Fréttatíminn - 27.05.2011, Side 44
MatartíMinn Megrunarkúr fyrir fólk í allsnægtarsaMfélöguM
P ollýanna var góður kennari í hófsemd. Með hennar aðferðum geturðu sagt næst þegar þú verður svöng/svangur;
O, það eru nú örugglega margir svengri en ég.
Þetta gefur þér eilítið andrúm til að velta fyrir
þér mun á milli góðrar matarlystar, græðgi og
hungurs. Og með æfingunni munt þú læra að
innbyrða mat með mismunandi hætti eftir því
hvað við á: Þú gælir við matarlystina, seður
hungrið en segir græðginni að halda kjafti.
Og þar sem þið eruð í raun aldrei hungruð þá
færast matarsiðir ykkar hægt og bítandi yfir á
svið gælanna. Það er hin eiginlega lífsnautn.
Að fá að gera allt vel og gera allt fallega.
Erfðir og umhverfi, matur og hreyfing
En samkennd Pollýönnu hálpar okkur líka að
setja hluti í samhengi. Ef þú ert of feit/ur ertu
líklega of feit/ur af sömu ástæðu og flestir
aðrir eru of feitir. Það eru nánast engar líkur
til þess að efnaskiptin í þér séu öðruvísi en hjá
öðru fólki svo að það tekur því ekki að eyða
orðum á það. Við skulum gera samning: Skoð-
aðu allar myndir sem þú kemst yfir úr fanga-
búðum nasista og þegar þú hefur fundið einn
feitan fanga skaltu opna fyrir þann möguleika
að vegna brenglaðra efnaskipta fitnir þú, sama
hversu lítið þú borðar.
Fólk á Íslandi hefur fitnað mikið og ört
síðustu þrjá áratugi. Holdafar ræðst af tvennu;
erfðum og umhverfi. Í þróunarsögu mannsins
eru þrír áratugir aðeins leiftur. Það eru engar
líkur til þess að rekja megi fitusöfnunina til
stökkbreyttra gena. Sökin liggur í umhverf-
inu; neyslunni.
Fitusöfnun er samspil tveggja þátta; of
lítillar hreyfingar eða brennslu og of mikillar
neyslu á mat. Og þar sem þú ert meira og
minna nákvæmlega eins og annað fólk – og
þar sem fólk fór almennt að fitna upp úr 1980
– geturðu beitt tiltölulega einfaldri mælistiku
á hreyfingu þína og matarneyslu; færðu þetta
aftur um 30 ár.
Aftur til fortíðar
Horfðu á heimili þitt: Eru sófarnir dýpri en
þeir voru hjá ömmu? Borðar þú kannski í sóf-
unum? Eru diskarnir stærri en hjá ömmu? Er
ískápurinn fullur af mat sem þú endar oftast
með að henda?
Fylgstu með daglegri virkni: Notar þú lyftu
oftar en amma? Styður þú þig við handrið á
leið niður stiga, ferðu á bíl út í búð, syndirðu í
sundi eða siturðu bara í heita pottinum?
Skoðaðu innkaupakörfuna: Hversu mikið
af eldamennskunni hefur þú flutt af heim-
ilinu og til iðnaðareldhúsa? Náðu þessari
eldamennsku aftur heim til þín. Þú þarft að
byggja upp heilbrigðar samvistir við mat. Þær
færðu ekki nema með því að kynnast mat og
kunna að fara með hann. Kauptu aðeins hrá-
efni til eldamennsku. Og áttaðu þig á hversu
lítinn hluta verslunarinnar þú notar. Afgang-
urinn af hilluplássinu er matur sem var ekki
til fyrir 1970 – og mest af honum ekki heldur
fyrir 1980. Þetta er maturinn sem fólk er
almennt að fitna af. Og þetta er umfang hans;
hann tekur um 85 prósent af hillunum. Þú
verður því að eyða þeirri hugsun að þú getir
borðað eins og hinir gera almennt. Þú verður
að setja þér þín eigin mörk.
Hættu
Þegar neyslubreytingar síðustu þriggja
áratuga eru skoðaðar sést gríðarleg aukning
í gosdrykkju og sætindaáti. Ef þetta hefur
almennt þyngt fólk þá á það einnig við um
þig. Hættu því að drekka gos og borða nammi
og þú munt missa hálft kíló á viku þar til þú
sígur inn fyrir kjörþyngd.
