Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.05.2011, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 27.05.2011, Blaðsíða 28
Baráttan á Wembley Stærsti fótboltaleikur ársins fer fram á Wembley á laugardag þegar Barcelona og Manchester United mætast í úrslitaleik meistaradeildar Evrópu. 28. maí 2011. Wembley -leikvangurinn í London. Ný- krýndir Englandsmeistarar gegn nýkrýndum Spánar- meisturum. Manchester United gegn Barcelona. Án nokkurs vafa tvö bestu lið heims í dag. Manchester United á harma að hefna eftir tap í úrslitaleiknum árið 2009. Sir Alex Ferguson getur orðið fyrsti stjórinn til að vinna Meistara- deildina þrívegis. Við erum sem sagt að tala um stórleik. Samt eru það G-in tvö sem mest er talað um; annars vegar Ryan Giggs, sem staðið hefur í stórræðum í einkalífi sínu, og síðan Gríms- vötn en eldgosið þar varð til þess að leikmenn Barcelona komu tveimur dögum fyrr til London en áætlað var. Frétta- tíminn fékk þrjá sérfræðinga í Meistaradeildinni, þá Hjörvar Hafliðason, Ólaf Kristjánsson og Heimi Guðjónsson, til að spá í byrjunarliðin og gefa leikmönnum liðanna einkunn. oskar@frettatiminn.is Skammstafanir: HH = Hjörvar Hafliðason ÓK = Ólafur Kristjánsson HG = Heimir Guðjónsson 1 Edwin van der Saar 9 „Fyrsti nútímamarkvörður knattspyrnunnar. Frábær á löppunum og oft og tíðum eins og þriðji miðvörðurinn.“ (HH) „Reynsla, ró og „respect“. Hefur ekki alltaf mikið að gera en hefur bjargað stigum fyrir Man. Utd í vetur. (ÓK) „Hefur allan pakkann og skemmtilega hrokafullur að auki.“ (HG) 20 Fabio 7,3 „Hefur bætt sig ótrúlega en á það til að vera of aggressífur og gefa mikið af aukaspyrnum á hættulegum stöðum.“ (HH) „Fínn bakvörður. Á það þó til að missa einbeitingu og krækja sér í ruglspjöld sem getur reynst dýrkeypt.“ (ÓK) „Öflugur sóknarlega en stundum í basli varnarlega. Hann nýtur góðs af því að hafa Valencia fyrir framan sig.“ (HG) 5 Rio Ferdinand 8,3 „Góður með boltann og les leikinn vel. Hefur tapað hraðanum og á það til að fall of djúpt niður, sem skapar hættu.“ (HH) „Yfirvegaður, jaðrar við kæruleysi á köflum, elegant varnarmaður.“ (ÓK) „Frábær með boltann en lendir stundum í vandræðum ef plássið er mikið fyrir aftan hann.“ (HG) 15 Nemanja Vidic 9,3 „Besti miðvörður heims. Granítharður og svífst einskis til að stöðva sóknir andstæðinga.“ (HH) „No nonsense, grjótharður miðvörður sem lætur samherja sína líta vel út.“ (ÓK) „Einn besti varnarmaðurinn í boltanum.“ (HG) 3 Patrice Evra 8,3 „Hefur átt misjafna leiktíð. Frábær sóknarbakvörður en það sama verður ekki sagt um varnarleikinn.“ (HH) „Sókndjarfur vinstri bakvörður sem á kantinn.“ (ÓK) „Frábær sóknarlega og vanmetinn varnarlega og að auki er alltaf stutt í hjálp frá Vidic.“ (HG) 16 Michael Carrick 6,7 „Vanmetnasti leikmaður Manchester United. Flækir ekki hlutina að óþörfu. Öll lið þurfa svona leikmann.