Fréttatíminn - 02.11.2012, Page 3
Þ órunn Ágústsdóttir er fjög-urra barna einstæð móðir með geðhvarfasýki og áfalla-
röskun. Hún er á lyfjum sem halda
sjúkdómnum í skefjum og nær í dag
að sinna börnunum sínum og sjálfri
sér þótt svo hafi ekki alltaf verið.
Hún hefur aldrei fengið hjálp með
börnin sín frá opinberum aðilum,
hvorki við að sinna þeim né held-
ur að fræða þau um sjúkdóminn.
Mamma hennar hefur hins vegar
staðið með henni sem klettur í gegn-
um þykkt og þunnt.
Elsti sonur Þórunnar, Jón Ágúst,
er sautján ára og hefur frá unga
aldri borið mikla ábyrgð á heimilinu
og systkinum sínum. Geðhvarfa-
sýki einkennist af miklum sveiflum
í líðan og fer Þórunn úr því að vera
ofsaglöð og manísk yfir í mikið og
erfitt þunglyndi sem veldur því að
hún komst oft ekki fram úr rúmi
svo dögum skipti. „Mér fannst þetta
aldrei skrítið,“ segir Jón Ágúst.
„Þetta var bara svona og ég þekkti
ekki annað. Mamma var kannski
geðveikt skemmtileg og hyper og
til í allt og svo þremur dögum seinna
svaf hún allan daginn. Þá kom hún
kannski fram og skammaði okkur
fyrir þetta eða hitt en ég kippti mér
aldrei upp við það. Það er bara svona
að eiga mömmu með geðsjúkdóm,“
segir hann.
Jón segist hafa reynt að leyfa
mömmu sinni að vera í friði þegar
hún var í kasti og oft bara verið úti
í handbolta eða körfubolta langt
fram á kvöld. „En svo var hún al-
veg frábær inn á milli,“ segir Jón.
Þórunn segir að erfiðast hafi
verið þegar líðanin var svo slæm
að hún þurfti að taka á öllu sínu
bara til að komast fram úr til að
geta gefið börnunum að borða.
„Þá skiptir ekki máli hvernig
manni líður, maður verður bara að
gjöra svo vel,“ segir hún. Oft hafi
hún viljað sinna börnunum
betur. „Ég gerði samt eins
vel og ég gat,“ segir hún.
Þegar Þórunn var í
rúminu greip Jón inn í og
sinnti systkinum sínum. „Ég gerði
mér ekkert grein fyrir því að það
var svoleiðis. Það þurfti bara að
gera það og ég bara gerði það. Það
voru ófá skiptin sem var bara korn-
flex í matinn. Ég veit alveg að það á
ekkert að vera alltaf kornflex í mat-
inn en stundum var ekkert annað
til,“ segir Jón.
Þórunn segist vera laus við
skömmina sem fylgir því oft að
vera með geðsjúkdóm. „Ég fann
fyrir skömm áður en nú er mér orð-
ið alveg sama. Maður græðir svo-
lítið á því að vera geðveikur með öll
þessi börn, hugurinn er opnari. Ég
veit að það er til alls kyns fólk og
enginn er eins. Ég dæmi engan,“
segir hún.
Jón tekur undir þetta. „Ég finn
ekki fyrir neinum fordómum gagn-
vart fólki. Ég umgengst mikið af
fólki með geðsjúkdóma. Það er
bara fólk sem er svo óheppið að
vera með sjúkdóm,“ segir hann.
Jón lenti í miklu einelti í grunn-
skóla, meðal annars vegna geð-
veiki móður sinnar og er sannfærð-
ur að upplýsingarnar um ástand
mömmunnar hafi
börnin feng-
ið frá for-
eldrum
sínum.
„Mér
var líka strítt af því að ég var
skrítni krakkinn og af því að ég er
með skakkar tennur. Það er bara
dýrt að fara í tannréttingar og ef
ég ætlaði að gera það þyrfti ég að
borga það sjálfur. Ég geri það ekki
á næstunni,“ segir hann.
Rannsóknir sýna að börnum geð-
sjúkra vegnar betur ef foreldrar
tala opinskátt við þau um sjúkdóm-
inn. Þórunn segist aldrei hafa feng-
ið neina fræðslu um það en hún tali
við börnin sín um sjúkdóminn. „Ég
hef reyndar aldrei spáð í það. Þetta
er að minnsta kosti enginn feluleik-
ur og þau vita að það er ekki þeim
að kenna ef mér líður illa. Mér líður
illa af því að ég er veik,“ segir hún.
„Ég held þau skilji það.“
Nánar er fjallað um málefni að-
standenda geðsjúkra á síðu 26.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Heilbrigðismál lítill stuðningur við aðstandendur geðsjúkra
Jón Ágúst lifir með
geðveiki mömmu
Fjögurra barna einstæð móðir með geðsjúkdóm hefur ekki fengið neinn stuðning til að sinna
börnum sínum eða fræða þau um sjúkdóminn. Elsti sonurinn er 17 ára og hefur tekið mikla
ábyrgð á heimilinu og systkinum sínum og segir að það sé bara svona þegar maður á mömmu
með geðsjúkdóm.
Þórunn Ágústsdóttir og
Jón Ágúst Þórunnarson.
„Mamma var kannski geðveikt
skemmtileg og hyper og til
í allt og svo þremur dögum
seinna svaf hún allan dag-
inn,“ segir Jón þegar hann er
beðinn að lýsa geðhvarfasýki
móður sinnar.
Ég gerði samt eins
vel og ég gat.
