Fréttatíminn - 27.05.2011, Blaðsíða 4
Spá OECD í takt við aðrar spár
Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) reiknar nú með því að landsframleiðsla
hér á landi komi til með að vaxa að raungildi um 2,2% í ár og 2,9% á næsta ári. Er
stofnunin þar með bjartsýnni en hún var í nóvember, en þá spáði hún 1,5% hagvexti
í ár og 2,6% árið 2012. Þessi spá OECD kemur Greiningardeild
Íslandsbanka ekki á óvart enda í takt við aðrar nýlegar spár.
Má þar nefna spár Seðlabankans, Hagstofunnar og Alþjóða
gjaldeyrissjóðsins, en þær spá allar 2,3% hagvexti í ár og 2,9%
vexti á næsta ári. OECD væntir þess að hagvöxturinn hér verði
drifinn áfram af fjárfestingu í orkufrekum iðnaði, auk þess sem
stofnunin reiknar með því að einkaneyslan styrkist. Að mati
OECD verður atvinnuleysi hér á landi 7,0% í ár og svo 5,8% á
næsta ári. Ljóst er að stofnunin horfir nú mun bjartari augum
á vinnumarkaðinn hér á landi þar sem í nóvember voru þessar
tölur 8,1% og 7,5%, segir Greiningin. Líkt og aðrar stofnanir
reiknar OECD með því að verðbólgan hér á landi verði minni nú
í ár en í fyrra, eða um 2,7% á móti 5,4%. Árið 2012 reiknar hún með 2,6% verðbólgu.
Þar með hefur stofnunin hækkað nokkuð verðbólguspá sína frá því í nóvember á
síðasta ári en þá spáði hún að verðbólgan yrði um 1,8% í ár og svo 1,6% árið 2012. -jh
lengra
geymsl
uþol
nú með
tappa
Ljúengar uppskriftir með matreiðslurjóma
er að
nna á www.gottimatinn.is
2,2%
Aukning LAnds-
frAMLEiðsLu
Spá fyrir 2011
OECD
ÍsAL-deila til
ríkissáttasemjara
sex verkalýðsfélög hafa vísað kjaradeilu
sinni við ÍSAL til ríkissáttasemjara. félögin
eru Verkalýðsfélagið Hlíf, Rafiðnaðarsam-
band Íslands, Félag iðn- og tæknigreina,
MATVÍS, VM og VR, að því er Ríkisútvarp-
ið greinir frá. starfsmenn innan raða allra
félaga vinna hjá ÍSAL og snýr kjaradeilan
að kaupi og kjörum þeirra starfsmanna. -jh
Verkalýðsfélögin
samþykkja með miklum
meirihluta
Verkalýðsfélögin hafa samþykkt nýgerða
samninga með miklum meirihluta en
Samtök atvinnulífsins hafa þegar sam-
þykkt samningana. Flóabandalagið, Félag
bókagerðarmanna og Drífandi í Vest-
mannaeyjum urðu fyrstu félögin til að skila
niðurstöðum úr kosningum um nýja kjara-
samninga ASÍ og SA. 86 prósent þeirra
sem kusu greiddu atkvæði með samningi
Flóabandalagsins og 89,4% prósent studdu
samning Félags bókagerðarmanna. Alls
greiddu 305 bókagerðarmenn atkvæði
af 769 á kjörskrá. 89,4% sögðu já, 10,6%
nei og 13 atkvæði voru auð og ógild. Þá
samþykktu félagar í Drífanda sinn samning
með 70 prósentum atkvæða. -jh
Áverkar á konunni ekki
eftir hálstak
Maður á sextugsaldri, sem grunaður
var um að hafa veitt sambýliskonu sinni
banvæna áverka, hefur verið látinn laus
úr varðhaldi, að því er fram kom í fréttum
Ríkisútvarpsins. Lögreglan var hinn 15. maí
síðastliðinn kölluð að húsi í reykjavík þar
sem konan fannst. Hún var endurlífguð og
flutt á slysadeild, þar sem henni var haldið
sofandi í öndunarvél. Hún komst aldrei til
meðvitundar og lést fimm dögum síðar.
sambýlismaðurinn hringdi sjálfur eftir
aðstoð lögreglu og var handtekinn á vett-
vangi, grunaður um að hafa veitt konunni
alvarlega áverka með hálstaki. Hann var
undir áhrifum áfengis og vímuefna og bar
við minnisleysi um það sem hafði gerst, að
því er fram kemur í fréttinni.
„Bráðabirgðaniðurstaða krufningar hefur
leitt í ljós að áverkarnir voru ekki eftir háls-
tak og urðu konunni líklega ekki að bana.
Lögreglan taldi því ekki ástæðu til að halda
honum lengur. Hún bíður nú lokaniður-
stöðu krufningar,“ segir enn fremur. -jh
CINTAMANI
WWW.CINTAMANI.IS
Peysuveður
Líttu vel út án
þess að sjúga stöðugt
upp í nefið.
