Fréttatíminn - 12.04.2013, Qupperneq 75
Helgin 12.–14. apríl 2013 viðhald húsa 7
Meistarar í Samtökum iðnaðarins eru með Ábyrgðasjóð
sem tryggir þér vel unnið verk.
Hver ábyrgist þinn meistara?
Það er trygging fyrir gæðum og réttum vinnubrögðum að skipta við meistara og fagmenn sem hafa tilskilin
réttindi. Innan raða Samtaka iðnaðarins er starfandi Meistaradeild sem hefur á að skipa löggiltum fagmönnum
til hvers kyns framkvæmda.
Kynntu þér málið á www.si.is
ert þú með skriflegan samning og tryggingu um fagleg vinnubrögð frá þínum meistara?
Félag blikksmiðjueigenda
www.blikksmidjur.is
Félag skrúðgarðyrkjumeistara
www.meistari.is
málarameistarafélagið
www.malarar.is
meistarafélag byggingarmanna á norðurlandi
www.mbn.is
Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara
www.dukur.is
meistarafélag suðurlands
www.mfs.is
meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði
www.si.is/mih
meistarafélag húsasmiða
www.mfh.is
sart - samtök rafverktaka
www.sart.is
múrarameistarafélag reykjavíkur
www.murarameistarar.is
áður en hafist er handa.“
Hægt að sækja um styrki til að
gera upp eldri hús, til dæmis hjá
húsverndarsjóði Reykjavíkurborgar
og öðrum sambærilegum sjóðum
um land allt, en til þess að þeir séu
greiddir út er mikilvægt að farið sé
rétt að. Dæmi er um að styrkir hafi
ekki verið greiddir út ef viðgerð er
illa gerð og þar að leiðandi of kostn-
aðarsöm.
Magnús og Gunnþóra brýna fyrir
fólki að fara rétt að þegar ráðast á í
framkvæmdir á eldri húsum. „Þeg-
ar gert er við hús þarf að taka til-
lit til húsagerðar og sögu hússins.
Hver byggingarstíll lýtur ákveðn-
um lögmálum og þá þarf að gera við
hús á þeirra eigin forsendum.“ Þau
segja mikilvægt að halda húsum við
af fagmennsku ásamt því að leyfa
upphaflegum stíl þeirra að njóta
sín. „Reglulegt viðhald er besta og
ódýrasta aðferðin til að varðveita
hús. Ef rétt er farið að, er hægt að
auka verðgildi húsanna án þess að
sérkenni þeirra hverfi.“ Þau segj-
ast finna fyrir auknum áhuga al-
mennings á því að gera upp eldri
hús í stað þess að byggja ný. „Fólk
virðist vera að átta sig á því að ný
hús eru ekki endilega best. Það er
mjög ánægjulegt,“ segja Magnús og
Gunnþóra.
Húsverndarstofa hefur aðsetur
í Árbæjarsafni og er rekin í sam-
vinnu Húsfriðunarnefndar, Minja-
safns Reykjavíkur og Iðunnar
fræðsluseturs. Hún er opin alla
miðvikudaga frá klukkan 16 til 18.
Hægt er að líta við án þess að panta
tíma, eða hringt í síma 4116333 til
þess að fá ráðleggingar. -ss
Sérkostnaður.
Sameiginlegur kostnaður
Eigandi skal sjá um og kosta allt
viðhald og allan rekstur á séreign
sinni, þ.m.t. á búnaði, tækjum og
lögnum hennar. Telst slíkur kostn-
aður, hverju nafni sem nefnist, sér-
kostnaður. Sameiginlegur kostn-
aður er kostnaður sem snertir
sameign, sameiginlega lóð, búnað
og lagnir, svo og vatns-, hita- og
rafmagnskostnaður. Sameiginlegur
kostnaður er fólginn i viðhaldi, við-
gerðum, endurbótum, endurnýjun-
um, umhirðu og rekstri á sameign,
úti og inni..
Löglíkur að kostnaður
sé sameiginlegur.
Það eru löglíkur á því að kostnaður
í fjöleignarhúsi sér sameiginlegur
en ekki sérkostnaður. Sömuleiðis
eru líkur á því að kostnaður sam-
eiginlegur öllum fremur en sumum.
Gildir hér líka að þurfi menn að
klóra sér í hausnum þá bregst það
varla að um sameiginlegan kostnað
allra sé að tefla.
Hlutfallsskipting er meginregla
Það er meginregla að sameigin-
legur kostnaður skiptist eftir hlut-
fallstölum. Jöfn kostnaðarskipting
í ákveðnum tilvikum felur í sér und-
antekningu frá þeirri meginreglu.
Ber að skýra meginregluna rúmt en
undatekningarregluna þröngt. Eru
alltaf yfirgnæfandi löglíkur fyrir því
að tilvik beri að fella undir megin-
regluna en ekki undantekninguna.
Jöfn skipting er undantekning.
Þessi kostnaður skiptist að jöfnu:
1. Óskipt bílastæði og aðkeyrslur.
2. Sameiginlegt þvottahús.
3. Lyftur. Viðhald og rekstur.
4. Dyrasími, sjónvarps- og útvarpskerfi,
póstkassar, nafnskilti og fleira þess
háttar (jöfn afnot).
5. Rekstur og umhirða sameignar og lóðar.
6. Hússtjórn og endurskoðun.
7. Afnotagjöld og félagagjöld.
Kostnaður
Kostnaður við viðhald og framkvæmdir
Þröng túlkun
Það ber að túlka þessar undan-
tekningar þröngt og ef vafi er um
það hvorum megin hryggjar tilvik
á heima þá ber að heimfæra það
undir meginregluna um hlutfalls-
skiptingu en ekki undantekningar-
regluna. Jöfn kostnaðarskipting
byggist á sanngirnissjónarmiðum.
Það er hins vegar illmögulegt að
komast hjá því að kostnaðarskipt-
ingarreglur virðist stundum órétt-
látar og ósanngjarnar. Reglurnar
byggja á því að skiptingin sé sann-
gjörn í fleiri tilvikum en hún er það
ekki. Þessar reglur eru að mestu
ófrávíkjanlegar þegar um íbúðar-
húsnæði og blandað húsnæði er að
tefla. Enginn þarf gegn vilja sinum
að una því að sameiginlegum kostn-
aði sé skipt á annan veg en lögin
segja. -shg
Þegar ráðist er í fram-
kvæmdir er rétt að
menn séu rétt búnir.