Þórunn lárusdóttir var veðurteppt í new York
Listin dró hana úr sálfræðinámi
Leik- og söngkonan Þórunn Lárusdóttir komst
heim til Íslands eftir töluvert hark á fimmtu-
dagsmorgun en fellibylurinn Sandy kyrrsetti
hana, eins og marga fleiri, í New York. Hún seg-
ist dauðfegin að vera komin heim enda lá henni
mikið á þar sem hún sendi frá sér nýja plötu í
síðustu viku.
„Ég tileinkaði móður minni, Sigríði Þorvalds-
dóttur, plötuna og ákvað að skella mér óvænt
til New York til þess að færa mömmu mikil-
vægasta eintakið af plötunni,“ segir Þórunn
sem slóst í för með systur sinni Ingibjörgu, sem
er flugfreyja, og birtist óvænt heima hjá hinni
systur sinni Dísellu, sem býr í New York.
„Mamma og Dísella vissu ekkert að ég væri
að koma þannig að þetta var mikil gleði og ham-
ingja.“ En þá mætti Sandy og setti strik í reikn-
inginn. „Mér lá svo á að komast út að dagana
áður var ég á fullu að dreifa plötunni í verslanir
og fylgdist lítið með fréttum,“ segir Þórunn sem
fékk storminn óvænt í fangið í New York.
„Það var erfitt að átta sig á mætti stormsins
en Dísella býr ofarlega á Manhattan þannig
að flóðið náði ekki þangað og við héldum sem
betur fer rafmagni. Við hlýddum bara fyrirmæl-
um og héldum okkur innandyra. En maður varð
alveg skelkaður stundum og það var rosalegt að
sjá með eigin augum eyðilegginguna í Central
Park þar sem risatré rifnuðu upp með rótum.“
Plata Þórunnar heitir „Þórunn Lár og félagar“
og hún stofnaði sérstakt fyrirtæki utan um út-
gáfuna og sinnir öllum þáttum hennar sjálf.
„Það er eins gott að ég komst heim. Það er brjál-
að að gera og ég er að syngja við opnun Búðar-
innar og Gamms á laugardaginn. Á plötunni er
að finna sígild lög í „ljúfum útsetningum“, eins
og Þórunn orðar það, og þar eru meðal annarra
lögin Ágústkvöld og Vegir liggja til allra átta.
„Það hafa verið miklar breytingar í lífi mínu
undanfarin ár. Ég ákvað að gefa leikhúsinu frí,
venti kvæði mínu í kross og skellti mér í sál-
fræðinám. Frábært nám sem hristi aðeins upp í
heilanum og veitti mér innblástur en ég fann um
leið hversu mikla þörf ég hef fyrir listsköpun og
ákvað að hætta. Þá hellti ég mér í plötuna sem
er fyrsta skrefið og síðan ætla ég að halda áfram
að sinna listsköpunarþörfinni með ýmsum
hætti.“ -þþ
Þórunn Lárusdóttir rauk til New
York og prísar sig sæla að vera komin
aftur heim. MYND/Ester Magnúsdóttir
Minni framlegð af
rafmagni
Færri starfsmenn eru á bak við hverja
kílóvattsstund af rafmagni sem framleidd
er hér á landi en í Noregi, að því er fram
kemur í nýrri skýrslu McKinsey&Company
um íslenskt efnahagslíf. Framlegðin af
hverri kílóvattsstund er hins vegar minni
hér en í Noregi sem bendir til þess að
þörf sé á að endurskoða nýsköpun og
þróun í notkun þessarar auðlindar. Í
skýrslunni segir jafnframt að skortur sé
á samspili raforkuiðnaðarins við aðra
markaði. -sda
Engin jólalokun á Laugavegi
Hópur íbúa í Reykjavík hefur lagt fram
tillögu til borgarinnar um að hluti
Laugavegar og Bankastrætis verði
gerðar að göngugötum í desember,
ýmist á laugardögum eða alla daga.
„Það er ekki á dagskrá að gera neitt
slíkt í desember,“ segir Jakob Frímann
Magnússon framkvæmdastjóri Mið-
borgarinnar okkar. „Þetta var reynt í
fyrra og tókst ágætlega helgina fyrir
jól en olli fjaðrafoki á Þorláksmessu.
Við þurfum ekki á því að halda núna
þegar við viljum hamingju og frið á
öllum stöðum,“ segir Jakob. „Það var
sameiginleg niðurstaða umhverfis- og
samgöngusviðs og rekstraraðila að
vera ekki með neina tilraunastarfsemi
á þessum viðkvæma háannatíma.“
-sda
Einhleypir
ættleiða að nýju
Til skamms tíma áttu einhleypir ekki kost
á að ættleiða erlendis frá, að því er fram
kemur í tilkynningu Íslenskrar ættleiðingar,
en fyrr á þessu ári ættleiddi einhleyp kona
barn frá Tékklandi og önnur kona ættleiddi
barn frá Tógó. Innan skamms mun þriðja
einhleypa konan ættleiða barn. Eftir að
reglur breyttust í Kína í ársbyrjun 2007 var
talið að ÍÆ gæti ekki sent umsóknir frá ein-
hleypum til nokkurs lands og var umsóknum
þeirra því raðað á svokallaðan hliðarlista.
„Við nánari skoðun á reglum upprunaríkja
og heimsókn til Kólumbíu var ákveðið leggja
hliðarlistann niður,“ segir enn fremur. „Nú
vitum við að öll löndin sem ÍÆ er í samskip-
tum við, Tógó, Tékklandi, Kína og Kólumbía,
taka við umsóknum frá einhleypum en með
mismunandi skilyrðum.“ - jh
Leiðrétting
Rangfærslur voru í texta um Guðrúnu Elísa-
betu Jónsdóttur og Valgerði Marteinsdóttur
heitna í grein um bókina Makalaust líf í
síðustu viku. Beðist er velvirðingar á þeim
mistökum.
fréttir 3 Helgin 2.-4. nóvember 2012