Fréttatíminn - 27.05.2011, Blaðsíða 60
Helgin 27.-29. maí 2011
Auðvitað er
til vafasamt
fólk í mótor-
hjólaheim-
inum eins
og í KR og
Landsbank-
anum.“
Viltu breyta mataræðinu
til batnaðar á einfaldan og öfgalausan hátt?
INGA KRISTJÁNSDÓTTIR næringarþerapisti D.E.T. kennir ykkur
hve einfalt það getur verið að bæta mataræðið og hvaða ráð hún hefur til þess.
ÞETTA ER EKKI FLÓKIÐ! Inga er búin að halda yfir
40 fyrirlestra um efnið enda nálgunin einföld, skýr og
hentar öllum sem áhuga hafa á breyttum lífsháttum.
Staður og stund: Heilsuhúsið Lágmúla 5, kl.19:30 - 22:00
Innifalið er mappa með
uppskriftum og fróðleik.
Verð: 4.400 kr. Nánari
upplýsingar og skráning í síma
8995020 eða á eig@heima.is
www.heilsuhusid.is
firi›judaginn 14. júní kl.19:30
FARIÐ VERÐUR MEÐ EINFÖLDUM HÆTTI YFIR:
• Hverju er hægt að skipta út og hvað kemur þá í staðinn
• Hvernig hægt er að þekkja muninn á hollri og skaðlegri fitu
• Hvernig þú getur haldið fullri orku allan daginn og losnað
við sykurþörf og þreytuköst
É g er að fara inn í fyrsta vorið mitt ef það drull-ast til að koma, það er að
segja. Það er búið að vera svo
kalt og þótt menn séu bikerar þá
eru þeir kuldaskræfur og hjólin
hafa lítið hreyfst,“ segir Mummi.
„Það má segja að hér sé allur
mótorhjólaheimurinn kominn
á einn stað. Ég sel notuð hjól í
umboðssölu og alls konar leður-
drasl; skó, buxur, boli, jakka og
eitthvað af hjálmum. Bara svona
þetta sem þarf til þess að koma
sér af stað. Þetta er nú ekki stórt
hjá mér og ég er með sex hjól
hérna núna, af öllum stærðum og
gerðum.“
Húðflúrlistamaðurinn Sig-
urður Páll er með Mumma í
þessu og hann sér um að skreyta
fólk. Sjálfur segir Mummi úti-
lokað að hann reyni að bródera
viðskiptavini sína. „Nei. Ég geri
það ekki nokkrum einasta manni
að koma nálægt honum með
svona græjum. Það yrði ávísun
á skaðræði og lögsókn jafnvel,“
segir hann.
Mummi segir að staðurinn
hans sé hálfgerð félagsmiðstöð
mótorhjólafólks. „Þetta er bæði
almennt kaffihús og staður sem
hjólafólk hangir á. Fólk kemur
bara og fær sér kaffi og sest jafn-
vel með það út á sólpall. Og svo
er þetta líka samkomustaður fyr-
ir fólk sem kemur mikið saman
hérna þegar það er að fara út að
burra,“ segir Mummi.
En eru þetta þá ekki bara
eintómir krimmar sem hanga
þarna? „Nei. Þetta er alveg
indælisfólk,“ segir Mummi og
hlær. „Auðvitað er til vafasamt
fólk í mótorhjólaheiminum eins
og í KR og Landsbankanum.
Svoleiðis fólk finnst alls staðar
en það er nú oft þannig að eftir
því sem menn eru hörkulegri
og með fleiri tattú þá er hjartað
mýkra og ljúfmennskan meiri.“
Mummi er með opið frá kl.
12 á hádegi til tíu á kvöldin alla
daga vikunnar nema sunnudaga.
Þá er lokað enda þarf hann
sinn tíma til þess að hjóla. „Ég
er nú bara einyrki hérna en ég
er auðvitað alltaf á hjóli. Ég er
ómögulegur ef ég á ekki mótor-
hjól. Hérna næ ég að sameina
áhugamálið og vinnuna. Það vita
allir hvernig hitt dæmið fór hjá
mér og eitthvað verð ég að gera.
Umdeildir menn eins og ég fá
ekki vinnu svo glatt þannig að ég
skapaði mér mína eigin vinnu.
Maður verður bara að redda sér.
Og hvað er næst best í heimi?
Mótorhjólin og sá lífsstíll sem
þeim fylgir.“
toti@frettatiminn.is
mummi Opnaði fÉlagsmiðstöð mótOrhjólafólks
Mummi er
sinnar gæfu
smiður og
unir sér vel í
Skipholtinu þar
sem hann sam-
einar vinnu og
áhugamál.
