Fréttatíminn - 12.04.2013, Side 66
Herborg Pálsdóttir, ljósmóðir á Selfossi,
byrjaði að rækta býflugur í garð-
inum heima hjá sér fyrir
tveimur árum eftir að hafa
gælt við hugmyndina um
árabil. Hún segir fólk hafa
ríka tilhneigingu til þess að rugla
saman býflugum og geitungum,
sem sé miður, þar sem býflug-
urnar séu hin bestu skinn auk
þess sem þær gefa auðvitað af sér
ljúffengt hunang.
„Þetta gekk ágætlega fyrsta sumarið og ég
fékk dálítið hunang,“ segir Herborg sem er nú
með þrjú bú í gangi þar sem henni hefur gengið
vel að fjölga flugunum. „Það er líf í
öllum þremur núna. Ég stend bara
hérna við eldhúsgluggann og
sé að þær eru að viðra sig.“
Herborg segir flugurnar
gefa það vel af sér af hunangi að hún
eigi nóg fyrir sig og sína og eigi
afganga sem hún notar í gjafir auk
þess sem nágrannarnir fá að njóta
góðs af skilningnum sem þeir hafa sýnt
þessu áhugamáli hennar.
„Ég kynnti þetta nú fyrir nágrönnunum
fyrirfram og talaði við fólk í næstu húsum og
fólk tók þessari hugmynd vel. Enginn hefur
kvartað og þau hvöttu mig nú bara áfram.“
Herborg segir hunangið sem hún sækir á
haustin vera óskaplega gott en galdurinn sé
að hræra það vel, alveg í uppundir tvær vikur,
þangað til fínir kristallar myndist. Þá helst það
mjúkt í krukkunum.
„Margir halda að þær séu árásargjarnar
og þetta sé eitthvað álíka og að fá geitunga í
grennd við sig en það er alls ekki svo. Þær eiga
bara ekkert erindi við okkur þannig séð. Þær
eiga bara erindi í blómin þar sem þær eru mjög
einbeittar. Maður verður svo var við þennan
misskilning og það er svosem ekkert skrýtið
við það,“ segir býflugnabóndinn á Selfossi sem
vill endilega árétta að býflugur séu hin mestu
meinleysisgrey. -þþ
Herborg fær góðan slatta af úrvals hun-
angi undan flugunum sínum á haustin.
Herborg Pálsdóttir ræktar býflugur í garðinum
Skilningsríkir nágrannar fá hunang að gjöf
Felix Bergsson og Reynir Þór fá Selmu Björnsdóttur og Gísla
Martein Baldursson sem gesti í fyrsta þættinum af Alla leið í Sjón-
varpinu á laugardagskvöld.
„Felix er frábær alhliða fjölmiðlamaður og einkar viðkunnalegur sem
slíkur,“ segir Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri Sjónvarpsins um
þættina Alla leið sem hefja göngu sína um helgina í stjórn Felix Bergsson-
ar og Reynis Þórs Eggertssonar. Í þáttunum eru lögin í Eurovision kynnt og
stjórnendur og gestir þeirra leggja mat sitt á hvernig þeim muni vegna.
„Ekki nóg með það heldur er hann líka margreyndur tónlistarmaður
og veit því hvað hann syngur. Þar að auki hefur hann löngum haft áhuga
Eurovision og evrópskri menningu og hafsjór að fróðleik á því sviðinu,“
segir Skarphéðinn auk þess um Felix sem mun lýsa Eurovision beint frá
Svíþjóð í næsta mánuði.
Hvernig líst þér á íslenska lagið í keppninni?
„Hvað möguleika lagsins varðar þá tel ég þá vera talsverða og er
bjartsýnn á að áhrifamáttur af kröftugum flutningi Eyþórs Inga og þeirri
staðreynd að það verði flutt á íslensku mun fleyta því áfram,“ segir
Skarphéðinn.
Fyrsti þáttur Alla leið er á dagskrá á laugardagskvöldið klukkan 19.40.
Gestir þáttarins eru Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi og Selma
Björnsdóttir leikkona.
Í öðrum þætti verða gestir þau Þórunn Erna Clausen leikkona og Friðrik
Ómar Hjörleifsson. Þar á eftir eru það hjónakornin og Eurovisiongeggjar-
arnir Logi Bergmann Eiðsson og Svanhildur Hólm Valsdóttir. Í fjórða þætti
eru Fannar Sveinsson úr Hraðfréttum og Þórunn Antonía Magnúsdóttir
gestir. Í síðasta þáttinn mætir svo sjálfur Páll Óskar Hjálmtýsson ásamt
Guðrúnu Gunnarsdóttur.
