Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.04.2013, Page 79

Fréttatíminn - 12.04.2013, Page 79
Helgin 12.–14. apríl 2013 viðhald húsa 11 Glerverksmiðjan Samverk ehf Eyjasandi 2, 850 Hella Víkurhvar 6, 203 Kópavogi sími: 488 - 9000 www.samverk.is samverk@samverk.is Söluskrifstofa og fagleg ráðgjöf Víkurhvar 6, 230 Kópavogi  Í fjöleignar- húsum með sjö eignarhlutum eða fleiri skal vera stjórn, kjörin á aðalfundi. Í minni húsum halda eigendur saman um stjórnartauma og má fela einum þeirra forsvar. Að jafnaði er aðalstjórn skipuð þremur mönnum og er einn þeirra formaður. Brýnt er að eigendur kunni góð skil á reglum um hús- félög og stjórnir þeirra. Vitneskja um rétt og skyldur er forsenda fyrir farsælu starfi og friði.  Sú skylda hvílir á stjórn að hún haldi eigendum upplýstum um allt sem máli getur skipt um fjármál og rekstur hús- félagsins og starfsemi þess. Er henni skylt að veita eigendum upp- lýsingar og skýringar um öll atriði er varða sameiginlegt viðhald, efnahag og fjárhags- stöðu. Starfsemi húsfélags á að vera gegnsæ og þar eiga engin leyndarmál eða pukur að viðgangast. Er stjórn skylt að láta eigendum í té ljósrit fundargerða, bæði hús- funda og stjórnarfunda og eigendur eiga rétt til að skoða bækur félagsins, skjöl, reikninga og bókhaldgögn.  Stjórn húsfélags fer með sameiginleg málefni milli funda. Stjórn getur tekið ákvarðanir sem lúta að venjulegum daglegum rekstri og hagsmunagæslu. Hún má láta framkvæma minniháttar viðhald og viðgerðir og getur gert brýnar ráðstafanir. Sé hins vegar um að ræða ráð- stafanir og framkvæmdir sem ganga lengra ber stjórn áður að leggja þær fyrir húsfund. Á það við um allar fram- kvæmdir, sem eru verulegar hvað varðar kostnað, umfang og óþægindi. Gildir einu þótt um æskilegar og jafnvel nauðsynlegar ráðstafanir sé að ræða. Stjórnin hefur lítið sjálfstætt og endanlegt vald og félagsmenn geta skotið öllum ákvörðunum hennar til hús- fundar.  Stjórn húsfélags getur ráðið starfs- mann sér til aðstoðar og hún getur keypt aðstoð og ráðgjöf sérfræð- inga, s.s. verkfræðinga, bókara, endurskoðenda og lögmanna, sé það nauðsynlegt til að upplýsa mál og skapa frið og grundvöll fyrir upplýstum ákvörðunum. Sé kostnaður umtalsverður miðað við hagsmunina og fjárhag og stærð húsfélagsins verður stjórnin að fara fetið og fá samþykki húsfundar áður. Sem dæmi um verkefni sem stjórn getur keypt án húsfundar- samþykktar er aðstoð við fundahöld og fundastjórn en Húseigenda- félagið býður upp á slíka þjónustu.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.