sjónarmið Ríkislögreglu- stjóra í þessum efnum. Og eftir standa bæði embættin löskuð. Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins fyrir það sem virðist vera freklegt rof á friðhelgi einkalífs og heimilis. Ríkislögreglustjóri fyrir að hafa látið óátalið að ekki væri farið að skýrum leiðbeiningum embættisins. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem Fréttatíminn upplýsir um lausatök í eftirliti með því hvernig lögreglan hagar störfum sínum. Fyrir tveimur mánuðum sagði Valtýr Sigurðsson, þáverandi ríkissaksókn- ari, að embætti hans hefði ekki burði til að annast lögbundið eftirlit með símahler- unum lögreglunnar. Ástæðan var einföld, að sögn Valtýs. Embætti ríkissaksóknara hefur hvorki mannskap né fjármuni til að sinna eftirlitshlutverki á þessu sviði, né ýmsum öðrum, eins og því er ætlað. Afskiptaleysi og þetta-reddast-viðhorfið á sér djúpar rætur í íslenskri þjóðarsál. Lögreglan og friðhelgi Vandmeðfarið opinbert vald Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Í Íris Ólafsdóttir rafmagnsverkfræðingur SUMARHÚSIÐ & GARÐURINN Stútfull af hugmyndum og leiðbeiningum fyrir garðeigendur H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n ATHYGLISVERÐ HÖNNUNARBÓK Fæst í bókabúðum um land allt Einnig hægt að panta í síma 578 4800 og á www.rit.is Ísbirnir Hagkvæmi, mannúðlegi og rökvillti Íslendingurinn Ákafi margra í að drepa af hagkvæmni- og mannúðarástæðum er það ofsafeng- inn að það má spyrja sig hvort atvinnu- lausum sé óhætt í þessu landi. G reiningu á samanburði á löggjöf Íslands og löggjöf Evrópusambandsins er að ljúka um þessar mundir eftir tæp- lega eins árs vinnu. Mikið hefur verið rætt og ritað um þetta ferli en stundum gleymst að geta þess sem mestu máli skiptir. Þessi nauð- synlegi undanfari eiginlegra samn- ingaviðræðna hefur dregið fram í dagsljósið muninn á löggjöf Íslands og Evrópusambandsins. Reikna má með að stærstur hluti íslenskrar löggjafar hafi fallið eins og flís við rass að löggjöf Evrópusambandsins enda búið að vera að móta íslenska löggjöf nánast daglega í sautján ár með nýjum tilskipunum og reglu- gerðum frá Brussel í gegnum EES- samninginn. Í þeim tilfellum þar sem ósamræmi er í löggjöfinni, líkt og í sjávarútvegs- og byggða- málum, hafa samningamenn getað lyft flaggi og viðrað áhyggjur sínar. Þetta vinnulag var vel þekkt áður en umsókn Íslands var send til Brussel í júlí í fyrra. Flest ágreiningsmálin lágu einnig fyrir en það dró hins vegar ekki úr þeirri skyldu samn- inganefndanna að bera nákvæmlega saman löggjöf beggja aðila enda lík- legt að eitt og annað hafi komið í ljós í þeirri rýnivinnu sem samningsað- ilar höfðu ekki séð fyrir. Umboðið er enn fyrir hendi Umboð samninganefndar Íslands hefur verið dregið í efa en nefnd- in hefur skýrt umboð frá Alþingi, sem og samningsmarkmið til að vinna eftir sem byggist á nefndar- áliti utanríkismálanefndar þar að lútandi. Þar er m.a. fjallað um hin stóru samningsmarkmið sem snúa að sjávarútvegi, utanríkismálum, landbúnaði, byggða- og umhverfis- málum. Ýmsir stjórnmálamenn hafa viljað reyna að hafa áhrif á ferlið og jafnvel stoppa það alveg en fyrir ligg- ur meirihlutasam- þykkt Alþingis um að sótt skuli um aðild. Það að hætta við umsóknina nú í miðri á væri eins og að segja að Al- þingi hafi ekkert meint með fyrri ákvörðun sinni. Ef draga á umsóknina til baka þá hlýtur það að vera verk- efni nýs Alþingis að undangengnum kosningum. Ann- að væri til þess fallið að rýra mjög trúverðugleika ís- lenskra stjórnvalda. Það er komið að stjórnmála- mönnunum Þeir stjórnmálamenn sem eru óþreyjufullir og klæjar mikið í fing- urna að komast að þessu ferli og hafa áhrif á það ættu að geta fagn- að nú þegar hinar eiginlegu samn- ingaviðræður hefjast í næsta mán- uði og ferlið færist upp á næsta stig. Þá verður tekist á um pólitík, hug- myndafræði og almenn lífsgildi og þá er eðlilegt að stjórnmálamenn fái aðgang að ferlinu. Þá ættu allir þeir stjórnmálamenn sem skoðun hafa á inngöngu Íslands í Evrópusam- bandið að geta látið ljós sitt skína og tekið afstöðu til efnislegra þátta sem eru til umfjöllunar í samninga- viðræðunum. Þetta byggist reyndar á þeirri nauðsynlegu forsendu að stjórnarandstöðuþingmenn muni hafa sama aðgang að samninga- viðræðunum og stöðu þeirra og stjórnarþingmenn og ráðherrar. Þetta er afskaplega mikilvægt bæði fyrir andstæðinga sem og fylgjendur aðildar inni á þingi, sama hvar í f lokki þeir standa. Ef þetta er ekki tryggt mun skapast þrýstingur á stjórnvöld að tryggja algert gegnsæi og öfl- ugt upplýsingaflæði til allra þingmanna, hagsmunaaðila og al- mennings og þá ekki bara þeirra aðila sem eru hluti af hinu formlega samninga- skipuriti. Annað væri afskaplega dapurt og ekki í anda fyrri stefnu sem meðal annars kemur fram í heildarskipulagi viðræðna sem ger- ir ráð fyrir mikilli aðkomu Alþingis og utanríkismálanefndar. Lognið á undan storminum Þegar efnislegar viðræður hefjast í júní munu stjórnarliðar þurfa að koma sér saman um nákvæmar út- færslur á samningsmarkmiðum. Þá skapast tækifæri, sérstaklega fyrir andstæðinga aðildar, til að reyna að hafa áhrif á samningsniðurstöðuna. Hvort stjórnarliðar sem eru á móti aðild munu vilja sjá sem hagstæð- astan samning fyrir Íslands hönd eða samning sem er óásættanlegur og yrði þá örugglega felldur í þjóðar- atkvæðagreiðslu, á eftir að koma í ljós. Það er því margt sem bendir til þess að innri átök Íslendinga sjálfra muni jafnvel verða fyrirferðarmeiri í samningaviðræðunum sem fram undan eru heldur en átökin við Evr- ópusambandið um samningsniður- stöðu. Hugsanlega er rýnivinnan eingöngu lognið á undan storm- inum. Aðildarviðræðurnar við ESB Rýnivinnan er nauðsynlegur undanfari Lognið á undan storminum Kristján Vigfússon aðjúnkt við viðskiptadeild Há- skólans í Reykjavík og forstöðu- maður Evrópufræða við skólann.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.