Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.05.2011, Page 78

Fréttatíminn - 13.05.2011, Page 78
Já, ég datt bara um þennan mann við þröskuldinn heima hjá mér.” L eikkonan Þóra Karítas Árnadóttir frumsýnir kvik- mynd sína, Bak við dyrnar, í Bíó Paradís á morgun, laugardag, en hún fjallar um grúskarann Guðlaug Leósson. Þóra kynntist Guðlaugi þegar hann gerði upp útidyra- hurðina á heimili hennar við Hávallagötu í Reykjavík. „Já, ég datt bara um þennan mann við þröskuldinn heima hjá mér. Svona getur þetta verið, maður þarf ekki að leita langt yfir skammt til að finna góðar sögur. Hurðir eru eiginlega hans listform. Hann er algjör sérfræðingur í stríðsárunum á Íslandi og veit ótrúlegustu hluti í gegnum byggingasöguna. Hann benti mér til dæmis á að Steinn Steinarr hefði búið í húsinu mínu,“ segir Þóra en verkið er hennar frumraun í kvikmyndagerð. Guðlaugur er, að mati Þóru, merkilegur maður fyrir margra hluta sakir. Hann er kennari, lærði leikhúsförðun og hefur kennt skyndihjálp svo að eitt- hvað sé nefnt. En hurðir eru hans ær og kýr. „Fókusinn í myndinni er á hurðir en Guðlaugi þykir vænt um hurðirnar sem hann hefur gert upp um alla borg. Hann segir þær vera andlit heimilis- ins.“ Myndin er níu mínútna löng og liður í skæruhernaðarátaki Klapps kvikmyndagerðar sem heldur uppskeruhátíð sína í bíóinu á laugardag. Alls verða sýndar sjö kvikmyndir. -ÞT  kVIkMYNDAGERÐ ÞóRA kARítAs GERÐI stuttMYND uM huRÐIR  sóLEY ELíAsDóttIR í fLjótANDI huGLEIÐsLu 1001 íslensk nótt á Loftleiðum Þetta verður lúxus fyrir fullorðna með svo- lítið öðrum fókus en er á líkamsræktar- stöðvunum í bænum. Eilíf endurtekning hins sama Nettur tryllingur fór um einhverja skyldu- áskrifendur RÚV þegar Sjónvarpið bauð upp á beina útsendingu frá handboltaleik Akureyrar og FH í stað þess að sýna frá fyrstu tónleikunum í Hörpunni. Ýmsar ástæður lágu að baki því að ekki var sýnt beint frá tónleikunum þetta mið- vikudagskvöld og þau boð látin út ganga að tónelskir skyldu eigi æðrast þar sem dagskrá tónleikanna yrði endurtekin á fimmtudagskvöldið og þá tæki RÚV hana upp og herlegheitunum yrði sjónvarpað um hvítasunnuna. Eitthvert fát kom þó á sjónvarpsliðið þegar í ljós kom að upptaka fimmtudagsins mistókst en góðu heilli voru sömu tónleikar einnig á dag- skrá á föstudeginum og því var brugðið á það ráð að endurtaka fimmtudagskvöldið með tilheyrandi ávörpum og uppklappi. Þetta kom einhverjum tónleikagesta spánskt fyrir sjónir en áhorfendur heima í stofu eiga varla eftir að sjá muninn á fimmtudags- eða föstudagskvöldi. Þ etta er bara gamla sundlaugin á Loftleiðum þar sem verið er að gera allt upp frá grunni,“ segir Sóley og bætir við að hótelið eigi að vera um- hverfisvænt og allar breytingar miðist við það markmið. „Þú gengur í raun bara inn á nýtt hótel og þetta er allt öðruvísi en það var.“ Sóley segir að jóga og hugleiðsla verði mikilvægir þættir í nýju heilsulindinni. „Og svo notum við bara lífrænar og nátt- úrulegar vörur og það verður boðið upp á Sóleyjar-meðferðir og líkamsskrúbb með vörunum mínum. Þarna verða líka nudd- stofur og gesturinn kemur inn í ákveðinn hugarheim þar sem maður vonar að hann finni fyrir stað og stund. Sundlaugin verð- ur ekki beint sprikllaug fyrir börn heldur meira fyrir fólk til þess að koma og slaka á og næra líkama og sál í fljótandi hug- leiðslu. Það er hugmyndin á bak við þetta, að næra anda, líkama og sál. Hugmynd- irnar eru dálítið stolnar frá arabískum bað- húsum þannig að þetta verður svona eins og íslenskt-arabískt baðhús með íslensk- um náttúruvörum.