Fréttatíminn - 02.11.2012, Blaðsíða 6
2010
2011
15%
VELTUAUKNING
ÖRNINN ehf.
JÁKVÆÐ MERKI
ÚR ATVINNULÍFINU
Það eru jákvæð teikn á lofti í íslensku
atvinnulífi. Fjölmörg fyrirtæki eru að
ná eftirtektarverðum árangri þrátt fyrir
krefjandi aðstæður.
Arion banki fagnar þessum góða árangri.
Kynntu þér málið á arionbanki.is
G læpamyndin Borgríki, eftir Ólaf Jóhannesson, var frum-sýnd síðla árs 2011. Myndin
fékk góða dóma og Zlatko Krickic fékk
mikið lof fyrir túlkun sína á glæpa-
manninum Sergej. Snemma á þessu
ári bauðst Zlatko að leika glæpamann í
stuttmyndinni Sketch. Hann ákvað að
slá til og fór til Bandaríkjanna í tvær
vikur. Þá var hann orðinn atvinnulaus
og gerði þau afdrifaríku mistök að til-
kynna utanlandsferðina ekki til Vinnu-
málastofnunar. Þegar heim var komið
var hann því sviptur bótarétti og er
gert að vinna í ár áður en hann verður
aftur gjaldgengur sem skjólstæðingur
Vinnumálastofnunar.
„Þau segja að ég verði að vinna í
eitt ár en ég skil ekki hvernig það á að
ganga upp þegar enga vinnu er að fá,“
segir Zlatko. „Vinnumálastofnun fæst
við að útvega atvinnulausum vinnu en
hefur hingað til ekki fundið neitt fyrir
mig að gera og ég get ekki séð að mér
ætti að ganga neitt betur að finna mér
vinnu án aðstoðar stofnunarinnar.“
Zlatko stendur því uppi núna, at-
vinnulaus án bótaréttar og hefur þurft
að reiða sig á hjálp Félagsþjónustunn-
ar. „Ég er mikið með sjö ára gamlan
son minn. Reikningarnir hlaðast upp
og ég var að missa húsnæðið. Það átti
að bera mig út í næstu viku vegna
vanskila. Ég er búinn að bjarga mér
húsnæði fram í mars en veit ekki hvað
tekur við þá. Ég er búinn að kæra
ákvörðun Vinnumálastofnunar til vel-
ferðarráðuneytisins. Málið er enn í
vinnslu og ég veit ekkert hvernig það
fer en ég er svartsýnn.“
Zlatko dvaldi við tökur í Bandaríkj-
unum í tvær vikur. Hann fékk greitt
fyrir flug og uppihald en ekkert fyrir
leik sinn í myndinni. „Ég var ekkert
að sækjast eftir peningum fyrir þetta.
Mér fannst þetta spennandi tækifæri
og sá fyrir mér að ég gæti öðlast meiri
reynslu af kvikmyndaleik þarna.“
Zlatko sagði frá Bandaríkjaferðinni
í Fréttatímanum í apríl og þegar hann
fékk bréf frá Vinnumálastofnun um að
hann hefði fyrirgert bótarétti fylgdi
afrit af frétt blaðsins með. Hann fór á
Vinnumálastofnun til þess að reyna að
skýra mál sitt. „Þar hitti ég konu sem
var mjög reið og það var eins og hún
væri að skamma mig fyrir að sólunda
bótunum mínum í ferðalag sem er alls
ekki rétt. Ég notaði ekkert af mínu fé í
þetta og hagnaðist ekkert á þessu.“
Í reglum um atvinnuleysisbætur
er skýrt á kveðið um að fólk í virkri
atvinnuleit megi ekki fara af landi
brott án þess að láta stofnunina vita.
