Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.05.2011, Page 8

Fréttatíminn - 27.05.2011, Page 8
Fjórðungur með háskólapróf Rúmlega 56 þúsund manns á aldrinum 16-74 hafa lokið háskólanámi, eða um fjórðungur íbúa á Íslandi á sama aldursbili. Háskólamenntuðum hefur fjölgað nokkuð frá árinu 2003, þegar þeir voru 22% íbúa, að því er Hagstofan greinir frá. Um 36% íbúa hafa lokið starfs- og framhaldsmenntun, þ.e. lokið námi á framhaldsskólastigi sem er a.m.k. tvö ár að lengd eða lokið námi á viðbótarstigi, alls tæplega 81 þúsund manns. Þeir sem eingöngu hafa lokið styttra námi, þ.e. grunnmenntun, eru tæplega 86 þúsund talsins. Það eru 39% íbúa og hefur fækkað úr 42% árið 2003. Á höfuð- borgarsvæðinu hafa 33% íbúa eingöngu lokið grunnmenntun en 30% hafa lokið háskólamenntun. Utan höfuðborgarsvæðisins hafa 49% íbúa aðeins lokið grunnmenntun og 16% lokið háskólamenntun. Yngri konur eru mun líklegri til að hafa lokið háskólanámi en yngri karlar. Rúmlega 41% 25-29 ára kvenna hafa lokið háskólamenntun en tæplega 23% karla á sama aldri. - jh Eigum nokkur eintök af vel með förnum Sorento, frá kr. 1.850.000 - 3.690.000 - bensín eða dísil. Verð frá kr. 1.850.000 3.500 kg dráttargeta Eigum nokkra sérlega sparneytna Kia cee’d dísilbíla, árg. 2008, ekna í kringum 50-60.000 km. Verð: kr. 2.190.000 Opið virka daga kl. 9-18 notaðra bílaÚRVAL Allt að 70% fjármögnun í boði Laugardaga kl. 12-16 Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík Sími 590 2100 · askja.is TÍMALAUS KLASSÍK Í úTSKrifTArgjöf Skagen herraúr kr. 24.900 Skagen dömuúr kr. 23.900 PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 11 30 1 www.jonogoskar.is LAUgAvegUr / SMárALind / KringLAn Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is A T A R N A Siemens þvottavélar, þurrkarar og uppþvottavélar á tilboðsverði. Hreint & klárt í maí Öflugur greiðendavefur með hagnýtum upplýsingum s.s. • Yfirlit mála • Samkomulög • Greiðslur með korti • Góð ráð og margt fleira Þjónustuver 440 7700 www.ekkigeraekkineitt.is Aflaverðmæti 23,4 milljarðar Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 23,4 milljörðum króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins samanborið við 21,1 milljarð á sama tímabili í fyrra. Aflaverðmæti hefur því aukist um 2,3 milljarða eða 10,8% á milli ára, að því er fram kemur hjá Hagstofu Íslands. Aflaverð- mæti botnfisks var í lok febrúar orðið 13,2 milljarðar og dróst saman um 18,7%. Verðmæti þorskafla var um 7,7 milljarðar og dróst saman um 18,3%. Aflaverðmæti ýsu nam tæpum 1,9 milljörðum og dróst saman um 34,9%, en verðmæti karfaaflans nam 1,7 milljörðum, sem er 6,1% samdráttur. Verðmæti ufsaaflans dróst saman um 19,4% milli ára í 679 milljónir. Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 1,6 milljörðum króna í janúar til febrúar 2011, sem er 25,4% aukning. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 143,4% milli ára og nam rúmum 8,4 milljörðum. Má rekja þá verðmætaaukn- ingu til aukins loðnuafla. Verðmæti hans nam 7,3 milljörðum króna og jókst um 357% milli ára. -jh Þ að er alveg klárt að kyn-ferðislegt ofbeldi er ein af stærstu ógnum sem steðja að börnum á Íslandi. Rannsóknir sýna að allt að fjórtán prósent af stelpum verða fyrir kynferðislegu ofbeldi fyrir átján ára aldur og þótt talan sé nokkuð lægri hjá strákum þá eru þessar tölur