Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.04.2013, Page 72

Fréttatíminn - 12.04.2013, Page 72
4 viðhald húsa Helgin 12.–14. apríl 2013 Aðalskrifstofa - Borgarbraut 74 - 310 Borgarnes Söluskrifstofa - Vesturvör 29 - 200 Kópavogur Netfang - sala@limtrevirnet.is Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350 limtrevirnet.is Bjóðum vætuna velkomna Hjá Límtré Vírnet færðu hinar traustu og fallegu Lindab þakrennur. S-898-9819 www.rafax.is Rafax R a f v e r k t a k ir a f v e r k t a k i SANYL ÞAKRENNUR • RYÐGA EKKI • PASSA Í GÖMLU RENNUJÁRNIN • STANDAST ÍSLENSKT VEÐURFAR • AUÐVELDAR Í UPPSETNINGU • ÓDÝR OG GÓÐUR KOSTUR Ævintýrakonan Elín Þorgeirsdóttir ætlar að endurbyggja húsið að Hverfisgötu 41a í Hafnarfirði með eiginmanni sínum. Ljósmynd/Hari  Fasteignir – keyptu ónýtt hús í haFnarFirði Óttast ekki veggjatítlur Elín Þorgeirsdóttir og Borgar Þorsteins- son, eiginmaður hennar, ætla að endurbyggja húsið að Hverfisgötu 41a í Hafnarfirði en allt tréverk þess var rifið árið 2009 vegna veggjatítlu. Margir smiðir eru í ætt- inni svo verkið ætti að ganga vel. Þau hjónin óttast ekki að veggjatítlur setjist aftur að í húsinu.  Viðhald húseigna er þjóðþrifamál þar sem hagsmunir allra fara saman. Viðhald er nauðsynlegt til að verðmæti fasteigna haldist og aukist. Það er eigendum til hagsbóta og líka veðhöfum og tryggingarfélögum.  Viðhald skapar vinnu, tækifæri og verðmæti. Á viðhaldsviðinu getur vel orðið mikil athafnasemi öllum til hags og heilla; húseigendum, viðhaldsgeiranum, iðnaðarmönn- um, verktökum og samfélaginu öllu..  Í þenslunni var þrautin þyngri að fá verktaka í viðhaldsverk. Grasið þótti grænna í nýbyggingum og viðhald húsa sat á hakanum. Nú er öldin önnur. Húseigendur geta frekar valið úr verktökum og náð góðum samningum.  Stjórnvöld hafa gert ráðstafanir til hvetja til viðhalds og að örva við- haldsgeirann með endurgreiðslu virðisaukaskatts (100% af vinnu á byggingarstað). Að því leyti árar vel til viðhalds. Þ að er auðvitað brjálæði að kaupa hús sem er ónýtt, með engu þaki, engum gólf- um og ekki neinu,“ segir Elín Þor- geirsdóttir en hún og eiginmaður hennar, Borgar Þorsteinsson, festu nýverið kaup á Hverfisgötu 41a í Hafnarfirði en allt tréverk hússins var rifið árið 2009 vegna veggjatítlu. Eftir standa aðeins steyptir útveggir. Elín segir þau hjónin ekki ótt- ast að veggjatítla setjist aftur að í húsinu. „Við erum ekkert hrædd um það því aldrei hefur fundist veggjatítla í húsinu við hliðina sem er sambyggt. Það er engin veggjatítla í steypunni og svo er búið að frjósa oft.“ Elín og Borgar höfðu haft augastað á húsinu og ákváðu svo að láta slag standa og kaupa það þar sem þau töldu kaupin hagkvæm. „Við vissum að við gætum gert þetta hús í okkar anda, alveg frá grunni og ráðum þá hvernig við höfum hlutina,“ sagði Elín. Borgar, eiginmaður Elínar, er smiður sem og sonur hennar, tengdapabbi og margir í ættinni svo heimatökin ættu að vera hæg. Sjálf titlar Elín sig sem listrænan stjórnanda verksins enn sem komið er en á þó von á að verða liðtæk í smíðunum þegar á líður. Hjónin Elín og Borgar eru mikið ævintýrafólk og ekki hrædd við að takast á við áskoranir en undanfarin ár hafa þau rekið tvö ferðaþjónustufyrirtæki, Afríku ævintýraferðir og gistiheimilið Glacier View Guesthouse í Hrífu- nesi, Skaftártungu. Bíða eftir leyfum Endurgerð Hverfisgötu 41a er búin að fara í gegnum deiliskipulag en er nú í áframhaldandi ferli hjá Hafnarfjarðarbæ svo smíðarnar eru ekki hafnar. „Um leið og það kemur leyfi frá bænum förum við af stað á fleygiferð,“ segir Elín og bætir við að núna séu þau að selja hús sitt í næstu götu, Austur- götu. „Þegar það selst tjöldum við kannski bara í botninum á Hverfisgötu 41a og horfum upp til stjarnanna á himninum,“ sagði Elín í léttum dúr. Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@ frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.