Fréttatíminn - 12.04.2013, Page 20
Vikan í tölum
2 Airbus A320 vélar af árgerð 2010 bættust í vikunni í flota Wow air. Tvær til viðbótar munu bætast við fyrir sumarið.
Þúsundir barna alast upp án þess að búa hjá báðum foreldrum
15 þúsund
skilnaðarbörn
Á Íslandi eru rúmlega 15 þúsund börn undir 18 ára aldri sem eiga foreldra sem hafa skilið ein-hvern tímann á ævi þeirra. Ef skoða á fjölda
barna sem býr ekki hjá báðum foreldrum má bæta við
þessa tölu því 12 þúsund íslenskra barna fæddust utan
hjónabands. Þetta fann ég út eftir mikið grúsk í
tölum frá Hagstofu Íslands.
Ekki er hægt að leggja þessar tvær tölur
saman til að finna út fjölda barna sem búa
ekki hjá báðum foreldrum því eflaust er hér
um sömu börnin að ræða í einhver skipti, til
að mynda þegar einstæð móðir sem átt hefur
barn utan sambúðar fer í sambúð með nýjum
manni og skilur svo við hann. Í slíku tilfelli telst
barnið hennar tvisvar, annars vegar sem barn
sem fæðist utan hjónabands og hins vegar sem
skilnaðarbarn.
Mér hefur ekki tekist að finna upplýsingar
um fjölda þeirra sem fara í sambúð að nýju eftir
sambúðarslit – en hins vegar má finna tölur um
þann fjölda fólks sem fer í sambúð eða hjóna-
band eftir lögskilnað. Á árinu 2011 voru það um
950 af þeim 6900 sem skráðu sig í sambúð eða
gengu í hjónaband á árinu. Sem sagt, ófáir.
En það er ekki aðalatriðið hér.
Ætlun mín með þessari talnaleikfimi er einfaldlega sú
að benda á þann mikla fjölda barna og fjölskyldna sem
búa við svokölluð stjúptengsl. Ég og maðurinn minn
eigum þrjú af þessum 15 þúsund skilnaðarbörnum
og annað sem er orðið fullorðið. Að auki tvö saman.
Við erum því nánast orðin sjálfskipaðir sérfræðingar í
stjúptengslum, því eins og ég hef áður sagt frá í pistli
hér í þessu blaði, eiga börnin okkar sex samtals 11 for-
eldri.
Stjúptengslin hafa reynst krefjandi og mikil áskorun
í okkar sambandi. Við erum sem betur fer bæði öll af
vilja gerð til þess að leggja okkur fram sem foreldrar,
jafnt sem foreldrar eigin barna og stjúpbarna. Það
var ekki fyrr en ég fór að ræða um þau verkefni sem
við þurfum að takast á við nánast daglega er ég fékk
slík viðbrögð frá fólkinu í kringum mig sem er í sömu
stöðu að ég áttaði mig á því að hér er um málaflokk
að ræða sem er veruleiki svo ótalmargra en allt of fáir
ræða upphátt.
Ég er stolt að segja frá því að ég var í vikunni kjörin
í stjórn Félags stjúpforeldra. Félagið var stofnað árið
2005 og hefur barist ötullega fyrir því, undir stjórn Val-
gerðar Halldórsdóttur félagsráðgjafa, að auka sýnileika
stjúpfjölskyldna í samfélaginu. Ég vil gera mitt til að
leggja þessu þarfa málefni lið enda ófáar fjölskyldurnar
sem glíma við flókinn veruleika stjúptengsla daglega.
Það hefur hjálpað okkur hjónum hvað mest að fá
stuðning sérfræðinga og annarra stjúpforeldra í þessu
verkefni okkar. Við erum heppin. Fjöldi stjúpforeldra
fær engan stuðning. Þeim vill félagið hjálpa og hefur til
að mynda tekið upp þá nýjung að bjóða upp á ókeypis
símaráðgjöf einu sinni í viku, sem ég er sannfærð um
að mun nýtast mörgum. Það er engin skömm að því
að leita aðstoðar, þvert á móti. Þeir sem biðja um hjálp
gera það fyrst og fremst vegna þess að þeir vilja bæta
sig sem stjúpforeldrar. Og það er börnunum í hag.
Sigríður
Dögg
auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
Ég og maðurinn minn eigum
þrjú af þessum 15 þúsund
skilnaðarbörnum – og annað
sem er orðið fullorðið. Að auki
tvö saman.
Fimmtudaginn 18. apríl kl. 8:30-10:30 á Grand hótel Reykjavík
Nýsköpunarverðlaun Íslands 2013 verða afhent á þinginu.
DAGSKRÁ
Ávarp ráðherra
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.
Fostering gazelles in Iceland compared with the other Nordic countries
Glenda Napier, Head of Analysis, The Danish Cluster Academy.
Managing fast growing companies
Patrik Backman, Managing Partner at Open Ocean Capital.
Hefði CCP getað vaxið hraðar?
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP.
Tónlistaratriði
Nýsköpunarverðlaun Íslands 2013 afhent
Fundarstjóri er Sigríður Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Húsið opnar kl. 8:00 með léttum morgunverði fyrir gesti.
Skráning á www.nmi.is eða í síma 522-9000.
NÝSKÖPUNARÞING
Íslensk sprettfyrirtæki – skilyrði og árangur
www.mba.is
Kynntu þér MBA-nám við Háskóla Íslands.
Kynningarfundur og létt hádegishressing 24. apríl kl. 12-13
í stofu 101 á Háskólatorgi
Skoraðu á þig og taktu skrefið
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir
Framkvæmdastjóri bráðasviðs Landspítala
„Eitt af því sem ég nýtti mér úr MBA-
náminu var innleiðing á stefnumiðuðu
árangursmati á Landspítala“
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir
Saman getum
við knúið fram
afdráttarlaust
uppgjör við hrunið
321.857
manns voru
búsettir á Íslandi
hinn 1. janúar
síðastliðinni. Þeim
fjölgaði um 2.282
frá árinu áður.
3
heimaleiki
Manchester
United hefur
útvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal sótt
í vetur. Liðið hefur tapað þeim öllum.
Þetta eru þrír af fjórum tapleikjum
liðsins á heimavelli í vetur.
6.
barn kvikmynda-
leikstjórans Hrafns
Gunnlaugssonar
er væntanlegt í
heiminn 25. apríl. Hrafn er 64 ára og
hefur ófæddur sonurinn þegar fengið
nafnið Anton Aríel.
19
sæti stökk íslenska
karlalandsliðið í
knattspyrnu upp um á styrkleikalista
FIFA eftir sigur þess á Slóveníu í undan-
keppni HM. Ísland er nú í 73. sæti listans.
20 fréttir Helgin 12.-14. apríl 2013 vikunnar