Fréttatíminn - 02.11.2012, Blaðsíða 58
Helgin 2.-4. nóvember 201254 tíska
Hárbönd Kristjana björg reynisdóttir
Hárbönd með
rómantísku ívafi
Þ að var í maí síðastliðinn þegar Kristjana Björg Reynisdóttir fór að föndra heima hjá sér
blómahárbönd, sem upphaflega
voru hönnuð sem hálsmen. Hár-
böndin komu svo í verslanir mán-
uði seinna og síðan hafa þau verið á
allra vörum. „Ég byrjaði á að föndra
saman hálsmen sem voru úr þess-
um sömu blómum og ég nota í hár-
böndin. Fljótlega hélt ég svo á blóma-
lengju, mátaði hana á hausinn á mér
og síðan má segja að ekki hafi verið
aftur snúið. Böndin eru öll eins, með
mjórri teygju sem ætti að henta flest-
um höfuðstærðum. Litirnir eru þó
mismunandi og hef ég mikið verið
að leika mér með alla litadýrðina.
Minni hárbönd hef ég líka verið að
gera, fyrir þær yngri, sem eru alveg
ótrúlega sæt.
Sjálf hef ég notað hárböndin nán-
ast daglega, við hvaða „átfitt“ sem er
og mér finnst þau alltaf passa, sama
hvernig ég er klædd. Þetta er svona
eins og þegar maður hengir á sig
skartgripi til að fullkomna „heildar-
lúkkið“. Af hverju ekki að breyta til
og setja eitthvað fallegt á höfuðið?“
Sumarið var handan við hornið
þegar Kristjana byrjaði að hanna
hárböndin og hún segir að sumar-
tíminn hafi verið hennar helsti inn-
blástur í hönnuninni. „Mér finnst
alltaf svo mikil gleði, rómantík og
ævintýraþrá sem fylgir sumrinu. Á
þeim tíma verður fólk óhrætt við að
klæða sig í liti. En nú þegar veturinn
er að ganga í garð verða hárböndin
í dekkri og mögulega jólalegri á lit-
inn, svo það má segja að hárböndin
séu kannski svolítið árstíðabundin.“
Kristjana, sem er á síðasta árinu
í grunnskólakennarafræði, segir
þetta ekki vera endastöð á hönnun-
arferli sínum. Hún er með stór plön
fyrir framtíðina. „Ég er alltaf að æfa
mig, prófa mig áfram og ég er stút-
full af hugmyndum. Ég stefni á að
læra hvernig á að útfæra þær og
deila þeim svo með öðrum. Ég vona
að þetta sé bara byrjunin á einhverju
stórkostlegu.“
Hárbönd Kristjönu fást í verslun-
inni Simply á Laugavegi og seinna
í þessum mánuði verða þau seld í
Minju á Skólavörðustíg. Einnig er
hægt að nálgast þau á fésbókarsíð-
unni facebook.com/kristjanahonn-
un og fyrir þá sem eru á leiðinni til
Berlínar, fást böndin í versluninni
Veist í Neuköln.
Kolbrún Pálsdóttir
kolbrun@frettatiminn.is
Kristjana Björg byrjaði að hanna hárböndin í maí síðastliðinn. Ljósmyndir Aníta Eldjárn
Kristjánsdóttir
Uarnærföt
á 0-3 ára