Fréttatíminn - 15.04.2011, Qupperneq 42
34 viðhorf Helgin 15.-17. apríl 2011
Austurströnd 3, 170 Seltjarnarnesi. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmda-
stjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is.
Auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Það hefur verið nokkuð lífseig mýta í
eftirhrunsumræðunni að yfirvöld í öðrum
löndum hafi gengið hraðar og harðar fram í
rannsóknum á meintum glæpum í fjármála-
lífinu. Í því sambandi hefur mál Bernards
Madoffs meðal annars verið nefnt sem dæmi
um hvernig yfirvöld eigi að höndla fjármála-
menn sem fara út af sporinu. Í desember
2008, nokkrum mánuðum eftir að villt
fall hófst á bandarískum hlutabréfamörk-
uðum, handtóku yfirvöld Madoff og ákærðu
fyrir alvarleg svik. Í júní árið eftir var hann
dæmdur til upptöku á tugum milljóna doll-
ara og 150 ára fangelsisvistar.
Fannst ýmsum þarna vera komið gott for-
dæmi fyrir íslensk yfirvöld
um snaggaralega afgreiðslu á
rannsóknum og eftir atvikum
dómum yfir meintum skúrk-
um íslenska bankakerfisins.
Hið rétta er þó að meðhöndl-
un bandarískra yfirvalda á
Madoff er hreint ekki til fyrir-
myndar. Þrátt fyrir ítrekaðar
ábendingar í hartnær áratug
um að rekstur Madoffs gæti
ekki fræðilega gengið upp, sinntu eftirlits-
stofnanir þeim í engu. Reyndar er alls ekki
hægt að þakka bandarískum yfirvöldum
að upp komst loks um kauða. Það gerðist
ekki fyrr en hann játaði fyrir sonum sínum
að milljarða-dollara rekstur fjölskyldu-
fyrirtækisins væri byggður á tröllvaxnasta
píra mídasvindli sögunnar. Daginn eftir til-
kynntu þeir um málið til yfirvalda. Fram-
haldið var rakið hér að ofan. Mál Madoffs
tengist hins vegar ekki hruninu. Svindl hans
hafði staðið áratugum saman.
Þegar kemur að því að dæma ráðamenn
fyrir ólöglegt athæfi við hrunið á fjármála-
mörkuðum 2008 eru Íslendingar í reynd
framar Bandaríkjamönnum. Hér hefur að
minnsta kosti einn hlotið fangelsisdóm:
Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneyt-
isstjóri í fjármálaráðuneytinu. Í grein sem
birtist í New York Times í gær, fimmtudag,
kemur fram að ekki einn einasti stjórnandi
bandarísks fjármálafyrirtækis hefur hlotið
dóm í tengslum við fjármálakreppuna sem
brast á 2008. Í grein bandaríska stórblaðsins
er rifjað upp að allt annað var uppi á ten-
ingnum aldarfjórðungi fyrr þegar um 1.100
bandarískir bankamenn voru ákærðir og
yfir 800 enduðu á bak við lás og slá í kjölfar
hruns þarlendra fasteignalánafyrirtækja.
Í greininni kemur fram að ýmsir fyrrum
saksóknarar, lögmenn og starfsmenn fjár-
málafyrirtækja telja að yfirvöld hafi ekkert
lært af hremmingunum á níunda áratug
síðustu aldar. Þvert á móti hafi smám saman
verið slakað á eftirliti með fjármálafyrirtækj-
um og dregið úr fjárveitingum til stofnana
sem því sinntu. Í grunninn var hugmyndin
sú að markaðir væru fullfærir um að hafa
eftirlit með sjálfum sér. Sú reyndist ekki
raunin, eins og við Íslendingar fengum líka
dýrkeypta kennslustund í.
Þótt margir vilji gera sem minnst úr getu
þjóðarinnar til að fást við eftirköst hrunsins
eru Íslendingar, þegar upp er staðið, hvorki
mikið verri, né skárri en aðrar þjóðir í þeim
efnum. Og við virðumst líka vera alveg jafn
ónæm fyrir lærdómnum sem hægt er að
draga af sögunni.
Lærdómur sögunnar
Gullfiskaminnið
Jón Kaldal
kaldal@frettatiminn.is
Þ
Þegar kemur að því að dæma ráðamenn fyrir ólöglegt
athæfi við hrunið á fjármálamörkuðum 2008 eru Íslend-
ingar í reynd framar Bandaríkjamönnum. Hér hefur að
minnsta kosti einn hlotið fangelsisdóm.
Útgjöld hins opinbera
Rangar áherslur í menntamálum
M enntamál eru líklega sá hluti af starfsemi og útgjöldum hins opinbera sem hvað mest
áhrif hefur á lífskjör til langs tíma litið.
Rangar áherslur hafa áhrif langt inn í
framtíðina og langan tíma tekur fyrir
leiðréttingar að skila sér út í samfé-
lagið.
