Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.04.2011, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 15.04.2011, Blaðsíða 4
Vaxandi útgjöld til heilbrigðismála ... þetta svokallaða byggingar­ réttargjald sé ólögmæt skattheimta sem stjórn­ sýsluvaldi á borð við Reykja­ víkurborg sé óheimilt að innheimta án lagabreytinga. CINTAMANI WWW.CINTAMANI.IS Úlpuveður Lokaðu kuldabola úti og hleyptu honum ekki aftur inn. Strekkingur og jafnVel hVaSSt af SV. Él eða SlydduÉl um landið VeStanVert, en þurrt eyStra. fremur SValt í Veðri. höfuðborgarSVæðið: Krapaél að deginum og jörð nær alhvít um Kvöldið. rigning eða Slydda VeStanlandS um morgun- inn en annarS að meStu þurrt og Sólríkt og Sæmilega hlýtt auStanlandS. höfuðborgarSVæðið: rigning fyrst um morguninn, en síðan að mestu þurrt. heldur hlýnandi í bili. kólnar aftur með SV-átt og Éljum VeStantil. fryStir um meStallt land um kVöldið. höfuðborgarSVæðið: slydduél yfir dag- inn en sól á milli. snjóél um Kvöldið. enn suðvestansteytingur og úrkomusamt ekkert bólar enn á reglulegri vorveðráttu a.m.k. ekki suðvestan- og vestanlands. austan til á landinu hefur verið mun skárra og þar er spáð ágætu veðri og hita á laugardag. loftið úr vestri verður hér allsráðandi fram í dymbilvikuna. það er bæði svalt og rakt. því verður áfram þessi steytingur vestanlands, vindasamt og með krapaéljum. meira að segja eru allar líkur á því að það geri snjóföl á höfuðborgarsvæðinu í kvöld og síðan aftur seint á sunnudag. vonandi að páskaveðrið verði okkur hagfelldara en þetta! 2 0 2 5 4 4 2 5 8 5 3 0 3 5 3 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is Föstudagur laugardagur sunnudagurveður Heildarútgjöld til heilbrigðismála hafa vaxið verulega síðasta aldarfjórðung eða úr ríflega 6,3% af landsframleiðslu í upphafi níunda áratugarins í ríflega 9,3% af landsframleiðslu á síðasta ári. Það samsvarar 143,5 milljörðum króna á verðlagi þess árs, að því er fram kemur í Hagtíðindum. Eftir þessum mælikvarða reyndust útgjöldin hæst árið 2003 eða 10,4% af landsframleiðslu. Af heildarútgjöld- um til heilbrigðismála greiðir hið opinbera 115,6 milljarða króna og einkaaðilar 27,9 milljarða. Á þremur áratugum hafa útgjöld hins opinbera til þessa málaflokks aukist úr 5,5% af landsfram- leiðslu í 7,5%. Á sama tíma hafa útgjöld heimilanna ríflega tvöfaldast, úr 0,8% af landsframleiðslu í 1,8%. Hlutur heimilanna hefur aukist verulega frá 1980 eða úr 12,8% af heildarútgjöldum í 19,5% árið 2010. Hámarki náði hlutur þeirra árið 1998 er hann nam 19,6% af heildarútgjöldum til heilbrigðismála. Heildarútgjöld til heilbrigðismála í ríkjum OECD voru að meðal- tali 9% af vergri landsframleiðslu ríkjanna árið 2008 en mikill munur er á því hlutfalli milli einstakra ríkja. Í Bandaríkjunum var hlutfallið t.d. 16% árið 2008 -jh 9,3% Útgjöld til heilbrigðismála sem hlutfall af landsfram- leiðslu 2010 14. apríl 2011 Hagtíðindi R eykjavíkurborg gæti þurft að greiða milljarða úr sjóðum sínum ef dóms-mál, sem hún stendur í gegn fjöl- mörgum lóðaeigendum, tapast. Lóðaeigend- urnir vilja skila inn lóðum sínum en borgin hefur ekki tekið við einni einustu lóð eftir hrunið í október 2008. Þá ákvað þáverandi meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks að setja stopp á skil á atvinnuhúsa- og útboðslóðum. Þetta skilaði sér í fjölmörgum dómsmálum af ýmsum toga enda lóðirnar margar og ólíkar. Hæstiréttur hefur sýknað borgina í einu máli gegn Europris sem vildi skila til baka atvinnuhúsalóð í Hádegismóum sem félagið fékk árið 2007. Byggði stefnandi kröfu sína á því að forsendur hefðu breyst með hruninu. Borgin getur þó ekki byrjað að fagna strax. Jóhannes Bjarni Björnsson hæsta- réttarlögmaður vann í héraðsdómi mál gegn borginni vegna