“ Upphafið að heilsulind Sóleyjar á Loft- leiðum má rekja til þess þegar Icelandair- hótelin leituðu til hennar þar sem áhugi var á því að bjóða upp á íslenskar sápur og sjampó á hótelunum. Snyrtivörur sem væru unnar úr íslenskum jurtum, hefðu ákveðna sérstöðu og væru umhverfisvæn- ar. „Þannig byrjaði þetta og þetta verður lúxus fyrir fullorðna með svolítið öðrum fókus en er á líkamsræktarstöðvunum í bænum.“ Sóley hefur í mörg horn að líta og er með marga bolta á lofti í einu. Áætlað er að heilsulindin verði opnuð 3. júní og nú hillir undir að sérverslun undir merkjum Sóleyj- ar verði opnuð í Danmörku en Sóley kom þaðan á miðvikudag eftir stíf fundahöld. „Ég er að gera þetta með fólkinu sem ég hef starfað með í Danmörku. Þau eru með stórar hugmyndir en maður vonar bara það besta. Danirnir eru teknir við þessu þannig lagað en maður þarf samt alltaf að vera þar með annan fótinn, taka þátt í áætl- anagerð og horfa fram á veginn. Orkan er búin að fara dálítið mikið í útflutning- inn undanfarið og nú þarf ég að fara að einbeita mér meira að heimamarkaðinum. Þetta fór mjög vel af stað og gengur mjög vel en ég vil vera meira í þessu sjálf hér heima.“ toti@frettatiminn.is Dyr eru andlit heimilisins Leikkonan Sóley Elíasdóttir hefur verið að gera það gott undanfarið með Sóley Organics-snyrtivörulínunni sinni. Á næstunni verður opnuð verslun í Danmörku undir merki Sóleyjar og hér heima hefur hún í nógu að snúast þar sem hún opnar heilsulind á Hótel Loftleiðum um mánaðamótin. Hún segist horfa til arabískra baðhúsa en byggir annars á lífrænni hugmyndafræðinni að baki snyrtivörunum sem verða vitaskuld hafðar í hávegum. Tilvonandi forseti í fertugsafmæli Ráðgjafinn, grínarinn og myndagátusmiður Eyjunnar, Halldór Högurður, hélt upp á fertugsafmæli sitt í Gyllta sal Hótel Borgar um síðustu helgi og síðan var djammað fram á nótt á Gamla pósthúsinu í næsta húsi. Góður hópur fagnaði með afmælisbarninu og má þar á meðal nefna Eirík Jónsson blaðamann, kær- ustuparið Tobbu Marinós og Karl Sigurðsson og byltingarhetjuna Hörð Torfa sem tók nokkur lög. Ragna Árna- dóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra og skrifstofustjóri Landsvirkjunar, lét einnig sjá sig en Halldór kynnti hana í salinn með þeim Sóley er lífrænt þenkjandi en segist þó hvorki vera grænmet- isæta né borða einungis lífrænt ræktað. Hún er að leggja lokahönd á ís- lensk-arabískan slökunarheim á Hótel Loft- leiðum. orðum að þarna færi næsti forseti lýðveldisins. Ragna kallaði á móti að þessi kynning hefði verið lúaleg en Halldór gerði skyndiskoðanakönnun á fylgi Rögnu með handauppréttingum og sam- kvæmt niðurstöðunni á Borginni er Ragna komin langleiðina á Bessastaði. Kvikmyndagerðarmenn á Flateyri Flateyri laðar að sér kvikmyndagerðarmenn um þessar mundir en sagan segir að þar fæðist kvikmyndahandrit í öðru hverju húsi. Huldar Breiðfjörð rithöfundur hefur aðsetur í bænum en hann ku vera langt kominn með handrit að kvikmynd sem vonast er til að tekin verði upp í sumar. Þá er Bjarni Þór Sig- björnsson leikmyndahönnuður með nokkur verkefni á teikniborðinu og leikstjórinn Hafsteinn Gunnar Sigurðsson mun vera langt kominn í undirbúningi að sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd en hann leikstýrði verðlauna- stuttmyndinni Skröltormar fyrir nokkrum árum. Ný kynslóð Rafskutlur -frelsi og nýir möguleikar Einfaldar í notkun og hagkvæmar í rekstri Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Opið virka daga kl. 9 -18, lokað á laugardögum 1. maí til 31. ágúst 70 dægurmál Helgin 13.-15. maí 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.