Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.05.2011, Qupperneq 74

Fréttatíminn - 13.05.2011, Qupperneq 74
kalla Norðurlandameistara í vandræðagangi, yndislegur sem maðurinn sem kann ekki að segja frá. Samsöngur hans og Álfrúnar Örnólfsdóttur í hik-beat-brjálæð- inu verður lengi í minnum hafður sem og táradalur Álfrúnar í æðis- legri „lauk-senu“. Grimmilega kímið rifrildi Dóru Jóhannsdóttur og Sveins Ólafs Gunnarssonar í upphafi verksins sló tóninn fyrir það sem á eftir fór – þar var allt undir; líkamsbeiting, tímasetningar, holning og rödd í afskaplega vel útfærðri senu/ sennu. Ógleymanlegur táldráttur Sögu Sigurðardóttur var feikna- flottur og Margrét Bjarnadóttir var hreinlega dáleiðandi í einu og öllu – ekki síst frumlegheita-orgí- unni ásamt piltunum tveimur. Gísli Galdur Þorgeirsson smíðar hljóðumgjörð verksins og spilar sig bæði inn í og út úr því. Hann er flottur MC og senuþjófur á köflum. Gísli gæti vafalítið blásið lífi í steingerving með sinni músík fengi hann færi á því. Útlit og yfir- bragð sýningarinnar er stílhreint og litríkt. Sviðið er hálf-klínískur hvítur leikvöllur, ofurlýstur af ljósameistaranum Ólafi Ágústi Stefánssyni. Hópurinn er skrif- aður fyrir leikmynd og búningum ásamt Rósu Hrund Kristjáns- dóttur. Hún ætti að vinna meira fyrir leikhús, eins fjölhæf og skarpskyggn og hún er og verk hennar bera vott um. Ég vil nýta þetta tækifæri til að biðja alla þá sem hafa séð undir- ritaða haga sér fáránlega í sam- kvæmum bljúgrar velvirðingar á því. Á sama tíma finn ég til mik- illar huggunar yfir því að vera ekki ein um þann asnagang. Sýningin Verði þér að góðu er frábær upp- taktur fyrir eða eftir partí, hana er hægt að ræða tímunum saman og endurleika fyrir vini sína. Endilega drífið ykkur í leikhús. Niðurstaða: Sýning fyrir alla sem hafa farið í partí, eða langar í partý. Kristrún Heiða Hauksdóttir Mér er nær að halda að þessi upp- færsla sé ígildi meist- araprófs í mannfræði.  Plötuhorn Dr. Gunna Ástin og lífið 1971-2011  Magnús og Jóhann Ég held að það þurfi ekki að taka það fram að Magnús og Jóhann eru frábærir lagahöf- undar, en þótt þeir hafi fylgst að hafa þeir aldrei samið lög saman. Þeir hafa lagt inn í ýmis hólf popps- ins, en mest verið í sjeddifínum ballöðum. Þar eru þeir góðir – stundum þó aðeins of harmrænir fyrir minn smekk – en glysrokk, flottrokk og svuntu- þeysapopp hefur líka virkað stórvel hjá þeim. Á þessum 40 laga tveggja diska ferils- pakka eru smellirnir vitanlega í hrönnum. Upprunalegar upptökur eru látnar standa, en lög sem aðrir tóku upprunalega eru hér flutt upp á nýtt af þeim sjálfum ásamt hljómsveit sem leidd er af Jóni Ólafssyni. Svo fáum við tvö glæný lög í kaupbæti. Flottur pakki frá miklum meisturum. ... en hún snýst nú samt  Start Pétur Kristjáns var búinn að vera í lægð í nokkur ár þegar yngri strákar, með Eika Hauks í fararbroddi, fengu hann í nýja rokkgrúppu, Start. Stefnan var tekin á ballspilamennsku og „kóperingar“ en svo varð frumsamið iðnaðarrokk ofan á og áhrifin komu frá böndum eins og Loverboy og Foreigner. Tónlist Start hefur elst ágætlega. Hittarar bandsins, Sekur, Seinna meir og Lífið og tilveran, eru enn jafn gasafínir og þeir voru, bara verst