Fréttatíminn - 12.04.2013, Side 54
54 skák og bridge Helgin 12.–14. apríl 2013
Skákakademían æSiSpennandi keppni álfhólSSkóla og RimaSkóla
Háspenna í Grafarvogi
í slandsmót barnaskólasveita fer fram um helgina og er búist við æsispennandi keppni
sveitar Álfhólsskóla, sem er
ríkjandi meistari, og hinnar sigur-
sælu skáksveitar Rimaskóla. Fleiri
skólar geta blandað sér í toppbar-
áttuna, og er búist við fjölmörgum
skáksveitum á þetta skemmtilega
mót sem er fyrir nemendur í 1. til 7.
bekk. Fjórir liðsmenn skipa hverja
sveit og verða tefldar 9 umferðir
með 15 mínútna umhugsunartíma.
Íslandsmótið, sem haldið er í Rima-
skóla, hefst klukkan 13, laugar-
daginn 13. apríl, og heldur áfram
klukkan 11 á sunnudag.
Álfhólsskóli sigraði á Íslands-
mótinu 2012 eftir harða keppni við
Rimaskóla og náði í kjölfarið silfur-
verðlaunum á Norðurlandamótinu
í haust. Vel er staðið að skáklífinu í
Álfhólsskóla og fór skáksveit skól-
ans t.d. í æfingaferð til Tékklands
í fyrrasumar. Landsliðspilturinn
Dawid Kolka teflir á 1. borði, en
af öðrum knáum liðsmönnum má
nefna Felix Steinþórsson, Guð-
mund Agnar Bragason og Odd
Unnsteinsson.
Vösk sveit Rimaskóla mun án
nokkurs vafa gera harða atlögu að
titlinum. Landsliðsstúlkan Nansý
Davíðsdóttir leiðir sveitina, og er
Þ á er aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur lokið. Baráttan um efstu
sætin náði ekki að vera jöfn og
sveit Lögfræðistofu Íslands var
búin að tryggja sér efsta sætið
fyrir lokaumferðina. Lokastaðan
varð þessi:
1. Lögfræðistofa Íslands ..................... 248
2. Málning ............................................. 233
3. Garðsapótek..................................... 212
4. Chile .................................................. 209
5. Karl Sigurhjartarson ....................... 209
Næsta mót er 4ra kvölda Sushi
Zamba tvímenningur sem verður
spilaður með hliðar útsláttarmóti.
Um helgina fer fram Íslandsmót
í tvímenningi. Búist er við harðri
keppni og líklegt að keppnin ráðist
ekki fyrr en í lokaumferðunum.
Núverandi Íslandsmeistarar eru
Stefán G. Stefánsson og Páll Þórs-
son. Mótið fer fram í húsnæði BSÍ
að Síðumúla 37 og góð aðstaða er
fyrir áhorfendur sem vilja kíkja við
og horfa á mótið. Hægt er að skoða
þátttakendalista og dagskrá móts-
ins að finna á wwwlbridge.is
BRidge aðalSveitakeppni BRidgefélagS ReykjavíkuR
Lögfræðingarnir sigruðu með yfirburðum
skákþrautin
Hvítur leikur
og vinnur
Staðan kom upp á
sovéska meistaramótinu
árið 1967. Shamis hafði
hvítt gegn Pelts og vann
mann með einföldum og
snjöllum leik.
Lausn: 1.He5xe4! 1-0.
Taki svartur hrókinn fellur
drottningin á c7.
Landmark leiðir þig heim!
* Starfsemi Landmark byggir á öflugum mannauði sem veitir afburðaþjónustu! Okkur er sönn ánægja að sjá um þín fasteignaviðskipti – þú hringir við seljum!
100% þjónusta = árangur*
Sími 512 4900
landmark.is
Magnús
Einarsson
Löggiltur
fasteignasali
Sími 897 8266
Sigurður
Samúelsson
Löggiltur
fasteignasali
Sími 896 2312
Sveinn
Eyland
Löggiltur
fasteignasali
Sími 690 0820
Íris Hall
Löggiltur
fasteignasali
Þórarinn
Thorarensen
Sölustjóri
Sími 770 0309
Kristberg
Snjólfsson
Sölufulltrúi
Sími 892 1931
Eggert
Maríuson
Sölufulltrúi
Sími 690 1472
Haraldur
Ómarsson
sölufulltrúi
sími 845 8286
Sigurður Fannar
Guðmundsson
Sölufulltrúi
Sími 897 5930
Jafet Ólafsson, formaður Bridgesambands Íslands, afhendir Íslandsmeisturunum
Stefáni G. Stefánssyni og Páli Þórssyni viðurkenningu.
gert ráð fyrir Joshúa litli bróðir
hennar tefli á 4. borði. Aðrir í
liðinu verða væntanlega Jóhann
Arnar Finnsson, Svandís Rós Rík-
harðsdóttir og Kristófer Halldór
Kjartansson.
Fleiri skáksveitir munu örugg-
lega láta að sér kveða. Margra
augu munu beinast að hinni
kornungu sveit Ölduselsskóla
en flestir liðsmenn hennar eru í
2. til 4. bekk. Meðal liðsmanna
er Óskar Víkingur Davíðsson
sem fór á kostum á Íslandsmóti
skákfélaga á dögunum og lagði
alla andstæðinga sína að velli, og
voru flestir mun eldri en hann.
Þá verður gaman að fylgjast með
skáksveitum Salaskóla, þar sem
gríðarlega gott starf er unnið, og
hefur skólinn verið meðal þeirra
bestu síðasta áratuginn.
Íslandsmót barnaskólasveita
var fyrst haldið 1991 og þá sigraði
sögufræg skáksveit Æfingadeild-
ar KHÍ. Flestir liðsmenn þeirrar
sveitar skipuðu sér á næstu árum
í hóp bestu skákmanna Íslands.
Hin sigursæla Nansý
Davíðsdóttir mun leiða
sveit Rimaskóla á Íslands-
móti barnaskólasveita.
Álfhólsskóli í Kópavogi hefur titil að verja á Íslandsmóti barnaskólasveita, sem
fram fer um helgina.
Gerum hús að heimili
TEKK COMPANY og HABITAT
Kauptúni | Sími 564 4400
www.habitat.is | Vefverslun á www.tekk.is
Opið mán.–lau. kl. 11-18 og sun. kl. 13-18
Nýjar
vörur
í betri
búð
breYttu tiL
bÆttu við
LjÓSi
KRINGLUNNI • SPÖNGINNI • SKEIFUNNI
og
SÓLARDAGAR Í PRO OPTIK!
á 25% afslætti
Gísli Tryggvason
Saman getum við
tryggt arð af
auðlindum og haldið
þeim í þjóðareigu