Fréttatíminn - 27.05.2011, Blaðsíða 6
WWW.SKJARGOLF.IS
Eldgosið sveiflaði gengi flugfélaga
Eldgosið í Grímsvötnum hefur fjarað
út eftir kröftuga byrjun. Gosaskan
truflaði þó flugumferð í Evrópu en
ekkert í líkingu við það sem var
vegna gossins í Eyjafjallajökli í fyrra.
Mest áhrif hafði gosið á flug á Íslandi og Grænlandi en einnig í Skotlandi, Norður-
Englandi og Þýskalandi. Grímsvatnagosið olli lækkun á hlutabréfaverði flugfélaga
sem starfa á svæðinu og lækkuðu verð þeirra strax um 3-5% á mánudaginn þegar
fjármálamarkaðir voru opnaðir, eftir að fréttir bárust af upphafi þess um helgina.
Gengi hlutabréfa flugfélaga hefur hins vegar verið að hækka á ný eftir að fréttir
bárust af rénun gossins, að því er fram kemur hjá Greiningu Íslandsbanka. Áhrifin
af eldgosinu á ferðamannaþjónustu í Evrópu virðast ætla að verða mun minni en
áhrifin af eldgosinu í Eyjafjallajökli í fyrra en það gos olli töfum á um 100 þúsund
flugferðum, hafði áhrif á ferðir um 10 milljónir manns og kostaði flugfélögin um 1,7
milljarða dollara, eða sem nemur um 200 milljörðum íslenskra króna. -jh
Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstofnun kirkjunnar, vonast til að lands-
menn taki vel í söfnun stofnunarinnar sem hófst í gær, fimmtudag. Ljósmynd/Hari
Söfnun HjálparStofnun kirkjunnar
Okkar
helstu
skjól-
stæð-
ingar eru
ungar
barnafjöl-
skyldur
á bótum
og mikið
veikir
einstak-
lingar.
t ilgangurinn með þessari söfnun er að safna fjármagni til að vera með úttektarkort frekar en matarpoka fyrir þá sem leita til okkar. Með
því erum við að verða við áskorun stjórnvalda og þeirra
sem þurfa hjálp og telja það niðurbrot að þurfa að
standa í röð til að fá hjálp,“ segir Vilborg Oddsdóttir,
félagsráðgjafi hjá Hjálparstofnun kirkjunnar, um söfnun
sem hrint var af stað með þætti á Stöð 2 í gærkvöld.
Vilborg segir að Hjálparstofnun kirkjunnar vilji jafn-
framt gerast talsmaður þeirra sem standa höllum fæti
í samfélaginu. „Við viljum fjalla um fátækt og gera það
hispurlaust,“ segir Vilborg.
Aðspurð um fjárhæðir sem Hjálparstofnun kirkj-
unnar þarf mánaðarlega til að sinna þeim sem leita til
hennar segir Vilborg upphæðina vera á bilinu sjö til tíu
milljónir ef vel ætti að vera. „Þetta eru nokkur hundruð
fjölskyldur. Það varð sprengja í nýjum umsóknum í
janúar 2009 en síðan hefur þetta haldist nokkuð jafnt
og fjöldi þeirra sem leitar til okkar í fyrsta sinn hefur
minnkað að undanförnu. Síðan er auðvitað hópur sem
stóð illa fyrir kreppu og stendur enn verr í dag. Okkar
helstu skjólstæðingar eru ungar barnafjölskyldur á
bótum og mikið veikir einstaklingar,“ segir Vilborg.
Aðspurð hvenær úttektarkortin líti dagsins ljós seg-
ist Vilborg vonast til að það verði fljótlega. „Það er verið
að vinna umsóknir og meta hversu mikla hjálp hver og
einn þarf. Það er auðvitað mismunandi eftir aðstæðum.
Þetta er mikið púsl,“ segir Vilborg.
Hjálparstofnun kirkjunnar hefur sent greiðsluseðla
í alla heimabanka upp á 2.400 krónur en auk þess
eru frjáls framlög vel þegin. Að auki verður hægt að
hringja í styrktarnúmer eða svokölluð 900-númer í
söfnuninni á Stöð 2 á fimmtudaginn og síðan áfram á
meðan söfnunin stendur yfir.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Safna til að
koma úttektar-
kortum af stað
Hjálparstofnun kirkjunnar stendur fyrir söfnun sem hófst form-
lega á Stöð 2 í gærkvöld. Tilgangurinn er að safna peningum og
fjalla hispurslaust um fátækt á Íslandi.
Helgin 27.-29. maí 2011