Fréttatíminn - 02.11.2012, Blaðsíða 82
„Ég hef svo gaman af því að búa til
hluti,“ segir María Dís Ólafsdóttir,
sautján ára prjónakona og höf-
undur prjónablaðsins Aldan. Blaðið
kom fyrst út í sumar og er nú
komið í dreifingu víða. „Ég elska
að skapa eitthvað nýtt sama hvers
eðlis það er. Prjónana er bara svo
auðvelt að eiga við. Þeir eru með-
færilegir og hægt er að prjóna hvar
sem án þess að af því verði eitthvað
drasl eða umfang,“ segir María
Dís. Hún lætur ekki staðar numið
við að hanna og miðla uppskriftum
í tímaritinu sínu heldur býr hún
einnig til kennslumyndbönd sem
finna má á vefsíðunni Youtube.
María Dís ólst upp á Kópaskeri
en er nú nemi í Verkmenntaskól-
anum á Akureyri og mun koma til
með að ljúka þaðan stúdentsprófi.
Hún segir útgáfuna hafa orðið til
fyrir tilviljun „Ég var bara búin að
vera leika mér við það að búa til
uppskriftir í einhvern tíma. Elstu
uppskriftirnar í blaðinu eru því um
tveggja ára. Hugmyndin að blaðinu
kemur síðar og svona um hálfu
ári eftir að hugmyndin fæðist var
blaðið komið út.“ Hún bætir við að
mikil vinna hafi verið lögð í blaðið
þar sem fyrir hverja uppskrift
þarf að prjóna hvert stykki í öllum
stærðum. „Þetta var mikil vinna en
ekkert flókið þannig. Ég er orðin
mjög fljót að prjóna svo mér finnst
þetta lítið mál. Mér finnst þetta
líka svo gaman,“ segir María Dís
og bætir við að hún sé alin upp við
prjónaskapinn í sveitinni en hún
naut einnig aðstoðar fjölskyldu og
vina við útgáfuna. „Uppskriftirnar
eru allar úr ull og allar fyrirsæt-
urnar eru vinir mínir eða ættingj-
ar.“ -mlþ
María Dís er kraftMikil ung kona
Sautján ára og gefur út prjónablað
María Rún er sautján ára
og mikil prjónakona. Blaðið
hennar, Aldan, nýtur vin-
sælda á meðal prjónafólks.
Barnalán hjá Sigmari og Júlíönu
Sigmar Guðmundsson,
ritstjóri Kastljóssins,
og Júlíana Einarsdóttir,
nemi í félagsfræði við
Háskóla Íslands, eiga von
á barni næsta vor. Fyrir
á Sigmar tvær dætur en
þetta verður fyrsta barn
Júlíönu. Parið hóf nýverið
búskap á Reynimel og
lífið virðist leika við þau.
Sautján ára aldursmunur
er á turtildúfunum,
Sigmar er 43 ára gamall
en Júlíana 26 ára.
Arnaldur lofaður
„Besti alþjóðlegi glæpasagnahöfundurinn
er án nokkurs vafa hinn margverð-
launaði Arnaldur Indriðason.“ Á þessum
orðum hefst dómur um Svörtuloft í Shots
magazine en bókin kom nýlega út á ensku
undir nafninu Black Skies. Í umsögninni
er meitlaður stíll Arnaldar lofaður og
gagnrýnandinn lofar texta sem laus er við
íburð og skrúðmælgi en gefur ímyndunar-
afli lesandans lausan tauminn. Svörtuloft
kom út hér á landi árið 2009. Í gær kom út
nýjasta bók Arnaldar, Reykjavíkurnætur.
