Fréttatíminn - 27.05.2011, Blaðsíða 57
Helgin 27.-29. maí 2011
www.snakk.is Fitness popp er á
HEILBRIGÐI ER LÍFSTÍLL
Létt og trefjaríkt
Hreyfing - Næring - Jákvæðni
NÝ SENDING
Fullar verslanir af fallegum sumarfatnaði
Kjóll
4500
KRINGLAN SMÁRALIND WWW.FACEBOOK.COM / VEROMODA ICELAND
Heitt í
sumar fyrir
strákana Strákar eru ekki eins mikið með puttann á púlsinum og stelpur þegar
kemur að tísku. Ekki er eins mikið af
frumkvöðlum og flestir þeirra fylgja
tískustraumunum.
Nú í sumar býður tískan upp á ótal
möguleika fyrir stráka. Það er ekki
nauðsynlegt að fleygja gömlum
bolum, skyrtum eða buxum því það
heitasta í dag eru „klippt“, sumarleg
föt. Hægt er að breyta gömlum
flíkum í flottar tískuvörur á litlum
tíma aðeins með litlu handtaki. Gerir
stílinn persónulegri.
Háu, vinsælu strigaskórnir
eru ekki eins vinsælir
nú í sumar og þeir
hafa verið og lágu,
léttu og sumarlegu
skórnir taka við. Þeir
passa vel við kvartbuxur, stuttbuxur
og hreinlega hvað sem er.
Sumarlegir bleiser-jakkar eru
áberandi. Þunnir, í öllum litum og
passa við hvað sem er. Hvort sem það
er í ísbíltúrinn eða samkvæmið.
Ray Ban gleraugun er flott fyrir
sumarið og hreinlega ómissandi.
Þau hafa náð ákveðnum stalli innan
tískunnar.
Gallaefni er vinsælt í sumar, hvort
sem það eru skyrtur, vesti eða buxur.
Blái liturinn klæðir hvern sem er og
hentar vel við hvaða veðráttu sem er.
Sumir segja að það þurfi ákveðna
týpu til að púlla hattatískuna. En svo
virðist ekki vera. Stráhattarnir eru
áberandi í ár, sérstaklega í sumar.
Gráir, svartir eða drappaðir, skiptir
ekki máli.
Frá H&M.
Gallaskyrta frá Deres.
Svört Ray Ban gleraugu
sem passa við allt.
Hvítir Van skór vinsælir.