“ (HH) „Vanmetinn í þessu liði. Þekkir sín takmörk, enginn stjörnuspilari en fínn liðsmaður.“ (ÓK) „Kann stöðuna sína vel en mætti skipta um gír annað slagið.“ (HG) 13 Ji Sung Park 7,7 „Hvaðan fær hann alla þessa orku? Hleypur úr sér lungun í hverjum leik og er einn af þeim sem leika betur þegar tilefnið er stærra.“ (HH) „Vinnuþjarkur sem lætur fátt utanaðkomandi hafa áhrif á sig. Spilar ekki mikið en er áreiðanlegur leikmaður.“ (ÓK) „Vinnuþjarkur af guðs náð.“ (HG) 11 Ryan Giggs 8,3 „Nýtur sín vel á miðjunni. Er ekki eins fljótur og hann var en bætir það upp með reynslu sinni og þekkingu á leiknum.“ (HH) „Hann er „Grand old man“. Sigurvegari með frábæran leikskilning og magnaðan vinstri fót.“ (ÓK) „Nenni ekki að tala um rauðvín hér – ótrúlegur leik- maður.“ (HG) 25 Antonio Valencia 8,7 „Einstakur íþróttamaður. Hefði einhver annar getað komið svona öflugur til baka eftir erfið meiðsl? Gerir alltaf það sama; sparkar boltanum til hægri og gefur fyrir. En það virkar líka nánast alltaf.“ (HH) „Alhliða leikmaður, getur spilað inni á miðju sem og úti á væng. Sterkur bæði varnar- og sóknarlega og býr til mörg færi.“ (ÓK) „Frábær vængmaður einn á einn, góðar fyrir- gjafir en einnig mjög góður varnarlega.“ (HG) 14 Javier Hernández (Chicharito) 8 „Leikmaður sem varnarmenn þola ekki að dekka. Endalaust á ferðinni, gráðugur og markheppinn.“ (HH) „Verðandi stórstjarna hjá Manchester United. Markaskorari af guðs náð, með- fædd þefvísi á færi.“ (ÓK) „Ekki áberandi í spili en alltaf klár í boxinu.“ (HG) 10 Wayne Rooney 9 „Hefur verið arkitektinn að leik United að undanförnu. Hefur vaxið ásmegin eftir því sem liðið hefur á mótið.“ (HH) „Gæti spilað miðvörð, hefur allt; sterkur, fljótur, ákafur og einbeittur. Bara spurning um spennustig og ró utan vallar.“ (ÓK) „Alltaf gaman að horfa á leikmann þar sem gæði og vinnusemi fara saman.“ (HG) Meðaltal Manchester United: 8,2 1 Victor Valdes 8 „Vanmetnasti markvörður heims. Eins furðulega og það hljómar þá er mjög erfitt að vera í marki hjá liði eins og Barcelona.“ (HH) „Fínn markmaður sem fær oftast á sig opin skot eða færi. Kvikur og lifandi og hefur bætt sig mjög mikið.“ (ÓK) „Góður á milli stanganna en í vandræðum með fyrirgjafir. Hefur batnað mikið undir stjórn Guardiola.“ (HG) 2 Daniel Alves 8,7 „Ótrúlegur orkubolti. Frábær spyrnumaður.“ (HH) „Sóknarbakvörður að hætti Brasilíumanna. Honum leiðist ekki að taka þátt í sóknarleik.“ (ÓK) „Frábær sóknarlega og varnarlega. Eftir 60 mínútur eru væng- mennirnir sem spila á móti honum sprungnir en væntanlega ekki Park – athyglisvert einvígi.“ (HG) 3 Gerard Pique 8,3 „Dýrari útgáfan af Rio Ferdinand. Óhemjusvalur með boltann og kemur honum alltaf í leik. En full afslappaður í vörninni.“ (HH) „Mjög öflugur, getur varist og sterkur með boltann. Oftast fyrsta stöð í uppspili Barcelona.“ (ÓK) „Sterkur varnarlega. Einnig með góðar sendingar úr vörn, stuttar og langar.