Jóhann hættur
í Apparat
Jóhann Jóhannsson hefur sagt skilið
við Orgelkvartettinn Apparat. Ástæða
brotthvarfsins eru miklar annir hans
við tónsmíðar og tónleikahald. Jóhann
stofnaði Apparat árið 1999 með Úlfi
Eldjárn, Sighvati Kristinssyni og Herði
Bragasyni. Hljómsveitin mun starfa áfram
og kemur fram á Iceland Airwaves í kvöld,
föstudagskvöld. Stefna Apparat-menn á
frekara tónleikahald á næstunni.
tryggvi geir rafMagnaður Dansari
Ég veit
bara að
ég er orð-
inn nógu
góður til
þess að
keppa.
Af Vogi í Dans, dans, dans
Tryggvi Geir Torfason er nítján ára gamall dansari sem stígur á svið í Dans, dans, dans annan
laugardag og ætlar að hrista vel upp í þættinum með Dubstep-dansi sem hann samdi sjálfur.
Tryggvi lauk nýlega meðferð á Vogi og snaraði sér nánast beint úr sloppnum í sjónvarpsþáttinn
enda fullviss um að hann sé til í tuskið.
t ryggvi Geir Torfason byrjaði að læra dans þegar hann var sextán ára og er á fjórða og síðasta ári
sínu í Listdansskóla Íslands. Hann stígur
á svið í sjónvarpsþættinum Dans, dans,
dans laugardaginn 10. nóvember, brak-
andi ferskur eftir að hafa nýlega lokið
meðferð á Vogi.
„Jú, jú. Ég er nýkominn af Vogi,“ segir
Tryggvi. „Ég var eitthvað að missa mig
en það er löng saga. Ég er bara mikið að
takast á við lífið og sjálfan mig núna.“ Og
dansinn hjálpar til þegar kemur að því
að feta beinu brautina sem var mörkuð á
sjúkrahúsinu við sundin blá enda dansinn
góð hreyfing og gefur mikla útrás. „Það
er gott að hafa dansinn til þess að geta
kastað sér út í eitthvað annað en þetta
daglega basl.“
Tryggvi segist hvorki hafa fylgst með
Dans, dans, dans í fyrra né haft sérstakan
áhuga á þættinum en honum líst vel á
það sem hann hefur séð hingað til. „Mér
sýnist þetta vera að vinna sig upp úr því
að vera dæmigerð vinsældakeppni.“
En hvað kom til að hann sló til núna?
„Ég veit bara að ég er orðinn nógu góð-
ur til þess að keppa. Ég er líka að fara að
útskrifast og veit að ég er hæfur í þetta.“
Tryggvi segir að draumurinn sé að
verða danshöfundur og hann semur því
eðlilega atriðið sitt sjálfur. „Ég er einn á
sviðinu og dansa við Dubstep sem er ný
elektrónísk tónlist. Þetta eru hreyfingar
sem ég fann upp sjálfur sérstaklega við
þetta lag. Þetta er einn fjórði úr stærra
verki sem ég samdi. Verkið heitir Ver-
urnar og það skiptist í fjóra hluta sem allir
eiga sinn lit. Hvítt, blátt, svart og fjólu-
blátt og þetta er blái hlutinn sem ég dansa
í þættinum.
Tryggvi segir að vitaskuld sé stressandi
að keppa í þættinum en álagið sé ekkert
sem hann höndli ekki eða ógni jafnvægi
hans og bata. „Ég er fínn, alveg stress-
aður og allt það en líður samt vel og er
mjög sáttur við allt og alla. Þetta verður
líka skemmtilegt. Ég sást svo lítið í fyrsta
þættinum frá prufunum og nú fæ ég tæki-
færi til að sprengja allt í loft upp þegar ég
á sviðið einn.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Tryggvi Geir dansaði út af Vogi nýlega, beint í prufur fyrir Dans, dans, dans þar sem hann ætlar að trylla lýðinn eftir viku.
Ljósmynd/Hari
H E LGA R BL A Ð
Jólablað Fréttatímans
Kemur út 30. nóvember
Hafðu samband við auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3300 eða á
auglysingar@frettatiminn.is til
að tryggja þér pláss.
Það styttist í Jólatímann
78 dægurmál Helgin 2.-4. nóvember 2012