Lærðu af drykkjusjúklingum og reyndu
ekki að trappa niður neysluna. Hættu alveg.
Þegar þér hefur tekist að halda þig frá nammi
og gosi í þrjá mánuði áttar þú þig á að þú
saknar þess ekki. Þér finnast þær málamiðl-
anir sem þú vilt gera í dag hlægilegar.
allsnægtir Hvernig Hægt er að lifa af
fáeinar reglur fyrir HófsaMan kúr
36 matur
1Hættu alveg að drekka gos eða sykraða drykki (Nema þú búir þá til
sjálf/ur: Límonaði er safi úr 6
sítrónum, börkur af þremur,
4 msk. sykur og 1,5 lítri
vatn; geymt í ísskáp þar til
límonaðið verður ískalt. Gos út
úr búð er eins og eitthvað úr
Grímsvötnum í samanburði).
2 Hættu alveg að borða nammi. Nammi er eins og gos. Það gefur meiri
lífsgleði að neita sér um það
en að borða það.
3Ekki borða kökur nema þær sem þú bakar sjálf/ur og ekki borða ís nema
þú búir hann til sjálf/ur. Það
eykur tilfinningu þína fyrir mat
og matseld að standa í þessu
en fyrst og fremst eru engar
líkur til að þú notir jafn mikinn
sykur og er í tilbúnum kökum,
kexi og ís.
4Ekki kaupa neinn tilbúinn mat sem hefur verið sykraður
eða saltaður fyrir þig (þetta
strokar út megnið af fram-
leiðsluvörum MS og Slátur-
félagsins).
5Borðaðu bara góðan mat! Njóttu þeirrar matarlystar sem gosið
og nammið skilur eftir. Fylltu
hana með öllu því sem þér
dettur í hug. Lestu um mat
og matarsiði, prófaðu ókunna
rétti. Haltu matardagbók –
ekki til þess að telja kaloríur
heldur til að hvetja þig áfram
í að borða fjölbreyttan mat
og spennandi. Eftir að þú
venur þig af sykrinum munu
bragðlaukarnir vakna upp og
fara að skynja fínlegri tóna
tilverunnar og heill heimur
opnast fyrir þér (sem þung
tjöld sykursins birgðu þér
sýn á).
6Farðu hófsamlega með kúrinn þinn. Ekki messa yfir öðru
fólki. Þiggðu allan mat í
húsum annarra og hældu
honum, sama hversu sætur
eða búðarkeyptur hann er.
Páll postuli ráðlagði frum-
kristnum að borða frekar í
heimboðum kjöt sem ekki var
slátrað samkvæmt gyðing-
legum stöðlum, en að hanga
í stífustu trúarsetningum.
Gestrisni og vinátta er mikil-
vægari en vigtin.
7Notaðu bíl bara í neyð – í stað þess að ganga bara í neyð. Farðu í heilsu-
bótargöngu. Ef þeir leiðist að
horfa á fuglana og sjóinn og
skýjafarið og dásama síkvikan
breytileika sköpunarverksins
fáðu þér ipod og taktu inn
alla þá músík sem þú átt eftir
að uppgötva eða hlustaðu á
hljóðbækur – en þá aðeins
meistaraverk; engan sykur eða
feitmeti.
8Hlustaðu aldrei á einkaþjálfara eða fólk sem vill selja þér ein-
hverjar lausnir. Þú þarft ekki
meiri neyslu – Wold Class er
neysla – heldur minni.
9Viktaðu þig á sama tíma á hverjum degi. Horfðu fram hjá dagsveiflum.
Fylgstu með vikumeðaltalinu.
Hófsemdarkúrinn
Sjö lyklar að velgengni
Helgin 27.-29. maí 2011
Eins og fótboltinn hefur á okkar tímum orðið farvegur vangaveltna um tilgang samfélags,
mátt hópsins og getu einstaklingsins; þá hefur megrunarkúrinn gleypt hina almennu umræðu
um mat og hollustu. Við beygjum okkur undir þessa staðreynd og hér er okkar fyrsta tilraun:
Hófsemdarkúrinn; losnið við hálft kíló á viku! Eða fyrir þá áköfu: Kraftaverkakúrinn; losnið við
26 kíló á einu ári!
Lífsbarátta hinna
hófsömu er ekki
alltaf auðveld og
stundum þarf að
beita hörku; ekki
síst þegar hætta
er á mægðum
við óhófslið og
nýríka sukkara.
