Fréttatíminn - 27.05.2011, Page 62
... minn
karakter er
notaður til
að pynta
aðra því
hann skilur
ekki sárs-
aukann.”
L eikarinn Tómas Lemarquis fer með eitt af tveimur aðalhlut-
verkum í spænsk-frönsku kvikmynd-
inni Painless sem tekin verður upp
í Barcelona í haust. Myndin segir
frá börnum með sjúkdóm sem gerir
það að verkum að þau finna ekki
til sársauka. Tveimur persónum er
teflt saman; önnur finnur ekki til til-
finningalega en karakter Tómasar
skynjar ekki líkamlegan sársauka.
„Þetta eru heimspekilegar spurn-
ingar um hvort það sé sársaukinn
sem gerir okkur mannleg,“ segir
Tómas.
Kvikmyndin gerist á tímum
Frankós og er frumraun leikstjór-
ans Juans Carlos Medina. Að
baki myndinni standa meðal annars
Canal+ og dreifingarfyrirtækið Wild
Bunch.
„Í sögunni taka nasistar yfir
sjúkrahúsið þar sem börnin eru
og minn karakter er notaður til að
pynta aðra því hann skilur ekki sárs-
aukann. Það er ákveðinn hryllingur
í þessari mynd. Ég er búinn að vera
í strangri líkamsþjálfun og missa
mörg kíló fyrir þetta hlutverk.“
Tómas hefur reynt ýmislegt til
að koma sér á framfæri sem leikari
í Evrópu og segir að nú loksins rofi
til. „Ég er búinn að reyna fyrir mér
í átta ár og nú er ég með umboðs-
menn í Þýskalandi, Frakklandi og
Danmörku. Það hefur verið mikil
hreyfing í gegnum þann þýska
undanfarið.“
Tómas var nýlega á kvik-
myndahátíðinni í Cannes að kynna
indversku myndina Chatrak. Hann
lék líka í þýskri sjónvarpsþáttaröð
á dögunum og segir fleiri verkefni í
pípunum.
thora@frettatiminn.is
bíó Tómas Lemarquis með aðaLhLuTverk í spænskri mynd
ragnhiLdur sTeinunn snýr afTur á skjáinn í hausT
Gerir þætti um unga
og framúrskarandi
Íslendinga
Ef maður pælir
í því þá er þetta
náttúrlega eitt-
hvað sem RÚV
á að gera.
Andri á flandri
Útvarpsmaðurinn glaðbeitti,
Andri Freyr Viðarsson, sem
hefur verið í miklu stuði á
Rás 2 ásamt Guðrúnu Dís
Emilsdóttur í þættinum Virkir
morgnar, verður á skjánum í
sumar með nýjan þátt, Andri
á flandri. Þátturinn hefur
göngu sína þegar Kastljós fer í
sumarfrí í júlí og Andri verður
þá á sínu flandri á föstudags-
kvöldum hjá RÚV. Í þáttunum
þvælist Andri um landið og
kynnist landi og þjóð á sinn
skemmtilega einlæga hátt.
Þættirnir eru sagðir vera
nokkurs konar Stiklur nýrra
kynslóða þar sem Andri fetar á
vissan hátt í djúp spor Ómars
Ragnarssonar.
Þ etta er búið að vera æðis-lega skemmtilegt og það eru líka alger forréttindi
að geta virkilega gefið sér góðan
tíma með hverjum og einum, hitt
fjölskyldu og vini viðkomandi
og komist að einhverjum góðum
leyndarmálum sem viðmæland-
inn segir manni kannski ekki
alveg sjálfur,“ segir Ragnhildur
Steinunn sem gerði það gott í
Kastljósi um árabil áður en hún
tók sér langt barneignarfrí. „Ég
hef getað lagt aðeins meira í þetta
og farið dýpra heldur en maður
getur gert þegar maður er í ein-
hverjum dagstengdum málum.“
Ragnhildur Steinunn segir
að sér finnist ekki nógu mikið
gert af því að fjalla um ungt og
framúrskarandi fólk á Íslandi og
þaðan sé hugmyndin að þáttunum
komin. „Þannig að ég ákvað að
ráðast í þetta. Að búa til átta þætti
um fólk sem mér finnst vera að
gera góða hluti. Hvort sem það
er í íþróttum, tónlist, leiklist eða
annarri list. Þannig að þetta er
ungt fólk úr öllum áttum. Sumir
eru hérna heima en aðrir komnir
til útlanda í nám eða vinnu. Þætt-
irnir hafa ekki enn fengið nafn
þannig að allar hugmyndir eru vel
þegnar. Ég held að það erfiðasta
við þetta allt saman sé að finna
nafnið en þeir hafa gengið undir
vinnuheitinu Ungir Íslendingar.“
Ragnhildur Steinunn segist
hafa lagt upp með að fá að kynn-
ast lífssýn ungu Íslendinganna,
draumum þeirra og væntingum
og hvaða leiðir þau hafa farið að
markmiðum sínum. „Ef maður
pælir í því þá er þetta náttúrlega
eitthvað sem RÚV á að gera. Og
ég geri ráð fyrir að þættirnir geti
orðið söguleg heimild þegar fram
í sækir enda er ég tilbúin að veðja
á að þetta fólk eigi eftir að verða
enn meira áberandi í framtíðinni.