að hin lögin eru mörg hver ekki alveg jafn sterk, sum dálítið slöpp meira að segja. Á þessum diski er LP-platan, smáskífan og þrjú aukalög frá 21. öldinni. Það hefði alveg mátt splæsa í átta bls. í viðbót í bæklingnum, en svona heilt yfir er þetta ágætlega heppnuð endurútgáfa og rokkið hressilegt. Eurovision 2011  Ýmsir flytjendur Eurovision ætti að kynna manni músík- menningu Evrópulanda sem við heyrum aldrei frá annars. Þess í stað kynnir keppnin mann fyrir klisjum keppninn- ar sjálfrar, eins og þær hafa þróast í áranna rás. Íslensku sigur- lögin endurspegla til dæmis ekki íslenskan poppsamtíma, heldur eru þau kafli út af fyrir sig. En allavega: Eurovision-árgangurinn í ár er undir meðallagi þótt lögin hafi aldrei verið fleiri. Hér er þeim 43 raðað í stafrófsröð á tvo diska. Flest eru þunnildi sem gleymast hratt en nokkur rísa upp úr moðinu og gætu lifað lengur en fram á sunnudaginn. Það má samt alltaf hafa gaman að þessari keppni – komi maður sér bara upp húmor fyrir henni – og diskurinn er nauðsynlegur fyrir æstustu aðdáendurna. 66 menning Helgin 13.-15. maí 2011  lEikDómur VErði þér að Góðu Samkvæmisljónið krufið þ að er ýmislegt háskalega kunnuglegt í nýju leikriti hópsins Ég og vinir mínir en sýningin Verði þér að góðu er samt mjög fjarri því að vera fyrirsjáan- leg. Í verkinu er félagsleg hegð- un fólks í samkvæmum krufin með öllum mögulegum tólum sviðs- listarinnar. Viðkvæmni, tilgerð, öfgar og fáránleiki mannfólksins í allri sinni smæð (og stærð) er haglega komið til skila í bæði leik og dansi. Mér er nær að halda að þessi uppfærsla sé ígildi meistaraprófs í mannfræði. Innsæi aðstand- endanna og ástríða er nefnilega aðdáunarverð. Eitt aðalviðfangsefni verksins er hvernig samskipti mannskepnunn- ar flækjast gríðarlega við það eitt að einhver verður vitni að þeim. Partí-sjálfin leika afar lausum hala á sviðinu, eins og ýktar útgáfur af einstaklingum, og afhjúpa sig í litlum frásögnum þar sem allt snýst um að koma sem best fyrir. Þarna kristallast öryggi, gredda, athyglisþrá og hömluleysi félags- vera sem við flest könnumst við en sýningin er svo fyndin að það ískr- ar í salnum. Á sviðinu er hópurinn eins og vel smurð vél, afskaplega samstilltur og marghæfur en gefur þó færi á snörpum einstaklings- sprettum. Þannig var Friðgeir Einarsson, sem að sönnu mætti Verði þér að góðu  Ég og vinir mínir / Þjóðleikhúsið Er efsta talan óhneppt... ...hreinsaðu kroppinn fyrir sumarið ÞÆGILEG LEIÐ TIL AÐ HREINSA LÍKAMANN Á 10 DÖGUM KUREN 10 daga hreinsikúr (detox)* hefur hjálpað fjölmörgum að minnka mittismálið, efla meltingu og bæta dagsformið. *Ekki þarf að breyta um mataræði á meðan 10 daga KUREN hreinsikúr stendur en þeir sem vilja léttast er bent á að borða reglulega léttan og ferskan mat. Auðvelt blandið 25 ml. út í stórt glas af vatni og drekkið fyrir morgunmáltíð. 50% afsláttur Innflutningsaðili: Prentun.is Við bjóðum 50% afslátt af KUREN frá 10 maí til 10 júní (ef birgðir endast) á eftirfarandi sölustöðum: Öllum apótekum, heilsubúðum, Hagkaup, Fjarðarkaup og þín verslun Seljabraut. Getur þú styrkt barn? www.soleyogfelagar.is Viltu vera heimilisvinur? www.soleyogfelagar.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.