Fréttatíminn - 15.04.2011, Page 67
Betra brauð með
pastaréttinum!
Að greinast aftur
og aftur og aftur...
Að lifa með krabbameini
Örráðstefna mánudaginn 18. apríl 2011
kl. 16:30-18:00 í Ráðgjafarþjónustu
Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.
Sími 540 1900
www.krabb.is
krabb@krabb.is
16:30-16:35 Ráðstefnan sett.
Ragnheiður Haraldsdóttir
forstjóri Krabbameinsfélags Íslands.
16:35-16:45 Af hverju er krabbamein sjúkdómur en
ekki dauðadómur?
Laufey Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri
Krabbameinsskrár.
16:45-17:00 Að reikna með lífinu
Gunnhildur Óskarsdóttir lýsir sinni
reynslu.
17:00-17:10 Ótuktin
Valgeir Skagfjörð og Katla Margrét
Þorgeirsdóttir kynna Ótuktina, einleik
byggðan á bók Önnu Pálínu Árnadóttur
sem fer á svið í Iðnó í lok apríl.
17:10–17:50 Ekki bara að þrauka heldur lifa með
krabbameini.
Mary Schnack sem greinst hefur 7
sinnum með krabbamein segir frá því
hvernig hún hefur sigrað hverja orustuna
á fætur annarri.
17:50-18:00 Ráðgjöf, spurningar og svör.
Ragnheiður Alfreðsdóttir hjúkrunar-
fræðingur segir frá starfi Ráðgjafar-
þjónustu Krabbameinsfélagsins, stuðning-
shópum félagsins og svæðafélögum.
18:00-18:30 Kaffi og spjall.
Sókn í sextíu ár • 1951-2011
Allir velkomnir - Aðgangur ókeypis
S uðurríkjablúsarinn Pinetop Perkins lést í mars, 97 ára að aldri, en hann átti að baki langan tónlistarferil með þekktum blústón-
listarmönnum. „Með dauða hans lokast í rauninni
ákveðinn gluggi. Hann var síðasti
maður af fyrstu kynslóð blúsmanna
og allt sem hann gerði var orgínal.
Þegar hann sagði „olræt“ þá var það
bara orgínal „olræt“.“
Ragnar Kjartansson sá Perkins
fyrst á blúshátíð fyrir tveimur árum
og komst í samband við hann fyrir
tilstilli Halldórs Bragasonar blús-
ara.
„Mér þótti algjörlega stórkostlegt
að vera í kringum þennan mann og
mig hafði lengi langað til að gera
verk um tónlistarmann. Ég hef
alltaf hrifist af endurtekningunni og
hvernig tónlist er endurtekin aftur
og aftur. Þessi maður var búinn að
endurtaka sömu lögin síðan 1926
enda orðinn þjóðargersemi í Banda-
ríkjunum.“ Ragnar bendir á að
endurtekningin birtist meðal annars
í takti blústónlistar.
Í verkinu endurtekur Perkins
lög sín og frasa og myndbands-
verkið er endurtekið aftur og aftur.
Elliglöp Perkins fléttast líka inn í verkið og sýna
hvernig hann endurtekur sömu orðin aftur og aftur.
Ragnar segir það bæði viðkvæmt og fallegt í senn
að verða gamall og missa smám saman tengsl við
lISTIR – RaggI KjaRTanS með myndveRK um blúSgoðSögn
Upprunalegt „olræt“
Ragnar Kjartansson frumsýnir myndbandsverk sitt „The Man“ um helgina en það sýnir
goðsögn blústónlistarinnar, Pinetop Perkins, spila á píanó á akri utan við Austin í Texas.
Blúsarinn
Pinetop Perkins
er aðalpersóna
myndbandsverks
Ragnars Kjartans-
sonar.
Ragnar
Kjartansson.
veruleikann. „Hann var orðinn
svo aldraður að hann lifði í eigin
heimi. Hans blúsheimur var mjög
heillandi og í raun var hann veru-
leikinn á bak við klisjuna. Það var
svo stór og mikil saga á bak við
þennan mann. Hann sagði mér að
hann hefði verið uppgötvaður á
bómullarakri, ólæs og skrifandi, af
Sonny Boy Williamsson, einum
af upphafsmönnum blússins. Svo
endaði hann lífið á að fá Grammy -
verðlaun, mánuði áður en hann
lést.“
Myndverkið „The Man“ verður
sýnt sunnudaginn 17. apríl frá kl.
14 til 22 í Bæjarbíói í Hafnarfirði
en sýningin er í samvinnu við Gall-
erí i8 og Blúshátíð í Reykjavík.
thora@frettatiminn.is