Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.05.2011, Side 76

Fréttatíminn - 13.05.2011, Side 76
Helgin 13.-15. maí 2011 Þessar vörur eru á frábæru BYKO klúbbstilboði í næstu BYKO verslun. Tilboðin gilda aðeins fyrir þá sem eru í BYKO klúbbnum. Fullt verð: 39.990 Vnr. 49620203 Reiðhjól 26” fjallahjól úr áli, 18 gíra, silfurlitað. 29.900 26“ afsláttur 10.000kr. Hjól úr áli Mikið úrval dekkjum! af sumar- Vinnur þú mið a á Eagles? EAGLES Tíu miðar fyrir tvo á Eagles BYKO ætlar að bjóða tíu heppnum BYKO- klúbbs félögum ásamt vini á tónleika með heimsfrægu hljóm sveitinni Eagles á A-svæðið í nýju Laugardals höllinni þann 9. júní nk. Allir handhafar BYKO-klúbbskortsins fara sjálfkrafa í pott þegar þeir versla í BYKO. Verður þú á tónleikunum? Ekki láta þennan BYKO-klúbbsleik fram hjá þér fara! Dregið 30. maí 2011. Það er þess virði að vera korthafi! að auki færðu 5.000 kr. fyrir gamla hjólið upp í nýtt hjól! Þú færð 4.000 kr. ávísun að auki upp í dekkjaskipti hjá MAX1 með hverjum keyptum dekkjagangi. Það margborgar sig að kaupa dekkin í BYKO! af sumardekkjum! 20% afsláttur Þú getur skráð þig í BYKO-klúbbinn í næstu verslun eða á www.byko.is Gildir til 19. maí 2011 BYKO klúbbstilboð! S teindi jr. hefur ekki átt í erfiðleikum með að fá þekkt fólk til að leggja sér lið í vinsælum gamanþáttum sínum sem sýndir eru á Stöð 2. Í þættinum á fimmtudag bauð Steindi upp á tónlistar- myndband þar sem hann tefldi fram þokkafullum fyrirsætum sem settu sterkan svip á stemninguna. Fyrirsætan Bryndís Gyða Michelsen tók að sér að smala nokkrum vinkonum sínum saman í atriðið og skemmti sér konunglega við tökur fyrr í vikunni. Hún spáði mjög fyndnum þætti á Facebook-síðu sinni á miðvikudaginn. „Lagið fjallar um náunga sem er alltaf í ógeðslega trylltu dæmi. Hann er í geðveiku partíi þar sem Helgi Björns er plötusnúður og Magnús Ver er þjónn inni á baði. Þetta er svo svakalegt VIP-dæmi að þeim var ekki boðið heldur voru þeir fengnir til þess að vinna í þessu partíi,“ segir Steindi. „Stelpurnar þurftu svo bara að vera sætar en þær eru með mér í partíinu og á golfvelli þar sem Birgir Leifur er kylfusveinn og ég er að taka hring með Agli Ólafssyni og Sölva Tryggvasyni. En lagið gengur út á að það er alveg sama hversu fjörið er mikið, partíið gott eða mikil stemn- ing á golfvellinum, gaurinn langar samt eiginlega alltaf aðeins meira til að vera bara heima hjá sér að gera ein- hverja ómerkilega hluti.“ Steindi og félagar keyra sig hart þessa dagana og þótt þeir eigi til mikið af efni eru þeir iðulega að taka upp efni í byrjun viku fyrir þáttinn næsta fimmtudag. „Við erum búnir að missa út sketsa í raun vegna ritskoðunar þannig að við erum alltaf að taka upp nýtt og nýtt efni og erum farnir að gera þetta mikið jafnóðum. Við sofum lítið þessa dagana,“ segir Steindi sem lumar á ýmsu í næstu þáttum. Í gellufans á golfvelli  Steindi jr. Sefur lítið þeSSa dagana Steindi fram- leiðir efni eins og vindurinn og ekki veitir af þar sem ritskoðun veldur nokkrum afföllum.  tónleikar Átthagafélag VeStmannaeyinga Fagna 100 ára afmæli Oddgeirs Kristjánssonar S önghópur Átthagafélags Vestmannaeyinga á Reykjavíkursvæðinu heldur tónleika í kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg í Reykjavík laugardaginn 14. maí klukkan 15. Á efnis- skránni eru ýmis Eyjalög og textar. Í ár eru hundrað ár liðin síðan eitt ástsælasta söngvaskáld Vestmannaey- inga, Oddgeir Kristjáns- son, fæddist og eru þessir tónleikar hluti af röð atburða á vegum Vestmannaeyinga til að minnast þessa jöfurs í tón- listarsögu Vestmannaeyja. Á meðal laga Oddgeirs eru til að mynda Vor við sæinn, Ég veit þú kemur og Ágústnótt. „Okkar helsta markmið er að halda á lofti tónlist og textum frá Vestmannaeyjum og sjá til þess að þessi tón- listararfur deyi ekki,“ segir Hafsteinn G. Guðfinns- son, stjórnandi sönghópsins, í samtali við Fréttatímann. Hópurinn hefur verið starf- ræktur í sex ár og meðal ann- ars farið á norrænt vísnamót í Saro í Svíþjóð. -óhþ Sönghópur Áttahagafélags Vestmannaeyinga í Reykjavík. Lj ós m yn d/ G uð ný H el ga G uð m un ds so n

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.