Fréttatíminn - 12.04.2013, Qupperneq 46
Hið eina rétta mataræði er ekki til Fólk er ólíkt að upplagi og því misjafnt hvaða mataræði hentar hverjum og einum. Best er
prófa sig áfram og ef fólki líður betur af ákveðnu mataræði og treystir sér til að fylgja markmiðum þess til lengri tíma er líklegt
að það sé hið eina rétta. Ljósmyndir/NordicPhotos/GettyImagegs
Fæðubótarefni koma ekki í
stað matar Betra er að neyta hollr-
ar fæðu en að treysta á fæðubótarefni
til að fá þá næringu sem líkaminn
þarfnast. Í sumum tilvikum getur þó
reynst nauðsynlegt að taka
inn D-vítamín og
magnesíum.
er ódýrara! 15%
AFSLÁTT
UR
Gildir fyrir allar pakkningastærðir
og styrkleika af Nicotinell Fruit
46 heilsa Helgin 12.–14. apríl 2013
Mataræði hollusta
Nýjar heilsuvörur!
Haf-Ró er slakandi steinefnablanda með náttúrulegu magnesíum
extrakti sem unnið er úr sjó. Inniheldur einnig Hafkalk ásamt B6 og C
vítamínum sem styðja við virkni efnanna.
Magnesíum og kalk í Haf-Ró er í hlutfallinu 2:1 og ætlað þeim sem fá
ekki nægilegt magnesíum úr fæðunni.
Magnesíum er líkamanum nauðsynlegt fyrir jafnvægi vöðva- og tauga-
kerfisins. Magnesíumskortur getur lýst sér í þreytu og streitu og því
getur Haf-Ró gefið slakandi áhrif samhliða aukinni orku.
Hafkrill er hrein hágæða krillolía unnin úr ljósátu sem veidd er á vist-
vænan og sjálfbæran hátt í Suður-Íshafinu. Vinnslan fer fram á sjó til
að tryggja hámarks ferskleika.
Hafkrill inniheldur vatnsuppleysanleg Omega 3 fosfólípíð sem eru
líkamanum auðveldari í upptöku en hefðbundið Omega 3 þríglýseríð
úr fiskiolíu.
Hafkrill inniheldur andoxunarefnið Astaxanthin sem dregur úr sindur-
efnum,viðheldur gæðum olíunnar og gerir viðbætt rotvarnarefni óþörf.
Fæst í lyfja- og heilsubúðum
um allt land!
Skannaðu kóðann og kynntu
þér framleiðsluvörur Hafkalks
Öflugt gegn
blöðrubólgu
ROSEBERRY
Virkar innan 24 tíma
2-3 töflur fyrir svefn
Fæst í apótekum, heilsubúðum og
í heilsuhillum stórmarkaðanna
www.gengurvel.is
Glæsilegur kaupauki fylgir Clinique
vörum dagana 11.-17. apríl*
*ef keyptar eru Clinique vörur í
Lyaborg fyrir 6.900,- á sama tíma
og gildir meðan byrgðir endast.
Rinse-O Foaming Cleanser 50ml
Moisture Surge Extended Thirst Relief 15ml
All About Eyes 5ml
Quickliner For Eyes Intense Augnblýantur
High Impact Mascara 3,5ml
Chubby Stick Moisturizing Lip Colour Balm
Óumdeild heilsuráð
Mikið er rökrætt um mat og næringu og eru skiptar skoðanir um það hvað telst hollusta og hvað
ekki. Þó eru nokkrar undantekningar á þessu. Eftirfarandi eru ráðleggingar um heilsuna sem
flestir eru sammála um að gott sé að fylgja.
Megrunarkúrar virka ekki
Megrun getur virkað í stuttan tíma en
um leið og byrjað er að borða óhollustu
aftur koma kílóin til baka. Slíkt er kallað
jójó megrun og er mjög algengt. Lífs-
stílsbreyting er það eina sem virkar til
langs tíma.
Grænmeti bætir heilsuna
Grænmeti er ríkt að alls kyns
næringarefnum, svo sem
vítamínum, steinefnum og
andoxunarefnum. Dagleg
neysla grænmetis hefur
góð áhrif á heilsuna
og minnkar líkur á
sjúkdómum.
Omega-3 fitusýrur eru nauðsynlegar
Samkvæmt rannsóknum getur skortur á Omega-3
fitusýrum aukið líkur á geð- og
hjartasjúkdómum. Omega-3
fitusýrur eru í fiski, kjöti
dýra sem alin eru á
grasi, Omega-3
bættum eggjum
og í lýsi.
Sykur er óhollur Sykur inniheldur engin
næringarefni og sé hans neytt í miklu magni aukast líkur á nær-
ingarskorti. Mikil neysla sykurs getur valdið offitu,
hjarta- og æðasjúkdómum og sykursýki 2.
Óunninn matur
er hollastur
Við vinnslu á mat tapast
næringarefni auk þess að
ýmsum aukaefnum er
bætt í hann, svo sem
sykri, transfitu, hvítu
hveiti og alls kyns
aukaefnum sem ekki
er ráðlegt að neyta
daglega. Ef matur lítur
út fyrir að vera fram-
leiddur í verksmiðju
er betra að sleppa
honum.
Forðist skort á D-vítamíni Þegar
sólarljóss nýtur við framleiðir líkaminn
sjálfur D-vítamín. Þegar ekki er kostur á
útiveru í sólinni er nauðsynlegt
að taka inn D-víta-
mín. Skortur getur
valdið sykursýki,
krabbameini og
beinþynningu.
Forðist transfitu Transfita eykur magn slæms kólester-
óls og minnkar góða kólesterólið auk þess að valda
kviðfitu og bólgum. Langvarandi neysla transfitu
getur valdið offitu, sykursýki, hjartasjúkdómum,
Alzheimers og þunglyndi.