Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.05.2011, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 27.05.2011, Blaðsíða 2
Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í maí, hækkaði um 0,94% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 0,73% frá apríl, að því er fram kemur hjá Hagstofunni. Gjöld fyrir heitt vatn og frárennsli hækkuðu um 10% (vísitöluáhrif 0,20%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 15,5% (0,17%). Kostnaður vegna viðhalds og viðgerða á húsnæði jókst um 3,7% (0,15%), þar af voru 0,12% áhrif vegna leiðréttingar á vinnulið byggingar- vísitölu. Þá hækkaði verð á mat og drykkjarvörum um 0,8% (0,12%). Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,4% og vísitalan án húsnæðis um 3,1%. Undan- farna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,7% sem jafngildir 11,2% verðbólgu á ári (10,3% verðbólgu fyrir vísitöluna án húsnæðis). - jh 11,2% VíSitala neySlUVerðS Ársvísitala miðað við hækkanir síðustu þriggja mánaða Hagsstofa Íslands  Fjölmiðlar Úrslitaleikur meistaradeildar evrópu k nattspyrnukappinn Eiður Smári Guðjohnsen, sem lék með Fulham í ensku úrvalsdeildinni seinni hluta nýliðins tímabils, mun hafa í mörg horn að líta um helgina þótt komið sé sumarfrí í deildinni. Eiður Smári verður í sérfræðinga- hópi Sky-sjónvarpsstöðvarinnar í útsendingu stöðvarinnar í úrslitaleik meistaradeildar Evrópu á Wembley-leikvanginum í London á milli Barcelona og Manchester United á morgun, laugardag. Eiður Smári verður, ásamt Jamie Redk- napp, í sérstökum kynningarþætti fyrir leik- inn á Sky í dag, föstudag, þar sem þeir ræða liðin, kosti þeirra og galla, leikmenn og stjór- ana tvo, Alex Ferguson og Pep Guardiola. Eiður Smári mun síðan vera á hliðarlínunni á leiknum sjálfum á morgun og koma inn fyrir leik, í hálfleik og eftir leik. Þetta er ekki fyrsta verkefnið sem Eiður Smári tekur að sér fyrir Sky. Hann hefur ver- ið kallaður til fyrir leiki Barcelona í meistara- deildinni undanfarin ár enda þekkja fáir liðið betur en Eiður eftir þriggja ára dvöl hjá því. Eiður Smári þótti standa sig með glæsibrag útsendingu Sky á undanúrslitaleik Barcelona og Real Madrid. Honum var hrósað í hástert á samskiptasíðunni Twitter enda í þeirri ein- stöku stöðu að hafa spilað bæði undir stjórn José Mourinho, þjálfara Real Madrid, og Pep Guardiola hjá Barcelona. Að því er Fréttatíminn kemst næst hafa fleiri sjónvarpsstöðvar í Bretlandi óskað eftir kröftum Eiðs Smára í tengslum við beinar útsendingar frá knattspyrnuleikjum. Hann sagði í viðtali við Fréttablaðið fyrir skömmu að hann gæti vel hugsað sér að vinna í sjón- varpi eftir að knattspyrnuferlinum lýkur, sem væri þó ekki alveg strax. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Eiður Smári sérfræð- ingur Sky í úrslita- leiknum á Wembley eiður Smári Guðjohnsen hefur slegið í gegn sem sérfræðingur hjá Sky-sjónvarpsstöðinni í eng- landi að undanförnu. Hann verður meðal sérfræðinga stöðvarinnar á stærsta knattspyrnuleik ársins á morgun, laugardag. eiður Smári Guðjohnsen hefur slegið í gegn sem fótboltaskýrandi á Sky-sjónvarpsstöðinni. Nordic Photos/Getty Images Sjónvarps- maðurinn Eiður Smári „Hann kemur vel fyrir. Hann hefur gríðarlega reynslu og kunnáttu á því sem hann er að fjalla um. Hann er vel máli farinn og með góðan húmor. Og svo skemmir útlitið ekki fyrir enda töffari þar á ferð.“ Hilmar Björnsson, sjónvarpsstjóri Skjás Golfs eiður Smári spilaði með snillingunum þremur, Messi, Xavi og iniesta, hjá Barcelona og var á vara- mannabekknum þegar Barcelona vann Manc- hester United í úrslitaleiknum í róm fyrir tveimur árum.  