Fréttatíminn - 12.04.2013, Blaðsíða 78
10 viðhald húsa Helgin 12.–14. apríl 2013
H eimilið er í flestum tilfellum ein stærsta fjárfestingin í lífi okkar. Við verjum aleigunni í þessa fjárfestingu
og það tekur flest okkar lífaldur að borga af
lánum. Þegar við eignumst heimili ræður þar
ferðinni, fremur staðsetning og litur á kló-
settskál heldur en eiginlegt ástand húsnæð-
isins. Já, og ef til vill hvort og hversu mikið
kosti að gera heimilið fallegt að innan með
því að skipta um baðinnréttingu eða eldavél.
Þegar við kaupum okkur bíl fáum við aðila
til þess að skoða hann og segja okkur hvort
að við þurfum að skipta um bremsur á næstu
kílómetrum eða hversu miklu eldsneyti
bíllinn eyðir. Hann fer í skoðun á hverju ári,
regluleg olíuskipti og við gerum ráð fyrir að
þurfa að viðhalda bílnum.
Hús og heilsa
Á síðustu árum hefur verið sýnt fram á, að
með góðu viðhaldi og umhirðu um fasteign-
ina okkar, erum við ekki eingöngu að við-
halda verðmætum, heldur erum við einnig
að leitast við að tryggja betri heilsu heimilis-
fólks. Þegar húsnæði er ekki haldið við má
búast við að eitthvað fari úrskeiðis, leki komi
upp, timbur fúni, steypa molni
niður. Nú er vitað, að þar sem
lekur eða rakaþétting á sér stað
má búast við að finna til dæmis
myglu, þó að hún sé eingöngu
sýnileg í fimmtungi tilfella.
Engin einföld notkun á efnum,
þokun eða skyndilausnir duga
til þess að ná árangri með til-
liti til heilsu, til þess þurfum
viðað fjarlægja mygluna og í
flestum tilfellum rakaskemmd
og mygluð byggingarefni. Þurr
gömul mygla hefur ekki síður
heilsufarsleg áhrif.
Kostnaður samfélagsins
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
hefur gefið út skýrslu um gæði
innilofts. Áhrif raka og myglu á
þau gæði og einnig áhrif þeirra efna sem við
notum í húsbúnað, uppbyggingu og innrétt-
ingar. Þessir hlutir geta haft neikvæð áhrif
á inniloftið hjá okkur þannig að okkur líði
ekki vel, lífsgæði skerðast til muna og jafnvel
hverfur fólk af vinnumarkaði vegna slapp-
leika og sjúkdóma. Í Finnlandi
er álitið að 20% af fólki verði
fyrir heilsuspillandi áhrifum
vegna raka og myglu í húsum.
Kostnaður finnska sam-
félagsins er tæpir 5 milljarðar
umreiknað miðað við Ísland
á hverju ári vegna þessara
vandamála. Það er því eftir
miklu að slægjast með því að
fara í forvarnir í þessum málum.
Bæði heilsufars- og hagfræði-
lega, bæði fyrir einstaklinga og
samfélagið.
Forvarnir
Forvarnir felast í því að lög-
gjafarvald, hönnuðir, fram-
kvæmdaraðilar, tæknimenn
og heilbrigðisstarfsfólk taki
höndum saman og átti sig á því hversu inni-
loft er okkur mikilvægt til þess að viðhalda
lífsgæðum. Síðast en ekki síst er hægt að
upplýsa um mikilvægi þess að opna glugga,
halda niðri loftrakastigi, velja hentug bygg-
ingarefni og önnur efni á heimilum okkar og
síðast en ekki síst um mikilvægi þess að við-
halda fasteign okkar þannig að hún leki ekki
og haldist eðlilega þurr.
Hlutverk húsa
Þegar hús eru hönnuð, byggð og endurbætt
þarf að taka tillit til hlutverks hússins sem
er og ætti fyrst og fremst að miðast við að
hýsa fólk og veita því skjól, athvarf. Þegar við
kaupum notaða fasteign er mikilvægt að fá
upplýsingar um sögu hússins, viðhald þess
og láta ástandsskoða, til þess að við getum
gert okkur grein fyrir umfangi viðhalds
næstu árin að einhverju marki. Loftsýna-
tökur og skyndimyglupróf gefa því miður
ekki raunsanna mynd af ástandi með tilliti til
myglu en geta þó gefið ákveðnar vísbending-
ar ef skoðun er fylgt samviskusamlega eftir
af fagfólki með rakamæla.
Viðhald
Að viðhalda fasteignum okkar hefur ótvírætt
forvarnargildi fyrir heilsu okkar og hagsæld.
Leggja verður ríkari áherslu á þennan þátt
hér á landi með aukinni samvinnu fagaðila og
eigenda fasteigna.
TEPPI Á STIGAGANGINN
HLJÓÐEINGRANDI
AUÐVELD Í ÞRIFUM
OFNÆMISPRÓFUÐ
SLITSTERK
Parket og gólf I Ármúla 32 I Sími 568 1888 I www.parketoggolf.is
Myglusveppur ÁHrif raka og Myglu Á gæði innilofts
Viðhald getur tryggt betri heilsu
Myglusveppur eftir rakaskemmd í parketi.
Almennt er ekki gerð krafa um lágmarksfundarsókn á húsfundum. Meginreglan
er að einfaldur meirihluti á fundi ráði lyktum mála. Það heyrir til undantekninga
að krafist sé aukins meirihluta eða samþykkis allra. Það gildir aðeins um mikilvæg
grundvallaratriði. Minnihlutinn getur ekki sett sig á móti venjulegum framkvæmdum
jafnvel þótt þær séu mjög kostnaðarsamar.
Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir,
líffræðingur og ráðgjafi hjá
Húsi og heilsu og Kristmann
Magnússon byggingar-
tæknifræðingur hjá Mann-
vist og mannvirki.
Myglusveppur sem myndast hefur eftir leka í lofti. Myglusveppur sem myndast hefur vegna lekra gluggakarma.
Þegar menn kaupa eign í fjöleignarhúsi gangast þeir
undir skyldu til þátttöku í húsfélagi. Í fjöleignarhúsum er
viðhald sígilt viðfangsefni sem aldrei lýkur endanlega,
eitt tekur við af öðru. Eigendur mega alltaf búast
við því að húsfundur taki ákvarðanir um
viðhald sem hefur útlát í för með sér
fyrir þá. Húsfundur verður að vera
löglega boðaður og haldinn eftir
forskrift laganna. Klúður getur
eyðilagt fund og ákvarðanir hans
með afdrifaríkum afleiðingum.
Húseigendafélagið býður upp á
lögfræðilega rágjöf og aðstoð
við húsfundi sem tryggir
lögmæta fundi og rétt
teknar ákvarð-
anir.