Góðir gestir hjá Felix og Reyni Þór
aPP Vina- og stefnumótaforrit fyrir Homma
Hommar í grennd
Appið Grindr er ætlað samkynhneigðum körlum sem gerir þeim kleift að komast í kynni hver
við annan á skjótan og þægilegan hátt. Notendur forritsins eru yfir sex milljónir í 192 löndum.
Fjöldi íslenskra homma notar appið en ekki liggja fyrir tölur um fjölda þeirra.
í stuttu máli virkar appið Grindr þannig að sam-kynhengiðir karlar, tvíkynhneigðir og forvitnir karlmenn skrá sig inn og setja mynd af sér
og eins miklar upplýsingar og þeir kjósa. Stað-
setningarbúnaður er innbyggður í forritið og sýnir
það notendum aðra homma sem eru í yfir hundrað
kílómetra fjarlægð.
Alfreð Hauksson, formaður Íþróttafélagsins
Styrmis, sem að mestu er skipað hinsegin fólki, er
einn þeirra sem er skráður á Grindr. „Þetta er virki-
lega einfalt í notkun. Ég er búinn að vera skráður í
eitt eða tvö ár og finnst þetta góð leið til að kynnast
fólki,“ segir hann. Alfreð notar appið meðal annars
til að spjalla við vini sína, enda er það ókeypis. Þá
þykir honum kostur að geta á ferðalögum erlendis
komist í kynni við aðra homma og jafnvel kíkt með
þeim á barinn. „Ég fæ stundum skilaboð frá erlend-
um ferðamönnum hér, síðast í gærkvöldi. Við ætlum
kannski að kíkja saman út á helgina,“ segir hann.
Aðrir notendur á Grindr sjá að Alfreð er ein-
hleypur. Hann segist aldrei hafa hafið samband með
neinum sem hann kynnist þar, og bætir við glettinn:
„Stundum sendi ég skilaboð til manna sem mér líst
vel á og spyr hvað þeir ætli að gera í kvöld eða eitt-
hvað álíka.“
Nokkur hluti notenda nýtir appið síðan helst
í leit að kynlífi. „Sumir vinda sér bara beint í að
spyrja um kynlíf og sumir eru ekkert feimnir við
það,“ segir Alfreð. Hann telur það algengara meðal
útlendinga þar sem samkynhneigða samfélagið á Ís-
landi sé það lítið að fljótt myndi spyrjast út ef menn
væru í sífelldri kynlífsleit.
Þegar farið er inn í appið birtast nokkrar myndir
af körlum á skjánum. Lítist notendum ekki á þá,
ýta þeir einfaldlega á hnappinn „Niðurhala fleiri
körlum“ og þá birtast myndir af öðrum frískum
notendum á skjánum. Sjái menn einhvern álitlegan
geta þeir sent honum skilaboð. Aðeins birtast mynd-
ir af öðrum notendum sem staddir eru í grenndinni.
Komist upp um ósæmilega hegðun notenda er hægt
að loka á samskipti við þá. Fái notendur skilaboð frá
einstaklingum sem þeir vilja ekki vera í samskipt-
um við er einfaldlega hægt að sleppa því að svara
eða hreinlega lokað fyrir samskipti.
„Ég hef eignast vini í gegn um þetta. Það er hægt
að stjörnumerkja menn sem maður hefur talað við
og þá getur maður áfram talað við þá þó þeir séu
ekki innan þessa venjulega radíuss,“ segir Alfreð
sem mælir hiklaust með appinu fyrir samkyn-
hneigða og tvíkynhneigða karlmenn.
Grindr kom fyrst á markað 2011 og á síðasta ári
fékk forritið tvær og hálfa milljón nýrra notenda.
Árið 2011 kom á markað samsvarandi forrit fyrir
gagnkynhneigða sem kallast Blendr, fundið upp af
eigendum Grindr.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Alfreð Hauksson hefur notað Grindr í á annað ár og er einhleypur. Ennþá... Mynd úr einkasafni
Samkynhneigðir karlar nota snjallsímaforritið Grindr til að
leita uppi álitlega karlmenn. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty
66 dægurmál Helgin 12.–14. apríl 2013
Kitlaðu bragðlaukana með þriggja rétta matseðli
og eigðu kósýkvöld að hætti Nauthóls.
KÓSÝ Á KVÖLDIN
www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is S. 599 6660
FYRSTA
SVANSVOTTAÐA
VEITINGAHÚSIÐ
Á ÍSLANDI