Fréttatíminn - 27.05.2011, Blaðsíða 10
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
Vinaverkefnið í Skagafirði verðlaunað
Al-Anon 60 ára
Al-Anon-samtökin eru sextug um þessar
mundir en þau voru stofnuð í New York í
maí árið 1951. Al-Anon eru opin samtök
jafningja, sem bjóða velkomna aðstand-
endur alkóhólista. Í tilkynningu frá samtök-
unum kemur fram að stofnfélagar hafi ekki
verið margir en í dag fagna tugmilljónir
félaga um allan heim þessum tímamótum
samtakanna. Hér er fjöldi þeirra Al-Anon-
félaga sem sækja fundi vikulega vel á
annað þúsund talsins. Al-Anon-deildir eru
fjölmargar um allt land. Í tilefni af þessum
tímamótum bjóða Al-Anon-samtökin
almenningi að gleðjast með sér á opnum
fundi laugardaginn 28. maí að Héðinsgötu
1-3, 105 Reykjavík, kl. 14-17. Á fundinum
deila tveir Al-Anon-félagar reynslu sinni,
styrk og von af Al-Anon-bataleiðinni. Enn
fremur segja tveir félagar frá því hvernig
erfðavenjurnar hafa hjálpað þeim í sam-
tökunum og í lífinu. Milli þessara atriða
verður boðið upp á lifandi tónlist. -jh
Næsta skref snýst um að
selja lífeyrissjóðum löng
verðtryggð ríkisbréf gegn
greiðslu í gjaldeyri.
Vinaverkefnið í
Skagafirði hlaut
Foreldraverðlaun
Heimilis og skóla
2011 á þriðjudag-
inn. Verkefnið er
samstarfsverkefni
leik-, grunn- og
framhaldsskóla
í Skagafirði,
frístundadeildar
Sveitarfélagsins
Skagafjarðar,
íþróttahreyfingar-
innar og foreldra
í Skagafirði. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra afhenti
verðlaunin. Auk Foreldraverðlaunanna sjálfra voru veitt hvatningarverðlaun og
dugnaðarforkaverðlaun. Hvatningarverðlaun 2011 hlaut Foreldrafélagið Örkin hans
Nóa, leikskólanum Nóaborg, fyrir framúrskarandi gott foreldrasamstarf. Dugnaðar-
forkaverðlaun 2011 voru veitt til Þórólfs Sigjónssonar og Guðnýjar Vésteinsdótt-
ur, foreldra barna í Hallormsstaðaskóla, fyrir sjálfboðaliðastarf á tímum fjárskorts,
og öfluga og virka þátttöku foreldra í skólastarfinu. -jh
Seðlabankinn býðSt til að kaupa 15 milljarða af krónueigendum
Fyrsta skrefið stigið til afnáms gjaldeyrishafta
Greiðsla í erlendum gjaldeyri til erlendra krónueigenda og þeirra innlendu aðila sem átt hafa krónur í erlendum bönkum.
Mynd er að komast á fyrsta skref í af-
námi gjaldeyrishafta samkvæmt þeirri
áætlun sem kynnt var fyrir tveimur
mánuðum. Seðlabankinn hefur tilkynnt
um útboð þar sem bankinn býðst til að
kaupa 15 milljarða króna af erlendum
krónueigendum, og þeim innlendu
aðilum sem hafa átt íslenskar krónur
í erlendum bönkum samfellt frá 28.
nóvember 2008, gegn greiðslu í erlend-
um gjaldeyri.
Markmið þessara fyrstu aðgerða í
fyrri áfanga áætlunarinnar um losun
gjaldeyrishafta er að stuðla að því að
fjárfestar geti selt krónueignir sínar
með skipulögðum hætti ef þeir svo
kjósa, segir í tilkynningu Seðlabankans.
Útboðið verður með þeim hætti, að
sögn Greiningar Íslandsbanka, að þeir
sem fá samþykkt tilboð sín fá þau kjör
sem tilboðið hljóðaði upp á, öfugt við
„eitt verð fyrir alla“ tilboðafyrirkomu-
lagið sem verið hefur. Útboðið fer fram
7. júní. Niðurstaða þess liggur því fyrir
við næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans,
15. júní.
„Ekkert liggur fyrir um seinni legg
þessa fyrsta skrefs í afnámi gjaldeyris-
hafta. Sá leggur snýst um að selja líf-
eyrissjóðum löng verðtryggð ríkisbréf
gegn greiðslu í gjaldeyri,“ segir Grein-
ingin enn fremur, en að mati hennar er
lykilatriði að einhver mynd komist fyrr
en síðar á þann hluta þessa fyrsta skrefs
sem snýr að lífeyrissjóðunum.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 759
milljörðum króna í apríl en bróðurpart-
ur hans er tekinn að láni.
HeilbrigðiSmál rannSókn á HeilSutengdum lífSgæðum
Skoðar aðgengi og notkun
Lektor í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri vinnur að rannsókn um heilsutengd lífsgæði og
hefur sent 4.500 manns spurningalista.
a ðgengi að og notkun á heil-brigðiskerfinu og reynsla þeirra sem þangað leita
vegna langvinnra verkja hafa lítið
sem ekkert verið rannsökuð hér á
landi. Einnig hefur lítið sem ekk-
ert verið rannsakað hvaða þættir
hafa áhrif á það hvort og hvernig
einstaklingar með langvinna verki
leita til heilbrigðiskerfisins vegna
þeirra. Þekkt er að margir ein-
staklingar með langvinna verki
hafa leitað til margra ólíkra með-
ferðaraðila án þess að meðferð hafi
borið árangur. Þess vegna er mikil-
vægt að rannsaka þessa þætti til að
meta þjónustuna og koma auga á
það sem betur má fara,“ segir Þor-
björg Jónsdóttir, lektor við hjúkr-
unarfræðideild Háskólans á Akur-
eyri, sem vinnur nú að rannsókn á
heilustengdum lífsgæðum meðal
almennings í tengslum við doktors-
verkefni sitt í Háskóla Íslands.
Þorbjörg segir að tilgangur rann-
sóknarinnar sé tvíþættur; annars
vegar að skoða heilsutengd lífs-
gæði, aðgengi að og notkun á heil-
brigðisþjónustu meðal almennings
á Íslandi, og hins vegar að skoða
algengi langvinnra verkja, og notk-
un á heilbrigðisþjónustu vegna
þeirra ásamt reynslu einstaklinga
með langvinna verki af samskipt-
um sínum við fagfólk í heilbrigðis-
þjónustu.
Sendur hefur verið út spurninga-
listi til 4.500 einstaklinga sam-
kvæmt slembiúrtaki úr þjóðskrá.
Í þessari viku var send út önnur
áminning til þeirra sem ekki hafa
svarað og vonast Þorbjörg eftir því
að sem flestir svari – það sé í þágu
rannsóknarinnar.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Þorbjörg Jónsdóttir vonast eftir góðri svörun við spurningalista sínum. Ljósmynd/
Birgir Guðmundsson
10 fréttir Helgin 27.-29. maí 2011