Breska konungs-
fjölskyldan beit
þannig Wallis
Simpson af sér og
hjó erfðaprinsinn
Edward af sér
eins og hönd
sem hneykslaði.
Óhóf frú Simpson
skemmdi ekki
góðan fatasmekk
prinsins en kom
fram í nýjunga-
girni og græðgi
á öðrum sviðum.
Hér eru hjónin til
dæmis með nýjum
vini árið 1937.
Ljósmyndir/Nordic
Photos/Getty Images
Hófsemd
er ekki
lífsafneitun.
Hófsemdin
lengir lífið
og auðgar
það. Fyrir
hvert kíló
af nammi
og lítra af
gosi sem við
neitum okkur
um opnast
magarými
til að borða
miklu fjöl-
breyttari,
óvæntari,
líflegri og
kátari mat.
Valið er
því ekki á
milli tómrar
eða fullrar
körfu heldur
spurning um
með hverju
þú vilt fylla
körfuna
þína?
Þórir Bergsson og Gunnar Smári Egilsson
matur@frettatiminn.is
Matur
Sá hófsami lifir
Til að finna leiðsögn um hvernig megi lifa af í allsnægt-
um verður millistéttin í dag að horfa til erfðastéttanna
í Evrópu, aðalsins; fólks sem hefur ekki af efnahags-
legum ástæðum þurft að neita sér um neitt kynslóðum
saman. Nú er loks ljós tilgangurinn með tilvist þessa
fólks. Það hefur öldum saman þreifað fyrir sér í
lífsstíl og neyslu; og eftir mikið brottfall, miklar
iðrakvalir og andlegar óhófsraunir má merkja
nokkuð skýrar niðurstöður þessarar tilraunar.
En fyrst skulum við minnast allra þeirra
ístrubelgja sem féllu í valinn á leiðinni; of-
drykkjumanna og partíljóna. Það er fyrir fórn-
fúsan lífsstíl þeirra sem við vitum að það er
ekki gott markmið, þegar við komumst í álnir,
að breyta öllum dögum í sunnudaga, hátíðis-
daga – kjötkveðjuhátíð. Ýmist glutruðu þessir
menn niður ættarauði sínum í lifanda lífi eða
ólu börn sín upp við slíkt óhóf og eftirlátssemi
að þau átu sjálf sig út á gaddinn. Og ef þessir
menn höfðu auðgast óhóflega, svo mjög að það
skipti í raun engu hversu mikið þeir átu eða svölluðu,
þá koðnaði heilsa þeirra niður og þeir hrukku upp af á
miðjum aldri, börn þeirra urðu mæðin og löt, feit og sótt-
sækin; og eftir eina, tvær, þrjár kynslóðir dóu þessar
ættir út – nema þær mægðust við einhvert af hófsemdar-
fólkinu.
Kunnust af hófsemdarfólkinu er Windsor-ættin;
breska konungsfjölskyldan. Þar er enginn feitur. Þar
ganga karlarnir í jökkum með ermabótum, svo þeir end-
ist lengur. Þeir líta jakka sömu augum og bíla. Ef þú átt
nóga peninga þá kaupir þú þér auðvitað besta bílinn. Og
ef þú ert svo heppinn að eiga besta bílinn dugar hann í
25 ár og þú þarft ekki að tala við bílasala nema fjórum
sinnum á öld.
Þetta er hugmyndin á bak við lúxus-varning. Hann er
vel hannaður og úr bestu efnum, hann byggist á þraut-
reyndri tækni og gömlum hefðum. Þess vegna endist
hann og frelsar eigandann frá því að þurfa að hanga úti í
búð. Nýríkt fólk, sem kaupir bestu bílana en endurnýjar
þá svo árlega, hefur þannig algjörlega misskilið lærdóm
sögunnar: Kosturinn við að efnast er að þurfa að versla
minna – ekki meira.
Maturinn sem Windsorar bjóða upp á gengur fram af
nýríkum fyrir hversu óspennandi og venjulegur hann
er. Þar er ekkert fusion, engir heilsteiktir mjólkurgrísir,
engar ísbombur og engin goja-ber (eða hvað það nú er
sem er í tísku hverju sinni). Og eftir hófstilltan ábæti er
fólki boðið í göngu.
Útimálning
Málaðu
í allt sumar!
Mikið úrval