Ekki er hægt að gagnrýna stjórn-
völd hér á landi vegna lágra heildar-
útgjalda til menntamála, enda verjum
við Íslendingar stærri hluta okkar
þjóðartekna til menntamála en flestar
aðrar þjóðir, meðal annars vegna ungs
aldurs þjóðarinnar. En verulega rangar
áherslur eru í skiptingu útgjaldanna
sem munu óhjákvæmilega skerða sam-
keppnishæfni landsins þegar til lengri
tíma er litið:
Við eyðum of miklum fjármunum
í grunnskólastigið en alltof litlum fjármunum í há-
skólastigið. Grunnskólinn hér á landi er einn sá
dýrasti í OECD en um leið er Ísland eina landið innan
OECD þar sem minni fjármunir fara til menntunar
hvers háskólanema en grunnskólanema (Heimild:
Skýrsla OECD. Education at a glance 2010). Í þeim
löndum sem við viljum helst bera okkur saman við
er þetta hlutfall frá tæpum tveimur og upp undir
þrjá, það er hver háskólanemi kostar tvöfalt til þrefalt
meira á ári en grunnskólaneminn. Miklir fjármunir til
grunnskóla hafa ekki skilað sér í sérstökum árangri
íslenskra grunnskólanema á alþjóðlegum prófum en
litlir fjármunir til háskóla munu, þegar
til lengdar lætur, því miður skila sér í
síðri menntun en í öðrum löndum.
Ísland er líklega eina landið í heim-
inum sem brugðist hefur við efnahags-
kreppu með því að skera niður nám í
tækni- og raunvísindum á háskólastigi
langt umfram aðrar greinar. Tækni- og
raunvísindi eru ein helsta undirstaða
efnahagsframfara hvar sem er í heim-
inum og þessi mikli niðurskurður mun
hafa bein áhrif á tækniþekkingu og
tæknistig í landinu og þar með sam-
keppnishæfni okkar meðal þjóða heims.
Í þeim löndum þar sem tækni- og efna-
hagsframfarir eru mestar átta stjórn-
völd sig á samhengi þessara hluta og
leggja gríðarlega áherslu á menntun á
þessum sviðum. Hér á landi er það ekki
raunin.
Rangar áherslur með dýrum grunnskólum en fjár-
sveltum háskólum eru verk margra ríkisstjórna og
okkur Íslendingum virðist erfitt að átta okkur á sam-
hengi æðri menntunar og efnahagslegrar velgengni.
En sérstakur niðurskurður tækni- og raunvísinda-
náms á tímum þegar atvinnulífið kallar eftir auknum
fjölda vel menntaðs fólks á því sviði er verk núverandi
ríkisstjórnar einnar og sér. Á tyllidögum er oft talað
um Íslendinga sem eina best menntuðu þjóð í heimi.
Við erum það hins vegar ekki og með núverandi
áherslum í menntamálum verðum við því miður langt
frá því í framtíðinni.
Gunnar Guðni Tómasson
forseti tækni- og verkfræði-
deildar Háskólans í Reykjavík
Fært til bókar
Skrautfjöður í stjórnarhattinn
Samningur um sölu á starfsemi MP
banka á Íslandi og í Litháen var
samþykktur á hluthafafundi
bankans í vikubyrjun. Nýr
eigendahópur tekur við
allri starfsemi bankans í
þessum tveimur löndum
og verður hún áfram rekin
undir nafni MP banka, en til
stendur að breyta nafni hans
í framtíðinni. Eignir í Úkraínu hafa
verið aðskildar frá rekstrinum og verða
áfram í eigu fyrrverandi hluthafa. Nýir eig-
endur leggja inn í bankann 5,5 milljarða
króna í nýju hlutafé. Stærsti hluthafinn í
bankanum verður Títan fjárfestingarfélag
sem er í eigu Skúla Mogensen. Meðal
annarra stórra hluthafa eru Joseph C.
Lewis, sem m.a. á Tavistock Group, og
Rowland-fjölskyldan sem á m.a. Banque
Havilland í Lúxemborg. Stjórnarformaður
nýrrar stjórnar MP banka er Þorsteinn
Pálsson, fyrrum forsætisráðherra. Fróð-
legt verður að fylgjast með þeim grand-
vara lögfræðingi, sem ekki er vitað til
að hafi mikla reynslu af bankarekstri,
fást við hákarla viðskiptalífsins,
Joseph C. Lewis og David „Spotty“
Rowland. Í Bretlandi hefur það ver-
ið gagnrýnt að ráða menn í stjórnir
fyrirtækja með þeim hætti sem
nefndur er „Lord on the Board“, en
kalla má á því ástkæra ylhýra: Skraut-
fjöður í stjórnarhattinn. Joseph C. Lewis
hefur áður fjárfest í banka, keypti á sínum
tíma 10% hlut í fjárfestingarbankanum
Bear Sterns. Sú fjárfesting skilaði litlu
enda féll Bear Sterns vegna svokallaðra
undirmálslána í bankakreppunni 2008 og
var yfirtekinn af JPMorgan Chase. Hlutur
í Bear Stern, sem metinn hafði verið á yfir
133 dollara, féll niður í tíu dollara. Það
verður því varla jafn rólegt hjá Þorsteini
í þessari stjórn og framkvæmdastjórn
Hjálparstarfs kirkjunnar þar sem hann er
líka formaður.