Fréttatíminn - 12.04.2013, Qupperneq 64
Í takt við tÍmann Helga einarsdóttir
Sveitastelpa sem má ekki ganga á háum hælum
Helga Einarsdóttir er 25 ára körfuboltastelpa í KR og nemi í heilbrigðisverkfræði. Hún er frá Sauðárkróki og
veit fátt betra en að fara á hestbak með pabba í sveitinni. Helga er kaffisjúklingur og elskar sveitaböll.
Staðalbúnaður
Fatastíllinn minn er voða þægi-
legur. Þegar ég fer úr íþróttadress-
inu þá verða kjólar oftar en ekki
fyrir valinu eða buxur og víðar
peysur. Ég mætti vera sterkari í
skókaupum og reyni að passa mig
á að ganga ekki of mikið í háhæl-
uðum skóm því sjúkraþjálfarinn
minn er búinn að setja það á bann-
lista. Einnig fæ ég að heyra það frá
karlmönnunum í kringum mig ef
ég hækka mikið. Ég versla aðal-
lega í Sautján, Söru og Topshop
og síðan fara nokkrir þúsundkall-
arnir þegar ég kemst í H&M. Ég
er ekki merkjafrík en þegar kemur
að íþróttafötum kaupi ég ekkert
nema Nike.
Hugbúnaður
Ég er hrikalega léleg að fara út á
lífið enda hefur körfuboltinn oftast
forgang. Þegar tækifæri gefst til
fer ég yfirleitt á B5, Vegamót og
síðan má ekki gleyma gömlu góðu
sveitaböllunum þar sem hlutirnir
gerast. Við vinkonurnar förum á
Laundromat þegar við kíkjum á
kaffihús og síðan erum við tvær
úr KR sem erum ansi duglegar
við að styrkja Te & kaffi enda hálf
kaffisjúkar. Ég æfi mestmegn-
is út í KR en þykir voða gott að
breyta um umhverfi og lyfti því oft
í World Class á Seltjarnarnesi. Ég
er að klára heilbrigðisverkfræði
núna í vor og því er ekki mikill
tími afgangs fyrir sjónvarpið. Ég
horfi þó á íþróttir þegar ég get og
þá sérstaklega fótbolta, körfu-
bolta og handbolta enda hálfgert
íþróttafrík.
Vélbúnaður
Ég á iPhone sem ég er orðin
hættulega háð, ætli ég sé ekki eins
og flest ungt fólk í dag og eyði of
miklum tíma í símanum. Uppá-
halds „öppin“ mín eru Facebook,
Twitter, Instagram og Snapchat og
síðan nota ég „mailið“ mikið sem
og myndavélina. Ég var plötuð
til að kaupa MacBook Pro tölvu
fyrir ári síðan og sé ekki eftir því,
hugsa að ég yfirgefi ekki Apple úr
þessu.
Aukabúnaður
Ég bý ein og nenni því sjaldan, ja
eða bara aldrei að elda fyrir mig
eina svo að ég lifi aðallega á skyri,
hafragraut og lýsi. Ef ég fer út að
borða þá fer ég á Saffran, Gló eða
Nings. Snyrtivörurnar mínar koma
úr öllum áttum, Kanebo, Lancome
og Mac eru öll merki sem eru í
snyrtibuddunni minni og svo gæti
ég ekki verið án ilmvatnsins míns
sem heitir Femme frá Hugo Boss.
Ég er frá Sauðárkróki og elska að
komast heim, enda er fjölskyldan
mín þar og samfélagið sem ég ólst
upp í.
Ég er sveitastelpa í mér og þykir
fátt skemmtilegra en að fara á
hestbak með pabba eða vera úti á
túni fram í sveit. Ég hef farið mun
oftar til útlanda í þeim tilgangi að
keppa heldur en að skemmta mér
en það eru ákveðin forréttindi því
í keppnisferðalögum fer maður
til landa sem maður myndi jafnan
ekki heimsækja.
afþreying fjölskyldudagur Í gróttu
Vitaskoðun, sjósund,
vöfflukaffi og fjöruferð
s jósundskeppni, vitasmiðja, rannsóknarsetur sjávardýra, lifandi tónlist, vöfflukaffi, vitaskoðun og fleira verður í boði á árlegum Fjölskyldudegi í Gróttu á Seltjarnarnesi á morgun, laugardaginn
13. apríl. Gróttudagurinn hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár en í
fyrra var metaðsókn í eyjuna.
Opið verður fyrir fótgangandi út í Gróttu frá kl. 12.10 til 16.10. Björg-
unarsveitin Ársæll verður á staðnum til að ferja þá sem ekki treysta sér
til að ganga yfir eiðið.
Dagskráin hefst kl. 13 með smiðju í Fræðasetrinu, sem listamaður-
inn Ásdís Kalman stýrir og ber yfirskriftina Gerðu þinn eigin Gróttu-
vita. Frá kl. 13-15 verður í Fræðasetrinu varpað ljósi á fyrsta vitavörð
Gróttu, Þorvarð Einarsson, en 150 ár eru liðin frá fæðingu hans.
Léttir og lifandi djasstónar munu taka á móti Gróttugestum þegar
þeir ganga út í eyju. Vert er að benda fjölskyldufólki á að tilvalið er að
skella sér í fjöruferð við þetta tilefni og gott er að huga að réttum skó-
fatnaði. Þá verður Sóroptimistaklúbbur Seltirninga með vöfflukaffi en
ágóði þess rennur til góðgerðarmála. Allir eru velkomnir.
Öll fjölskyldan getur skemmt sér saman úti í Gróttu á laugardaginn. Ekki er vitlaust
að börnin séu búin fyrir fjöruferð.
Helga Einarsdóttir segist ekki vera
merkjafrík en þegar kemur að íþróttaföt-
um kaupir hún þó bara Nike. Ljósmynd/Hari
64 dægurmál Helgin 12.–14. apríl 2013