Dálítil rigning í flEStum
lanDShlutum, En þá Einkum
Sunnantil. rOfar til SíðDEgiS
höfuðbOrgarSvæðið: rigning
frAMAn Af dEgi En sÍðAn
sMÁskúrir.
frEmur vætuSamt vErður auStan-
lanDS, SmáSkúrir annarS Og Sólríkt
SuðvEStan- vEStanlanDS.
höfuðbOrgarSvæðið: fÍnAstA VEður,
Hægur Vindur sóL MEð köfLuM og HLýn-
Andi VEður.
áfram rigning um auStanvErt
lanDið Og ákvEðinn vinDur.
hElDur kólnanDi.
höfuðbOrgarSvæðið: LEngst Af
LéttskýjAð. BLÁstur ÞEgAr LÍður Á
dAginn, En sæMiLEgA HLýtt.
þurfum helst mikla
rigningu sunnanlands
Á öskusvæðinum þurfum við góða skolun.
svo virðist sem að þessu sinni rætist ósk
okkar. Úrkomuskil fara yfir landið í dag
með vætu í flestum landshlutum og mest
suðaustanlands. Á morgun verður vindur A-lægur,
áfram væta austan- og suðaustanlands, en birtir
upp vestanlands. snýst í nokkuð ákveðna
nA-átt á sunnudag með áframhaldandi
rigningu norðaustan- og austanlands.
jafnvel snjókoma til fjalla undir kvöldið.
Það er svo sem enginn hiti sem
heitið getur um helgina, helst að
það nái 10 stigum þar sem sólin
fær að skína.
8
6 7 5
6 10
7 8
5
8
9
5 6
4
8
Einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Föstudagur laugardagur sunnudagurveður
Þ etta veldur okkur miklum áhyggjum. Það er óhætt að segja það,“ segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir um þá gríðar-legu aukningu sem orðið hefur á milli ára í sýkingum og
HIV-smiti sprautufíkla. Að sögn Haraldar er um að ræða aukningu
sem hófst á árinu 2007. „Þetta hefur verið stigvaxandi vandamál og
við sjáum það núna að um er að ræða hópsýkingu á meðal fíkniefna-
neytenda. Ég held að það sé ekki hægt að tala um neitt annað en
það,“ segir Haraldur.
Spurður um ástæður þessarar aukningar segir Haraldur að þetta
tengist að öllum líkindum aukinni neyslu á rítalíni. „Fólk sem notar
rítalín sprautar sig oft því áhrif efnisins virðast fara hratt úr líkam-
anum. Það virðist gæta kæruleysis á meðal þessara neytenda varð-
andi notkun á sprautum og lítið er spáð í hvort þær séu notaðar eða
nýjar. Þetta er stærsta vandamálið og grafalvarlegt,” segir Haraldur
og bætir því við að það sé hans ósk og fleiri að losna við rítalín af
götunni. „Það fer mikil vinna í að reyna að finna lausnir á þessum
vanda með rítalínið. Við erum stöðugt að reyna að finna leiðir til að
gera aðgengi að lyfinu erfiðara. Ein hugmyndin sem kom upp er
að eingöngu verði hægt að nálgast lyfið á Landspítalanum. Það er
verið að skoða þá hugmynd,“ segir Haraldur en auk þess hefur fjöldi
þeirra lækna sem hefur leyfi til að skrifa upp á rítalín verið takmark-
aður mjög.
óskar hrafn þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Heilbrigðismál sýkingar sprautufíkla
HIV-faraldur á
meðal rítalínfíkla
sóttvarnalæknir segir útbreiðslu rítalíns mikið áhyggjuefni og að allar leiðir séu
skoðaðar til að stemma stigu við auðveldu aðgengi að efninu.
haraldur briem sótt-
varnalæknir. Ljósmynd/Hari
fjöldi
fíkniefna-
neytenda
með hiv-
smit
2007 6
2008 0
2009 5
2010 10
2011 10*
* allir HiV smitaðir
á árinu, meirihluti
fíkniefnaneytendur.
læknadóp í kastljósi
jóhannes kr. kristjánsson, sem missti
dóttur sína úr of stórum skammti af
morfíni fyrir ári, hefur unnið að frétta-
skýringu um læknadóp sem birt var í
kastljósi í þessari viku. Þar var varpað
ljósi á þá hættu sem steðjar að ís-
lenskum ungmennum í formi læknadóps
og það eftirlitsleysi sem ríkir á meðal
yfirvalda.
Hverjir smita?
Vangaveltur hafa verið um hvernig þessi gríðarlega aukning smits
og sýkinga meðal sprautufíkla er tilkomin. Ein kenningin er að ein-
hverjir smitaðir einstaklingar smiti aðra viljandi. Haraldur Briem
segir nær ómögulegt að sanna það vegna minnisleysis sjúklinganna.
„Þeir læknar sem sinna þessu fólki reyna alltaf að rekja hvaðan
smitið kemur. fólk man hins vegar flest ekki neitt þannig að það er
ómögulegt að segja til um hvort sú kenning er rétt. En hún hefur
verið skoðuð.“
4 fréttir Helgin 27.-29. maí 2011