alltof háar,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi. Samtökin kynntu í gær viðamikla skýrslu um stöðu barna á Íslandi. Stefán Ingi segir að kynferðislegt ofbeldi sé erfitt og flókið mál og ekki sé hlaupið að því að taka á því. Það þýði þó ekki að það eigi ekki að gera neitt. „Við verðum að berjast gegn þessu með öllum tiltækum ráðum,“ segir Stefán Ingi. Í skýrslunni er gagnrýnt hversu fáar rannsóknir hafi verið unnar og hversu litlu eða nær engu fé hafi verið varið til forvarna í þessum málaflokki. Stefán Ingi segir að það þurfi að gera nýjar rannsóknir. „Það liggur fyrir mikið af gögnum sem hægt er að greina. Það hefur verið gert gagnvart öðrum ógnum sem að börnum okkar steðja,“ seg- ir Stefán Ingi og bendir þar til að mynda á neyslu áfengis, tóbaks og vímuefna. „Þar hefur verið unnið aðdáunarvert starf sem hefur skil- að miklum árangri, eins og til að mynda með minnkandi unglinga- drykkju. Slíkt gerist ekki fyrir til- viljun heldur vegna þess að unnið er í því. Og það kostar peninga,“ segir Stefán Ingi og vill að ein- hver taki ábyrgð á því að minnka kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum. „Við eigum slysavarnaráð og manneldisráð. Þetta eru hlutar af öðrum stofnunum með skýr hlutverk að reyna að lækka tíðni þeirra ógna sem heyra undir þær. Þetta vantar fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Grasrótar- samtök eins og Blátt áfram, Dreka- slóð, Stígamót og fleiri hafa unnið frábært starf en það þarf að koma meira frá opinberum aðilum,“ segir Stefán Ingi. Spurður hvort stjórnvöld dragi lappirnar í þessum málaflokki vill Stefán Ingi ekki ganga svo langt að segja það. „Stjórnvöld hafa mikinn áhuga á þessu máli og hafa gert margt gott, til að mynda í aðgerðar- áætlunum gegn mansali, heimilis- ofbeldi og kynferðisofbeldi. Það er stefna í gangi en það þarf að hrinda henni í framkvæmd.“ Um tilgang skýrslu Unicef segist Stefán Ingi vonast til að hún verði jákvætt innlegg í umræðuna um stöðu barna. „Svona heildarskýrsla hjálpar okkur að sjá hlutina í sam- hengi og til að ræða hlutina áfram. Við erum boðin og búin að halda áfram og hjálpa til eins og við getum,“ segir Stefán Ingi en bendir þó á að forvarnir og fjármagn í forvarnir sé það sem skipti mestu máli. „Það þarf að skoða verklagsregl- ur – hvernig brugðist er við tilkynn- ingum. Það þarf að opna umræðuna því gerendur nærast á þögninni. Það þarf að tala til gerendanna og skoða áhrif kláms og hvaða teng- ingar klám hefur við ofbeldi. Það er til mikið af góðum sérfræðingum hér sem geta lagt hönd á plóginn,“ segir Stefán Ingi.  Unicef SkýrSla Um StöðU barna á ÍSlandi Vilja aukið fé í for- varnir gegn kynferðis- ofbeldi á börnum Framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi segir kynferðislegt ofbeldi eina þá stærstu ógn sem steðjar að börnum á Íslandi. Hann vill markvissar aðgerðir til að fyrirbyggja ofbeldið. Staða barna á Íslandi 2011 Það þarf að opna umræðuna því gerendur nærast á þögninni. Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri Unicef, segir allt til alls á Íslandi til að minnka kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Ljósmynd/Hari Forsíða skýrsl- unnar Staða barna á Íslandi 2011. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is 8 fréttir Helgin 27.-29. maí 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.