“ (HG) 5 Carles Puyol 8,7 „Herra Barcelona. Áræðinn, harður og fylginn sér.“ (HH) „Ástríða og kraftur. Skiptir engu máli hvar í vörninni hann spilar,“ (ÓK) „Leiðtogi liðsins. Öflugur og veit sín takmörk.“ (HG) 22 Eric Abidal 7,7 „Öflugur vinstri bakvörður. Er að mínu mati alls ekki síðri sem miðvörður. Hrikalega fljótur og nautsterkur.“ (HH) „Traustur varnarmaður með góðan vinstri fót. Kominn til baka eftir veikindi. Sterkur hlekkur.“ (ÓK) „Vörn og sókn til fyrirmyndar sem og hlaupagetan.“ (HG) 16 Sergio Busquets 8 „Kannski ekki hinn dæmigerði Barcelona-leikmaður en hentar leik liðsins fullkomlega. Hins vegar óheiðarlegur með eindæm- um.“ (HH) „Öryggisventill á miðjunni, ekki allra, en mjög drjúgur í hlutverki ruslakalls á miðjunni hjá Barcelona.“ (ÓK) „Fær ekki það lof sem hann á skilið, sem er kannski ekki skrýtið þegar maður spilar í þessu liði. Einn sá besti í sinni stöðu.“ (HG) 6 Xavi Hernández 10 „Heilinn í liði Barcelona. Er með hæstu fótbolta- greindarvísitölu sem til er. Venjulegur maður sér tvo leiki fram í tímann, hann sér þúsund!“ (HH) „Vinstra heilahvelið. Besti miðvallarleikmaður heims. Enginn hefur betri sendingargetu en þessi listamaður.“ (ÓK) „Besti miðjumaður heims. Punktur.“ (HG) 8 Andrés Iniesta 10 „Stendur á hátindi ferilsins og hefur aldrei leikið betur.“ (HH) „Hægra heilahvelið. Orð óþörf.“ (ÓK) „Lætur mann stundum halda að það sé ekkert mál að vera einn besti fótboltamaður heims.“ (HG) 17 Pedro Rodriguez 7,7 „Mér finnst orðið seigur eiga vel við hann. Er ótrúlega oft réttur maður á réttum stað á fjærstöng.“ (HH) „Búinn að vera sterkur í vetur, leggur upp og skorar, hverfur eðlilega í skuggann.“ (ÓK) „Getur hlaupið með boltann bæði með hægri og vinstri á þokkalegum hraða sem er athyglisvert.“ (HG) 10 Lionel Messi 10 „Besti knattspyrnumaður allra tíma. Jafnvægi, knatttækni, hraði, styrkur ... get haldið áfram í allan dag.“ (HH) „Listamaður. Skammast mín fyrir að þurfa að gefa honum einkunn. Þvílíkt jafnvægi og boltatækni, útsjónarsemi og sköpunarhæfileikar.“ (ÓK) „Vantar lýsingarorð.“ (HG) 7 David Villa 8,3 „Finnst Barcelona aldrei hafa náð að fylla í skarð Samuels Eto’o en Villa hefur staðið sig betur en Zlatan.“ (HH) „Lykilmaður í því að skapa pláss fyrir Messi, er sífellt að toga og teygja varnir andstæðinganna.“ (ÓK) „Með einhver bestu þverhlaup á varnir sem sést hafa í langan tíma.“ (HG) Meðaltal Barcelona: 8,7 Breytingar frá úrslitaleiknum 2009 sem Barcelona vann 2-0 Barcelona Komnir: Daniel Alves, Eric Abidal og David Villa* Farnir: Yaya Toure, Sylvinho, Samuel Eto’o og Thierry Henry *Pedro var á bekknum í þessum leik Manchester United Komnir: Antonio Valencia og Javier Hernández** Farnir: Cristiano Ronaldo. **Fabio var ekki í leikmannahóp í þessum leik 28 fótbolti Helgin 27.-29. maí 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.