Fréttatíminn - 27.05.2011, Blaðsíða 50
42 bíó Helgin 27.-29. maí 2011
Þ egar félagarnir Phil (Bradley Cooper) og Stu (Ed Helms)
drifu vin sinn Doug (Just-
in Bartha) til Las Vegas
til þess að halda honum
ógleymanlegt steggjapartí
klikkaði allt sem klikkað
gat. Ekki síst þar sem tilvon-
andi mágurinn og hálfvitinn
Alan (Galifianakis) fékk að
dröslast með.
Steggjapartíið reyndist
auðgleymanlegt þar sem
Alan byrlaði hópnum sýrða
hressingu til þess að þjappa
hópnum saman og þegar
menn komust til rænu dag-
inn eftir var brúðguminn
týndur og tröllum gefinn
þannig að þremenningarnir
máttu gera svo vel að leggj-
ast í ævintýralega leit í kapp-
hlaupi við klukkuna þar sem
stórfenglegt brúðkaupið var
við það að bresta á.
Björgunarleiðangurinn
varð óslitin runa fáránlegra
og fyndinna uppákoma
sem skiluðu sér í einfaldri,
groddalegri gamanmynd
og óvæntum sumarsmelli.
Framhaldsmyndin tekur
við eftir að skilið var við
vinina; laskaða, lemstraða
og reynslunni ríkari í brúð-
kaupi Dougs.
Nú er komið að smá-
borgaralega tannlækn-
inum og áhyggjubúntinu
Stu að ganga í það heilaga.
Brenndur af fjörinu í Las
Vegas ákveður Stu að fagna
yfirvofandi hjónabandi með
vinum sínum í meinlausum
morgunverði í Taílandi.
Fjórmenningarnir stökkva
því um borð í flugvél en þeir
eru sjálfum sér líkir og vill-
ast fljótt af leið. Þeir drepast
á fylliríi, týna 16 ára bróður
unnustu Stus og þegar þeir
vakna í Bangkok vita þeir
ekkert hvað á hefur gengið
og þurfa að reyna að rekja
drykkjuslóða sinn og finna
unglingspiltinn í leiðinni.
Framleiðendur Hango-
ver höfðu svo góða tilfinn-
ingu fyrir myndinni að þeir
byrjuðu að leggja drögin
að framhaldsmynd áður en
Hangover var frumsýnd.
Leikstjórinn Todd Philips
var því ráðinn til þess að
skrifa handrit að framhaldi
ásamt Scot Armstrong
tveimur mánuðum áður en
Hangover var frumsýnd og
sló í gegn. Nokkrir vaskir
góðkunningjar úr fyrri
myndinni láta einnig að
sér kveða í framhaldinu.
Sá frábæri gamanleikari
Jeffrey Tambor (Arrested
Development) snýr aftur
sem tengdafaðir Doughs
en hann þykist oft luma á
góðum ráðum fyrir unga
menn. Ken Jeong endurtek-
ur rullu sína sem Mr. Chow
en hann reyndist vinunum
vægast sagt skeinuhættur í
Las Vegas. Hnefaleikatröllið
Mike Tyson lætur heldur
ekki sitt eftir liggja og hinn
óborganlegi leikari Paul
Giamatti kemur svo nýr í
hópinn.
Hangover II DjammIð HelDur áfram
bíóDómur PIrates of tHe CarIbbean: on stranger tIDes
frumsýnDar
Meiri þynnka
Gamanmyndin The Hangover sló í gegn svo að um munaði í bíó sumarið 2009.
Þar steig Zach Galifianakis fram sem aðalbrandarakall augnabliksins og Mike
Tyson tók eftirminnilegt loft-trommusóló við undirleik Phils Collins. Myndin
gekk býsna lengi í íslenskum kvikmyndahúsum og nú reynir á hvort fólk vill detta
í það aftur með lánlausu fjórmenningunum úr fyrri myndinni og fylgjast með
þeim taka afleiðingunum.
Mikið skelf ing ætlar Jerry
Bruckheimer að takast að halda lífi
í Sjóræningjunum í Karabíska haf-
inu í nafni fyrstu myndarinnar. The
Curse of the Black Pearl er frábær
ævintýramynd, spennandi, fyndin.
Hún keyrði á dásamlegum persónu-
töfrum Johnnys Depp í hlutverki
Jacks Sparrow sem var dyggilega
studdur skemmtilegum leikurum
og persónum.
Framhaldið olli vonbrigðum en
þrátt fyrir að Dead Man’s Chest
hafi verið slöpp hélt ástandið enn
áfram að versna í þriðju myndinni,
At World’s End. Og ekki skánar það
í þeirri fjórðu. Rommið í þessu öllu
saman er löngu búið og ekkert eftir
nema tóm flaskan. Meira að segja
Jack Sparrow, sem hingað til hefur
bjargað því sem bjargað varð, er orð-
inn þunnur.
Þeir sem standa að Sjóræningjun-
um í Karabíska hafinu virðast hafa
ofmetnast svo af öllu gullinu að þeir
telji að það dugi að bjóða upp á flott-
ar senur, smart hasar og láta Jack
Sparrow fíflast eitthvað inn á milli.
