Fréttatíminn - 15.04.2011, Síða 62
54 tíska Helgin 15.-17. apríl 2011
Kauptu stílinn samantha Rowley
Með fjöl-
marga
aðdáendur
á eftir sér
Breska leikkonan og fyrirsætan Samantha Rowley er 23 ára
og hefur verið þekkt andlit
í heimalandi sínu í sex ár.
Hún hefur leikið í mörgum
raunveruleikaþáttum,
kvikmyndum og tekið að sér
störf sem fréttastjórnandi hjá
virtum sjónvarpsstöðvum í
Bretlandi. Hún er mikil gyðja
og á fjölmarga aðdáendur
sem líta upp til hennar. Hún
er alltaf sæt, flott og kann
svo sannarlega að klæða sig
eftir nýjustu tísku.
Sautján, 2.990 kr.
Sautján, 7.990 kr.
Vila, 7.990 kr.
Accessories, 6.649 kr.
Fókus, 7.990 kr.
Tvíburasysturnar Mary-Kate og Ashley Olsen hafa lagt leiklistina á
hilluna og áttað sig á því að tískuheimurinn er móttækilegri fyrir þeirra
verkum. Þær eru sannkallaðar tískugyðjur og eiga fjöldann allan af dyggum
aðdáendum sem taka upp hvaða tískutrend sem þær fitja upp á. Á síðustu
árum hafa þær haldið úti sínu eigin fatamerki og hafa nú ákveðið að taka
það skrefinu lengra. Næsta fatalína þeirra mun aðeins verða í boði á net-
verslun sem þær hafa stofnað, stylemint.com. Þær verða í beinum tengslum
við viðskipta vini sína, svara
fyrirspurnum og gefa þeim ráð.
Þær segja að þetta muni því auka
samskipti þeirra við viðskipta-
vinina, stækka kúnnahópinn og
gera hann alþjóðlegri. Þetta er ný
reynsla fyrir þær og mun endur-
spegla ást þeirra á tískunni. Síðan
verður opnuð í júní á þessu ári og
þá geta íslenskir aðdáendur fjár-
fest í hönnun þeirra.
Kúnnahópurinn verður alþjóðlegriHitamælirinn
Gulur, rauður, grænn
og blár. Sumarlitirnir
í ár eru virkilega sterkir
og áberandi og ekki eru
til neinar reglur um það
hvaða litir fara saman og
hverjir ekki. Allir helstu
tískufrömuðir heims á borð
við Prada, Gucci og Chanel
leyfa litunum að flæða í
sumarlínunni 2011.
Fyrir ekki svo
löngu þótti heldur
hallærislegt að
vera klæddur
gallaefni frá toppi
til táar. Þeir tímar eru
liðnir og hefur gallaefni
aldrei verið eins vinsælt
og nú. Þetta tröllríður
sumartískunni hvort
sem það eru stutt-
buxur, jakkar, skyrtur
og eða gömlu góðu
gallabuxurnar.
Það er ekkert fallegra en náttúrulegt hár sem fær að
njóta sín. Nú er í lagi að leggja sléttujárnið til hliðar því að krull-
urnar og liðirnir eiga að fá að njóta sín. Ekkert er fallegra en hár sem
fær að vaxa í allar áttir með sinn náttúrulega lit í fyrirrúmi.
Samfestingar hafa hægt og rólega komið sterkir inn
með vetrinum en hafa raunverulega ekki náð nægilegri
fótfestu. Þetta eru flottar flíkur sem hægt er að nota við fín tækifæri
jafnt sem á venjulegum degi.
Það reið yfir
mikið æði hjá
stelpum í vetur
að raka af sér
hárið öðru
hvoru megin á
höfðinu. Þetta
æði stóð þó stutt.
Það krefst nú
mikillar þolinmæði
að bíða eftir að
rakaða hárið nái
sídd á ný.
Tunnel-eyrnalokkarnir, sem mynda stórt
gat í gegnum eyrnasnepilinn, hafa verið
vinsælir á síðustu árum en það æði er
senn á enda. Þetta var vinsælla hjá strákum
heldur en stelpum og var talsvert týpu–bundið. Þegar lokkurinn er fjar-
lægður situr ljótt gat eftir og þetta er því ansi mikill vítahringur.
Það er tími til kominn að við leggjum augnabrúnalitinn á
hilluna. Oflitaðar augnabrúnir eru það hallærislegasta sem um getur
og nú þykir flottast leyfa náttúrunni að sjá um mótun þeirra og lit.
Það er alllangt síðan
litlir pinnahælar nutu
vinsælda hér á landi.
Enn sér maður þó einstaka
par í notkun. Þeir færa mann
aftur til aldamóta, þegar þeir
nutu sem mestra vinsælda.
Tímabært að leggja á hilluna
þau pör sem enn eru í notkun
og leyfa þeim að hvílast.