„Það voru alfarið mín mistök að til-
kynna þetta ekki en þegar ég ákvað að
fara hvarflaði ekki að mér að þetta yrði
vandamál. En væri þá ekki eðlilegt
að skerða bara bæturnar mínar sem
nemur tveimur vikum og leyfa mér
svo að halda áfram að leita að vinnu á
bótum? Þetta er mjög harkalegt. Ég
hef búið hér í fjórtán ár og alltaf unnið
fyrir mér og bjargað mér sjálfur. Ég er
ekki latur og kom hingað ekki til að
liggja í leti og lifa á bótum. En loksins
þegar enga vinnu er að fá og ég þarf
á opinberri aðstoð að halda þá er mér
hent út á guð og gaddinn.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Zlatko Krickic fór til Bandaríkjanna til þess að leika í stuttmynd. Eftir að hann kom heim sagði hann frá ferðinni í
Fréttatímanum og var sviptur atvinnuleysisbótum. Mynd/Hari.
Serbinn Zlatko Krickic vakti mikla og verðskuldaða athygli fyrir kröftugan leik í íslensku
glæpamyndinni Borgríki. Þar lék hann eftirminnilega serbneskan glæpamann sem ógnaði
íslenskum glæpahópi. Í kjölfarið bauðst honum hlutverk í stuttmyndinni Sketch í Banda-
ríkjunum. Hann sló til en ferðalagið út kostaði hann rétt til atvinnuleysisbóta. Ráðþrota
hefur Zlatko leitað til velferðarráðuneytisins í von um leiðréttingu.
Zlatko krickic Dýrkeypt tækifæri í BanDaríkjunum
Lék í stuttmynd og var sviptur bótum
Ég notaði ekkert af mínu
fé í þetta og hagnaðist
ekkert á þessu.
Læri myndlistarmannsins Ólafs Elías-
sonar eru til sölu í bændamarkaðnum
Frú Laugu í Laugalæk. Lærin eru þó
f leiri en tvö talsins því þau eru af sauðfé
sem Ólafur hefur ræktað í Arnarfirði á
Vestfjörðum í samstarfi við bónda þar.
Einnig eru á boðstólum vel hangnir
hryggir og pylsur úr lambakjöti hans,
sérlagaðar af pylsugerðarmeistaranum
hinum megin við götuna við Frú Laugu
– en kryddblandan er hugmynd Ólafs,
blanda frá Norður-Afríku og Vestfjörð-
um.
Arnar Bjarnason, eigandi Frú Laugu,
segir kjöti Ólafs afskaplega vel tekið.
„Það er ekki aðeins ættað frá Vest-
fjörðum heldur einnig látið hanga í 12
daga, sem er þrefalt lengur en almennt
tíðkast,“ segir Arnar.
Rollurnar hans Ólafs eru allar gráar.
Hann hóf ræktun á þeim í tengslum við
myndlistarverkefni sem hann vann fyrir
i8 Gallerí árið 2008 í samstarfi við Börk
Arnarson. „Þetta er smá tilraun hjá okk-
ur,“ segir Börkur. „Hér er allt fé orðið
meira og minna hvítt og fjölbreytileiki
í litbrigðum horfinn og við ákváðum að
prófa okkur með þetta spennandi spek-
trúm, gráa litinn,“ segir Börkur.
Hann vill ekki svara því hvað lista-
maðurinn ætlast fyrir með ullina en
segir að það eigi eftir að koma í ljós
hvað unnið verði úr henni.
Þeir félagar hafa eitt skýrt bissnes-
splan: „Að hafa ekkert bissnesplan. Við
ætlum að þreifa okkur áfram með þetta
og sjá hvað við getum gert með kjöt og
ull. Við ætlum að halda áfram með þetta
verkefni og gera meira úr því. Hugsan-
lega á f leiri stöðum á landinu,“ segir
Börkur.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
lanDBúnaður afurðir mynDlistarmanns á BænDamarkaði
Lærin hans Ólafs Elíassonar í Frú Laugu
Ólafur Elíasson.
6 fréttir Helgin 2.-4. nóvember 2012