Hér er boðið upp á þvælda og
óspennandi, ef ekki tilgangslausa,
sögu og holar persónur. Barbossa
(Geoffrey Rush) er kippt út úr sínu
náttúrulega umhverfi og hann er
hvorki fugl né fiskur. Sá mæti mað-
ur og eðaltöffari, Ian McShane,
nær engu flugi í hlutverki Blackbe-
ards. Persónan og leikarinn bjóða
upp á margt en niðurstaðan er bara
enn einn Disney -skúrkurinn. Pené-
lope Cruz er fögur sem fyrr en það
neistar nú ekki beint milli hennar
og Jacks. Og verst af öllu er að Jack
er að missa kúlið og Depp á ekki
séns í að breiða yfir allt það sem er
að í On Stranger Tides.
Fyrsta myndin var þvottekta
sumarsmellur og þessi mynd veld-
ur mjög áþreifanlegum sumarvon-
brigðum. Manni hrís eiginlega
hugur við því að Jack endurheimtir
Svörtu perluna sína í myndinni og á
því örugglega eftir að taka stefnuna
í bíó eina ferðina enn.
Þórarinn Þórarinsson
Súpermann
bjargar
Anítu
Kvikmyndin Dylan Dog:
Dead of Night var frum-
sýnd í vikunni en þar
leikur Aníta Briem á móti
Brandon Routh sem
spreytti sig á hlutverki
Superman fyrir nokkru með
frekar dapurlegum árangri.
Myndin byggist á ítölsku
hryllingsmyndasögunum
Dylan Dog sem komu fram
á sjónarsviðið á níunda
áratugnum.
Routh leikur einka-
spæjarann Dylan Dog sem
sérhæfir sig í yfirnátt-
úrulegum málum vegna
yfirgripsmikillar þekkingar
á því sviði. Hann hefur snúið
baki við öllu skrímslastússi
og starfar sem hefðbundinn
einkaspækari. Það breytist
aftur á móti þegar Elizabeth
(Aníta Briem) leitar á náðir
hans og þarf á sérþekkingu
hans að halda.
Hann vill lítið hafa með mál
hennar gera en þegar að-
stoðarmaður hans breytist
í uppvakning dregst hann
aftur inn í heim varúlfa,
vampíra og fleiri skratta-
kolla.
Nighy í Total
Recall
Allt útlit er fyrir að breski eðal-
leikarinn Bill Nighy verði með
í endurgerð vísindaspennu-
myndarinnar Total Recall. Nighy
er í viðræðum um að taka að sér
hlutverk uppreisnarleiðtogans
Quatto en í myndinni leitar Colin
Farrell, í hlutverki aðalhetjunnar
Doughs Quaid, liðsinnis upp-
reisnarmanna Quattos. Myndin
er gerð eftir skáldsögu Philips
K. Dick en í eldri myndinni lék
Arnold Schwarzenegger Dough.
Kate Beckinsale og Jessica Biel
hafa þegar verið ráðnar í hlutverk
kvenpersónanna, annars vegar
svikullar eiginkonu Dougs og hins
vegar konu sem kemur honum til
hjálpar.
Fjórmenn-
ingarnir
stökkva því
um borð í
flugvél en
þeir eru
sjálfum
sér líkir og
villast fljótt
af leið.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Phil, Stu, Doug og Alan leggja land undir fót á ný og vitaskuld fer ekkert eins og ráð var fyrir gert.
Rommið er búið!
Eldur í Paradís
Sýningar hefjast á kanadísk/frönsku kvik-
myndinni Eldur í dag, föstudag. Myndin
fjallar um ferð tvíbura til Mið-Austurlanda
þar sem þau reyna
að varpa hulunni
af dularfullri fortíð
móður sinnar sem
er nýlátin. Í upp-
hafi vita þau aðeins að faðir þeirra er ekki
látinn, eins og þau töldu, og að auki eiga
þau bróður sem þau höfðu enga hugmynd
um. Myndin var tilnefnd til Óskars-
verðlauna sem besta erlenda myndin auk
þess sem hún sópaði til sín verðlaunum á
The Genie Awards og fékk meðal annars
verðlaun fyrir bestu mynd, besta leik-
stjóra, bestu leikkonu, besta handrit, bestu
kvikmyndatöku og bestu klippingu.
Depp á ekki séns í að breiða yfir allt það
sem er að í On Stranger Tides.
Ben Stiller stefnir enn
ótrauður að því að
gera framhald af hinni
vinsælu gamanmynd
um tískumódelið
Zoolander. Hann segir
í samtali við Empire
að hugmyndin sé að
láta myndina gerast
tíu árum eftir að
hinni myndinni lauk.
Tískubransinn er
þá búinn að kasta
stjörnunum Zoolander
og Hansel (Owen
Wilson) til hliðar
þannig að þeir eru í
tómu rugli og komnir
aftur á byrjunarreit.
Stiller segir margt í
fyrri myndinni sem
megi byggja á og
vinna úr og hann sé
mjög spenntur fyrir
því að láta Zoolander
2 verða að veruleika.
Zoolander tíu
árum síðar
ódýrt alla daga
35%afsláttur
Verð áður 1798 kr. kg
Grísahnakki m/hvítlauki
og rósmarín
1169kr.kg
frábært á
Grillið