þriggja atvinnuhúsalóða sem úthlutað var í Lambhaga við rætur Úlfarsfells. Hann segir að málið hafi verið byggt á þeim forsendum að það hafi alltaf verið heimilt að skila þessum lóðum. „Það var til að mynda til skriflegur samningur við Bauhaus sem fékk lóð úthlutað á sama stað og þar var kveðið á um rétt til að skila lóðinni. Það ákvæði í samningnum var lagt fram fyrir dómi enda óeðlilegt og skrýtið að það gildi ekki sömu reglur fyrir aðra lóða- hafa á sama svæði,“ segir Jóhannes Bjarni. Málið verður flutt fyrir Hæstarétti í maí. Í dag, föstudag, fer fram aðalmeðferð í máli Verklands gegn Reykjavíkurborg þar sem tekist er á um annan anga af lóðaút- hlutun. Verkland fékk úthlutað í útboði árið 2006 fjölbýlishúsalóð við Nönnubrunn í Úlf- arsárdal sem það vill skila. Félagið greiddi rúmlega 81 milljón fyrir lóðina. Byggingar- réttargjald, sem er mismunur lóðaverðsins og gatnagerðar- og holræsagjalds, var um 93 prósent af þeirri upphæð. Einar Gautur Steingrímsson, lögmaður Verklands, bygg- ir kröfu sína um skil á lóðinni á því að þetta svokallaða byggingarréttargjald sé ólögmæt skattheimta sem stjórnsýsluvaldi á borð við Reykjavíkurborg sé óheimilt að inn- heimta án lagaheimildar. Vísar hann þar til stjórnarskrárinnar þar sem skýrt er kveðið á um að engan skatt megi leggja á né breyta né taka nema með lögum. Tekist verður á um þetta atriði fyrir rétti í dag. Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður hefur verið „í felum“ alla vikuna við að undirbúa málflutn- ing og því náðist ekki í hana. Ágúst Jóns- son, framkvæmdastjóri eignasviðs borgar- innar, sagðist ekkert geta tjáð sig um málið og vísaði á borgarlögmann. Þá eru einnig fram undan málaferli vegna úthlutunar lóða í Fossvogi árið 2007. Einar Gautur fer einnig með það mál fyrir nokkra lóðahafa og segir hann að stefnt verði í þeim málum fyrir sumarið. Það þurfi enda að hafa hraðar hendur þar sem þessi mál séu að fyrnast. Um er að ræða lóðir við tvær götur, Skógarveg og Lautarveg. Af þessu öllu má sjá að óhagstæðar niður- stöður í þessum málum geta haft ófyrir- séðar afleiðingar fyrir Reykjavíkurborg. Um er að ræða hagsmuni sem gætu hlaupið á milljörðum – milljörðum sem magrir sjóðir borgarinnar eiga erfitt með tína til. oskar@frettatiminn.is Milljarðar gætu fallið á Reykjavíkurborg ef lóðadómsmál tapast borgin stendur í ströngu í dómsmálum vegna lóðaskila. fjölmörg mál af ólíkum toga malla í dómskerfinu á mismunandi stigum og gætu kostað Reykjavíkurborg fúlgur fjár ef þau tapast.  dómsmál lóðaskil séð yfir Úlfarsárdal. hjörleifur b. kvaran, lögmaður og fyrrverandi forstjóri OR, var kallaður til í einu af lóðamálunum sem sérfræðivitni vegna starfsreynslu hans sem skrifstofustjóri Borgarverkfræðings. hann fjallaði um lóðaskil í sögulegu samhengi og sagði að það hefði ávallt tíðkast að lóðahafar gætu skilað lóðum til baka. kristbjörg Stephensen borgarlög- maður var ekki hrifin af málflutningi hans og kall- aði hann „ótrúverðugt og fjandsamlegt vitni“ sem væri með falsvitnisburði að ná sér niðri á borginni fyrir að reka hann úr for- stjórastarfi hjá Orkuveitu Reykjavíkur. hjörleifur segir í samtali við Fréttatímann að ef menn vilji hrekja vitnisburð hans þá verði þeir að gera það. „ef sannleikurinn er fjand- samlegur þá verða menn bara að lifa með því,“ segir hjörleifur. spurður um hvort hann væri að hefna sín á borginni sagði hjörleifur það af og frá. honum þætti óskaplega vænt um borgina. „ég held ég hafi sterkari taugar til borgarinnar en til að mynda borgarlögmaður sem býr, að því er ég best veit, í Hafnarfirði,“ segir hjörleifur. -óhþ „Ótrúverðugt og fjandsamlegt vitni“ Lj ós m yn d/ H ar i 4 fréttir helgin 15.-17. apríl 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.