Fréttatíminn - 12.04.2013, Blaðsíða 30
K ristín Eysteinsdóttir er fastur leikstjóri við Borgarleikhúsið og það kom í hennar hlut að setja á svið þrjú stutt leikverk ungra höfunda
sem urðu fyrir valinu að undangenginni samkeppni
sex skálda sem leikhúsið fékk til þess að skrifa leik-
rit um það sem helst brennur á þeim. Kristín segir
vinnuna við sýninguna Núna! óvenjulega en um leið
mjög ánægjulega og stresslausa en ástæðuna fyrir
því telur hún ekki einungis skrifast á þann sterka
hóp sem stendur að sýningunni með henni heldur
spili einnig mögulega inn í að hún sé uppfull af ein-
hverjum hamingjuhormónum þar sem hún er gengin
sex mánuði með fyrsta barn sitt og eiginkonu sinnar,
Katrínar Oddsdóttur lögfræðings, en Kristín á von á
sér um miðjan júlí.
Núna! er frumsýnt í kvöld, föstudagskvöld, og
Kristín fylgir verkinu vitaskuld eftir og snýr sér um
leið að því að skipuleggja næstu verkefni Borgarleik-
hússins ásamt samstarfsfólki sínu fram eftir vori.
„Leikhúsið fer síðan í sumarfrí um miðjan júní og þá
tekur bara gott frí við,“ segir Kristín. „Þetta er mjög
mikil tarnavinna í leikhúsinu. Maður vinnur mikið
á veturna og fær svo gott frí á sumrin og hleður þá
batteríin.“
Ætluðu að ættleiða
Og þetta sumar verður sérstaklega viðburðaríkt í lífi
Kristínar en þá á hún von á sínu fyrsta barni. „Barnið
á að koma um miðjan júlí og svo verð ég í fæðingaror-
lofi fram að áramótum en þá ætlar Kata að taka við og
fara í orlof þannig að ég stefni að því að leikstýra verki
í Borgarleikhúsinu eftir áramót. Við erum ótrúlega
hamingjusamar með þetta og það eru mjög spennandi
Þrjú leikrit núna
og barn í sumar
Leikstjórinn Kristín Eysteinsdóttir lýkur leikárinu í Borgarleikhúsinu með sýningunni Núna! sem
rammar inn þrjú stutt leikrit ungra höfunda sem takast á við samtímann á ólíkan hátt. Þegar
tjaldið fellur í vor siglir Kristín inn í viðburðaríkt sumar en hún á von á sínu fyrsta barni með
eiginkonu sinni, lögmanninum Katrínu Oddsdóttur, sem einnig sat í stjórnlagaráði.
Katrín Oddsdóttir og Kristín Eysteinsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni og hemingjan svífur yfir pólitísku heimili þeirra þar
sem þær rýna í upplausnina í samfélaginu en Katrín sat í stjórnlagaráði og hefur reynt að leggja sitt af mörkum til þess að koma
reglu á óreiðuna. Ljósmyndir/Hari
Framhald á næstu opnu
– fyrst og fre
mst
ódýr!
40
DÚNDURveRð!
299 kr.pk.
verð áður 4
98 kr. pk.
Honey Che
erios, 375 g
40%
afsláttur
6 pakka
r
á mann!
Hámark
Góður og þægilegur jepplingur
Ásett verð 2560 þ. kr. en er til sölu á 1690 þkr. staðgr,
2,7l vél, ný tímareim, heilsárs dekk, sjálfsk., 4x4,
ekinn 105 þ. km. Uppl. 695 5524
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
Saman getum við
tryggt arð af
auðlindum og haldið
þeim í þjóðareigu
Upplýsingar og innritun í S. 567 0300 Þarabakka 3
Góð þekking á undirstöðum
umferðarinnar er gott vegarnesti fyrir
framtíðarökumenn!
MÓTORHJÓL Í SUMAR?
NÁMSKEIÐ HEFJAST
Fagmennska í fararbroddi.
Ökuskólin í Mjódd býður upp á ölda gagnlegra
námskeiða um umferðarmál
www.bilprof.is
Bifhjól 15. og 16. apríl
Létt bifhjól 17. og 18. apríl
30 viðtal Helgin 12.–14. apríl 2013