Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.04.2013, Side 33

Fréttatíminn - 12.04.2013, Side 33
seeglasgow.is Áhyggjulaust líf á frábærum börum og veitingastöðum. Náðu frítt í Glasgow appið kr19.800 aðra leið með sköttum og gjöldum ákveðnir þættir í leikmyndinni sem eru alltaf notaðir aftur og aft- ur, bara á ólíkan hátt sem ég held að sé mjög gaman fyrir áhorfendur að vera vitni að. Að sjá hvernig hvert verk er tæklað í þessum að- stæðum. Við sýnum verkin með hléum þannig að áhorfendur fá tuttugu mínútur á milli verka, geta staðið upp, fengið sér drykk og velt hlutunum aðeins fyrir sér. Hver sýning fær þannig alveg sinn tíma og rými og úr verður skemmtileg kvöldstund.“ Sex leikarar deila með sér öllum hlutverkunum og Krístín segir að þannig muni áhorfendur sjá suma leikarana spreyta sig á mjög ólíkum hlutverkum á einu og sama kvöldinu. Sem fastráðinn leikstjóri við Borgarleikhúsið tekur Kristín mikinn þátt í verkefnavali og þess háttar vinnu auk þess að leikstýra. Því má segja að hún hafi verið með í þessu ferli frá upphafi þar sem hún var með í ráðum alveg frá for- vali verkanna. „Ég tók svona óbeinan þátt í þessu ásamt mörgum öðrum og þá var ekkert búið að ákveða að ég myndi taka verkefnið að mér. Það gerðist síðar en þegar það var frágengið byrjaði ég á því að hitta höfundana og heyra þeirra hug- myndir og pælingar. Við leiklásum verkin nokkuð oft og einhver þeirra tóku miklum breytingum á æfingatímanum.“ Við þrífumst á öfgum Katrín, eiginkona Kristínar, vakti mikla og verðskuldaða athygli fyrir vasklega framkomu í Búsá- haldabyltingunni og skörulega ræðu á Austurvelli þegar þung- inn í mótmælaöldunni var hvað þyngstur. Katrín tók síðan sæti í stjórnlagaráði þannig að varla þarf að spyrja hvort mikið sé talað um pólitík á heimili þeirra. „Við erum báðar mjög pólitískar og höfum rætt þetta allt mikið heima, ekki síst eftir að stjórnar- skrármálið rann út í sandinn á þingi. Mér finnst bara ekki hægt að hundsa þjóðaratkvæðagreiðsl- una svona og skil ekki hvers vegna þingið reyndi ekki að skila þessu sómasamlega frá sér. Mér fannst mjög leiðinlegt að þingið skyldi ekki ná að klára þetta. Þetta einkenndist bara af einhverjum hrossakaupum þarna í lokin þegar allir voru einhvern veginn bara að gera einhverja díla. Maður gafst svolítið upp, og ekki í fyrsta sinn, á þessu flokkakerfi og klíkudóti öllu saman og ég er mjög óákveðin um hvað ég ætla að kjósa. Það er eins og við þrífumst bara á einhverjum öfgum og allir vilji bara allir komast á nýtt fyllirí. Kjósa bara Framsókn og gefa aftur allt í botn. Þetta er mjög skrýtið og maður skilur þetta ekki alveg.“ Sviðsett samskipti í samtímanum Kristín segist tvímælalaust telja að leikhúsið sé vettvangur til þess að takast á við og greina samtím- ann. „Það er alltaf í samtímanum sem leikhúsið verður að finna einhvern snertiflöt. Hvort sem þú ert með nýtt verk eða klassík þá þarf að finna út af hverju þetta á erindi í dag og af hverju þetta snertir mig núna. Ég held að þetta sé einmitt það sem við erum að reyna að gera. Eitt verkið fjallar til dæmis mjög mikið um þessa Facebook-kynslóð og þennan heim sem einkennist af samskiptum sem eru ekki raunverulega sam- skipti. Heldur einhvers konar sviðsett samskipti þar sem fólk sviðsetur sitt eigið líf með mis- munandi ásetning í huga. Oftast bara til þess að koma vel út. Þetta talar náttúrlega mjög sterkt til samtímans og alls þessa heims sem maður hefur kannski ekki séð tæklaðan raunverulega á leik- sviði áður. Það er mjög spennandi en þetta eru alls konar sögur og ólíkar.“ Í hamingjuhormónarússi Kristín er pollróleg fyrir frum- sýninguna en samt mjög spennt. „Þetta hefur gengið mjög vel, ég er með sterka leikara og listamenn í þessu með mér en auðvitað er það mjög mismunandi hvort maður er stressaður eða ekki fyrir frum- sýningu en ég er alveg ágætlega æðrulaus og róleg núna. Ég veit ekki hvort það er bara eitthvert happý hormón sem ég er á út af óléttunni. Ég bara veit það ekki. Ég hef líka heyrt margar kon- ur tala um að maður stressar sig minna yfir hlutum þegar maður gengur með barn og ég held að það sé mikið til í því og það er mjög gott. Maður leyfir sér bara ekki að stressa sig um of og hugs- ar betur um sig og getur ekki leyft sér að lifa bara á kaffi. Sem er líka fínt og gefur manni í rauninni bara betri einbeitingu ef eitthvað er. Maður hefur dálítið val um hversu mikið maður spennir sig upp og maður tekur ekkert endilega bestu ákvarðanirnar þegar maður er mjög stressaður,“ segir leik- stjórinn sem færist spennt en þó afslöppuð nær nýju og merkingar- þrungnu móðurhlutverkinu. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Kristín frumsýnir síðustu sýningu Borgarleikhússins um helgina og handan við hornið er sumarfrí og lítið barn. viðtal 33 Helgin 12.–14. apríl 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.