Húðflúruð ljúf-
menni í leðri
Guðmundur Týr Þórarinsson, þekktastur sem Mummi í Mótorsmiðjunni, opnaði í
vetur mótorhjólabúð, húðflúrstofu og kaffihús í Skipholtinu. Staðurinn er orðinn að
félagsmiðstöð hjólafólks sem virðist loks geta farið að þenja mótorfáka sína.
Alvar Aalto
endurlífgaður
Norræna húsið býður upp á þá nýjung í
sumar að nú gefst gestum kostur á að fá
leiðsögn um þetta fræga hús sem finnski
arkitektinn Alvar Aalto teiknaði.
Alto er talinn meðal frægustu arkitekta
heims en hann lést árið 1976.
Íslenski leikarinn Jóel Sæmundsson
bregður sér í hlutverk Aaltos og leiðir gesti
um húsið alla daga. Í Norræna húsinu
eru allar innréttingar, lampar og nær öll
húsgögn eftir Aalto, og stóru bronshöld-
unum á dyrunum er lýst eins og handtaki
hans sjálfs; mjúkt og þétt. Aalto hannaði
innanstokksmuni í flestallar byggingar
sínar og margir þessara muna eru enn
framleiddir. –ÞT Alvar Aalto. Jóel Sæmundsson.
STOEGER P350 SYNTHETIC
PUMPA
Vinsæl pumpa. Tekur 2 ¾“, 3“ og 3 ½“
skot. 26“ hlaup. 3 þrengingar fylgja.
Fullt verð 61.900,-
Tilboð aðeins 49.900,-
STOEGER P350 MAX4 PUMPA
Vinsæl pumpa. Tekur 2 ¾“, 3“ og 3 ½“
skot. 26“ hlaup. 3 þrengingar fylgja.
Fullt verð 65.900,-
Tilboð aðeins 52.720,-
ESCORT FIELDHUNTER PUMPA
Vinsæl pumpa. Tekur 2 ¾“ og 3“ skot.
26“ hlaup. 5 þrengingar fylgja ásamt
skeftishallaplötum.
Fullt verð 55.900,-
Tilboð aðeins 45.900,-
ESCORT MARINEHUNTER
PUMPA
Vinsæl pumpa. Tekur 2 ¾“ og 3“ skot.
26“ hlaup. 5 þrengingar fylgja ásamt
skeftishallaplötum.
Fullt verð 69.900,-
Tilboð aðeins 59.900,-
OPTIMA B12 TVÍHLEYPA
Yfir / undir tvíhleypa. Tekur 2 ¾“ og
3“ skot. Einn gikkur, val á milli hlaupa.
Útdragari. 28“ hlaup. 5 þrengingar.
Fullt verð 109.900,-
Tilboð aðeins 89.900,-
OPTIMA S12 TVÍHLEYPA
Yfir / undir tvíhleypa. Tekur 2 ¾“ og
3“ skot. Einn gikkur, val á milli hlaupa.
Útdragari. 28“ hlaup. 5 þrengingar.
Fullt verð 109.900,-
Tilboð aðeins 89.900,-
BOITO MIURA I SUPREME
TVÍHLEYPA
Yfir / undir tvíhleypa. Tekur 2 ¾“ og
3“ skot. Einn gikkur, val á milli hlaupa,
útkastari. 28“ hlaup. 5 þrengingar.
Fullt verð 129.900,-
Tilboð aðeins 104.900,-
BOITO MIURA I TVÍHLEYPA
Yfir / undir tvíhleypa. Tekur 2 ¾“ og 3“
skot. Einn gikkur, útdragari. 28“ hlaup.
5 þrengingar.
Fullt verð 99.900,-
Tilboð aðeins 74.900,-
NORINCO RIFFILPAKKI
22 cal lr. riffill með boltalás. 9 skota
magasín. Sigti og snittað hlaup.
3-9x40 Norconia sjónauki ásamt
festingum. Aim Pod tvífótur með
veltihaus. Byssupoki.
Góður pakki á frábæru verði.
Aðeins 54.900,-
KRÓKHÁLSI 5 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 517 8050
MÁN. TIL FÖS.- 9 TIL 18 /// LAU. - 10 TIL 16
Í leiðinni úr bænum
AÐEINS
54.900,-
TILBOÐ AÐEINS
49.900,-
TILBOÐ AÐEINS
45.900,-
TILBOÐ AÐEINS
89.900,-
TILBOÐ AÐEINS
104.900,-
TILBOÐ AÐEINS
52.720,-
TILBOÐ AÐEINS
59.900,-
TILBOÐ AÐEINS
89.900,-
TILBOÐ AÐEINS
74.900,-
ÓDÝRA
VEIÐIBÚÐIN