FyrirtækjasöFnun til stuðnings bændum og bÚaliði Sárt að sjá fólkið anda að sér rykinu og lömbin deyja Vel tekið í erindið, segir Guðni Ágústsson sem fer fyrir verkefnisstjórn söfnunarinnar. „Það er gríðarlega vel tekið í þetta er- indi. Mönnum þykir sárt að sjá blessað fólkið anda að sér rykinu og litlu lömbin deyja. Menn skilja hvað þetta er mikið tjón,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, sem fer fyrir fjögurra manna verkefnisstjórn sem stendur fyrir fyrirtækjasöfnun vegna Grímsvatnagossins til stuðnings bænd- um og búaliði sem harðast hefur orðið úti á öskusvæðinu sunnan Vatnajökuls. „Margir menn í atvinnulífinu spurðu mig hvað þeir gætu gert og þá varð þessi hugmynd til, að stofna átakssjóð. Við prófuðum þetta á nokkrum fyrir- tækjum og það voru strax komnar 15- 20 milljónir,“ segir Guðni en söfnunin fer fram í nánu samstarfi við Samtök atvinnulífsins. Hann segir að fyrirtæk- in leggi fram frá eitt hundrað þúsund krónum upp í milljón, eftir efnum, stærð og ástæðum. „Þetta er fátækt sveitarfélag og erfiðleikarnir miklir.“ Reikningur vegna söfnunarinnar hefur verið stofnaður í Arion banka á Kirkjubæjarklaustri. Stefnt er að því að henni verði lokið eigi síðar en við júnílok svo hægt verði að bregðast sem fyrst við þeim brýna vanda sem við blasir. Þau fyrirtæki sem þegar hafa lagt málefninu lið eru: Kaupfélag Skagfirð- inga, Samherji, Ísfélag Vestmannaeyja, Skinney-Þinganes, N1, KEA, Vinnslu- stöðin, Mjólkursamsalan, Alcoa-Fjarða- ál, Kjarnafæði, Þorbjörn, Norðlenska, Fóðurblandan, Brim, Sláturfélag Suður- lands, SAH-afurðir, Samkaup, Kaupás, Bónus og Olís. Reikning- ur í Arion banka á Kirkju- bæjar- klaustri Guðni Ágústsson, fyrr- verandi ráðherra, fer fyrir verkefnisstjórn fyrirtækja- söfnunarinnar. Verðbólgan eykst Gjaldþrotum fjölgar alls voru 83 fyrirtæki tekin til gjaldþrota- skipta í apríl síðastliðnum samanborið við 66 fyrirtæki í apríl í fyrra, sem jafngildir um 26% fjölgun á milli ára, að því er fram kemur hjá Hagstofu íslands. eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í fjár- mála- og vátryggingastarfsemi. Fyrstu 4 mánuði ársins 2011 er fjöldi gjaldþrota 519 sem er um 44% aukning frá sama tímabili árið 2010 þegar 360 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta. en ný fyrirtæki koma í stað þeirra sem fara í þrot. í nýliðnum apríl voru skráð 145 ný einkahlutafélög samanborið við 119 einkahlutafélög í apríl 2010, sem jafngildir um 22% fjölgun á milli ára. eftir bálkum atvinnugreina voru flest einkahlutafélög skráð í Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum. Heildarfjöldi nýskráðra einka- hlutafélaga er 588 fyrstu 4 mánuði ársins og eru nýskráningar jafn margar og á sama tímabili árið 2010. -jh Fá kröfurnar gerðar upp með hlutafé í n1 Samþykki allra kröfuhafa sem eiga skuldabréf í skuldabréfaflokknum ESSO 0511 liggur fyrir um að þeir fái kröfur sínar gerðar upp með hlutafé í n1 hf., að því er fram kemur í kauphallartilkynningu. „Framangreint samkomulag lánardrottna n1 hf. gerir meðal annars ráð fyrir að lánardrottnar taki yfir rekstur N1 hf sem lið í uppgjöri á skuldum n1 hf. og Umtaks fasteignafélags ehf.,“ segir enn fremur. „lánardrottnar skuldbinda sig til þess að breyta stórum hluta krafna sinna í hlutafé og styrkja þannig efnahag n1 hf. reiknað er með að vinnu við fjárhagslega endur- skipulagningu ljúki formlega á miðju þessu ári og frestast útgáfa ársreiknings vegna rekstrarársins 2010 þar til í lok júní af þessum sökum.“ -jh Bók Björns um Baugsmálið komin út Fá mál hafa verið umtalaðri hér en svo- kallað Baugsmál sem hófst með kæru Jóns Geralds Sullenbergers til lögreglu sumarið 2002 og síðan húsleit í höfuðstöðvum Baugs í ágúst það ár. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, rekur sögu þessa umtalaða máls sem stóð næstu árin í nýútkominni bók, Rosabaugur yfir Íslandi, en í aðfararorðum höfundar segir að við varnir í málinu hafi verið gripið til aðferða sem séu einstæðar í íslenskri- stjórn- mála- og fjölmiðlasögu. „Viðskiptalíf og stjórnmál samþættust og valda- baráttan var harðskeytt,” segir m.a. á bókarkápu um innihald bókarinnar sem spannar mikið umrót í íslensku samfélagi árin 2002 til 2008. -jh 2 fréttir Helgin 27.-29. maí 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.