Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.04.2013, Page 70

Fréttatíminn - 12.04.2013, Page 70
2 viðhald húsa Helgin 12.–14. apríl 2013 H úseigendafélagið er 90 ára á þessu ári. Félagsmenn eru um 10 þúsund, þar af 800 hús- félög. Starfsemi félagsins byggist á því að gæta hagsmuna fasteigna- eigenda, stunda fræðslustarfsemi og upplýsingamiðlun, auk ráðgjafar og þjónustu við félagsmenn. Lögfræðiþjónusta félagsins er þungamiðjan í starfsemi þess. Þjón- ustuna veita sérfræðingar í öllu því sem snýr að lögum og reglum um fasteignir, fjöleignarhús, húsaleigu, fasteignarkaup og grenndarrétt. Fé- lagið veitir meðal annars ráðgjöf um húsaleigusamninga og tekur að sér að kanna feril og skilvísri væntanlegra leigjenda. Verði vanefndir á leigu- samningi veitir lögfræðingur félags- mönnum aðstoð. Veitir húsfélögum ráðgjöf og aðstoð Það færist í vöxt að húsfélög leiti til félagsins um ráðgjöf og aðstoð. Félagið býður meðal annars Hús- fundaþjónustu sem felur í sér að veitt er aðstoð og ráðgjöf við undirbúning húsfunda, dagskrá þeirra, tillögur og fundarboð. Útvegaður er fundar- stjóri sem er lögmaður og tryggt er að fundargerð sé rituð í samræmi við lög. Þetta skiptir oft miklu máli þar sem á húsfundum eru gjarnan teknar ákvarðanir sem varða mikla fjárhags- lega hagsmuni og miklar skuldbind- ingar. Húsfundaþjónustan á að tryggja að fundir séu lögmætir og ákvarðanir rétt teknar en ef misbrestur verður á slíku getur það haft afdrifaríkar og kostnaðarsamar afleiðingar. Aðeins fyrir félagsmenn Húseigendafélagið veitir ekki öðrum en félagsmönnum þjónustu sína. Það stendur undir sér fjárhagslega og rekið með félagsgjöldum. Árgjald er 5.000 krónur fyrir einstaklinga en 3.000 krónur fyrir hvern eignarhluta í húsfélagi. Til að geta nýtt sér húsfundaþjón- ustu félagsins þarf húsfélag annað hvort að vera í Húseigendafélaginu eða þá að tillaga um félagsaðild sé á dagskrá viðkomandi húsfundar. Hús eru forgengileg og ganga úr sér óháð efnahagsástandi og fjárhag eigenda á hverjum tíma. Ef hús fá ekki það viðhald sem þarf og nauðsynlegar endur- bætur í takt þá nagar tímans tönn þau miskunnarlaust og verðmæti þeirra og notagildi rýrnar. Það kemur eigendum í koll ef þeir sinna ekki brýnu viðhaldi.  Húsfundaþjónusta tryggir að ákvarðanir séu lögum samkvæmt Húseigendafélagið veitir félags- mönnumm fjölbreytta þjónustu ViðhAld Stöðugt og reglubundið viðhald er bæði skynsam- legt og nauðsynlegt til að viðhalda og auka verðmæti fasteigna. Það borgar sig og er eigendum til mikilla hagsbóta að halda eignum sínum vel við og endurbæta þær í takt við tímann og nýjar og breyttar þarfir og kröfur. Viðhaldsfé skilar sér oftast margfalt til baka Félagið býður meðal annars hús- fundaþjónustu sem felur í sér að veitt er aðstoð og ráðgjöf við undirbúning húsfunda, dagskrá þeirra, tillögur og fundarboð. Útveg- aður er fundarstjóri sem er lögmaður og tryggt er að fundargerð sé rituð í samræmi við lög. Sigurður helgi Guðjónsson formaður Húseigendafélagsins. Ljósmynd/Hari Láttu hjartað ráða Magnaða moppuskaftið Dagar skúringafötunnar eru taldir Alltaf tilbúið til notkunar Gólfin þorna á augabragði Fljótlegt og þægilegt Húsasmiðjan - Pottar og prik Akureyri - Fjarðarkaup - Áfangar Keflavík - Eyjatölvur Miðstöðin Vestmannaeyjum - Skipavík Stykkishólmi - SR byggingavörur Siglufirði Rafsjá Sauðárkróki - Nesbakki Neskaupsstað - Vélaleiga Húsavíkur - Óskaþrif Hólmavík SÖLUAÐILAR: Ræstivörur ehf - Sími 567 4142 - www.raestivorur.is facebook.com/frettatiminn Vertu vinur okkar á og þú getur átt von á glaðningi.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.