Þannig að ég held að við séum
líka að búa til góðar heimildir
fyrir ókomin ár.“
Litla stúlkan hennar Ragn-
hildar Steinunnar tók sín fyrstu
fjögur skref um daginn, móður-
inni til mikillar gleði. „Hún fer sér
samt hægt og hefur látið þar við
sitja,“ segir Ragnhildur Steinunn
og bætir því við að sú stutta sé
að byrja á leikskóla. „Kostur-
inn við að gera þætti eins og
þessa er að þegar maður er
með lítið barn ræður maður
svolítið tímanum sjálfur,
hvenær maður fer í upp-
tökur, og getur líka unnið
meira heiman frá sér.“
toti@frettatiminn.is
Í aðalhlutverki á Spáni
Sjónvarpsstjarnan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir hefur síðustu tvo mánuði verið á fleygi-
ferð innanlands og utan við gerð nýrra sjónvarpsþátta þar sem hún ræðir við unga og efnilega
Íslendinga sem hafa lagt út á framabrautina. Ragnhildur Steinunn hefur lítið sést á skjánum
undanfarin misseri. Hún mætir tvíefld í sjónvarpið í haust eftir langt barneignarfrí.
Mannréttindi
í gosmekki
Gosið í Grímsvötnum hefur
truflað daglegt líf víða þótt
mest hafi vitaskuld mætt á
þeim sem búa í nágrenni við
eldstöðina. Flugsamgöngur
gengu úr skorðum og um
tíma hafði fólkið hjá Íslands-
deild Amnesty International
nokkrar áhyggjur af því að
gosmökkurinn myndi trufla
50 ára afmælishátíð sam-
takanna sem haldin verður á
Hótel Borg á laugardaginn.
Gert var ráð fyrir líflegri
þátttöku Jóns Gnarr borgar-
stjóra í hátíðahöldunum
auk þess sem grínarinn
Pétur Jóhann var á
dagskrá. Báðir voru
þeir erlendis í vikunni
og útlitið á tímabili
dökkt en góðu heilli
komst flug í samt
lag í tæka tíð.
Ari hvergi af baki dottinn
Hugskot, eignarhaldsfélag sem var að stærstum hluta
í eigu Ara Edwald, forstjóra 365 miðla, hefur verið
lýst gjaldþrota. Félagið átti 1% hlut í 365 fyrir hrun. Ari
sjálfur er þó hvergi nærri af baki dottinn enda ennþá
forstjóri 365 og þar fyrir utan skráður fyrir 6,17%
eignarhlut í vinnuveitanda sínum, 365 miðlum.
Tómas
Lemarquis
fær nóg af
verkefnum
í Evrópu
og er með
umboðsmenn
í þremur
löndum.
Lj
ós
m
yn
d:
Ce
lin
e
N
ie
sz
aw
er
Ragnhildur Steinunn hefur
verið á þeytingi við efnisöflun
fyrir þætti sína um unga og
framúrskarandi Íslendinga sem
fara í loftið í haust.
Betra loft
betri líðan
Airfree lofthreinsitækið
• Eyðir frjókornum og svifryki
• Vinnur gegn myglusveppi og ólykt
• Eyðir bakteríum og gæludýraflösu
• Er hljóðlaust og sjálfhreinsandi
Hæð aðeins 27 cm
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18
54 dægurmál Helgin 27.-29. maí 2011